Kvennablaðið - 31.07.1916, Side 1

Kvennablaðið - 31.07.1916, Side 1
« KveunHblaðið %o«t- ur S kr.innanlanda erlendii kr. 2 60 [90 cent vestan- hafs) */» verðsins borgigt fyrfram, en */. fyrir 16. júli. tlfuuðtiíftöiö. Uppiögn skrlfleg bundin við kra- mót, ógild nema komin sé til út- gof. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 22. ár. Reykjavík, 31. júií 1916. M 7. AUSTUR-FJÖLL. Lag eftir Isólf Pálssort. Pið Ijómið heið og breið og blá, mín björtu austur-fjöll! Par Ijósin kveiktu bros á brá í bernsku álja-höll. Pað birtir alt af yfir mér, er œsku guða-vé t anda við mitt hljómspil hér ég há og fögur sé. Af lýsigulli loga slœr um Ijósa hlíð og dal, er mildur andar aftanblœr um álfa konungs sal. Ur perlu-gljáa glitberg rís með glóspöng yflr brún, þar bliieyg situr blómstur-dís og blessar yflr tún. Par man ég grœna laut'hjá lind er líður suður mó, — þar fœddist œskuást mín blind og ung í tárum dó. í Ijóma kvöldsins leið hún inn í lojtsins safír-höll, — hún birtist mér í sérhvert sinn er sé ég austur-fjöll. Um júnídœgrin Ijós og löng er leiðin tón^im greið við fjaðrablik og svanasöng um sumarveldin heið. Eg svíf í ókunn undralönd, hffe yflr þeim er Ijóst! Mér réttir aftur œskan hönd með eyrarrós við brjóst! Um hugann leggur hlýjan straum, er hljóðs og stuðla föll úr fortíð grafa gleymdan draum og gull mín heil og öll. — Pið spyrjið víst, hvað valdi því að vöknar mér um brá: svo skær er bjarminn augum í um austur-fjöllin blá! Guðm. Guðmundsson. Áhugi eða áhugaleysi. Þá er nú loksins farið að líða að þeim degi, þegar vér íslenzku konurnar í fyrsta sinni göngum að kosningaborðinu með karlmönnunum til þess að velja þá fulltrúa, sem um næstu 6 ár fari með umboð vor til að ráða »lögum og lofum« í landi voru. Menn gætu haldið, að dálítill hiti væri í oss, núna í fyrsta sinni, að einhver mál hefðum vér á reiðum höndum til að leggja fyrir fulltrúaefnin, þó ekki væri fyr en eftir á. Menn skyldu einnig ætla, að einhverjar ráðstafanir væru gerðar af hendi kvenua, til þess að ýta undir konur að sækja nú kosningarnar, þegar vér loksins höfum leyfi til þess. En mjög lítið hefir verið gert að þessu frá hendi kvenna. Fæstar þeirra svo mikið sem nefna 5. ágúst á nafn, auk heldur þær ráðgeri að hafa nokkurn viðbúnað lil þess að kosningarnar gangi sæmilega frá vorri hendi. En það verður að teljast lítt sæmi- legt fyrir oss, ef svo skyldi fara, að kosn- ingaskýrslurnar bæri með sér á eftir, að vér konur hefðum lítið notað kosningar- rétt vorn. Það mundi verða mjög biturt vopn síðar gegn oss, í hendi þeirra, sem

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.