Dagskrá

Útgáva

Dagskrá - 07.11.1896, Síða 1

Dagskrá - 07.11.1896, Síða 1
Verð árg. (minnst 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir jantíarlok ; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bundin við 1. júlí komi til utgefanda fyrir októberlok. I, 30. Reykjavík, laugardaginn 7. nóvember. Unnin sveit. Þurfamannalög vor eru efalaust öll í heild sinni eitt hið allra hneykslanlegasta og skaðlegasta affaraþing af öllum þeim ólögum er vjer eigum að þakka óeðlilegri löggjafarskipun landsins um undanfarinn tíma. En sú kórviila í þeim lögum, sem má teljast allra herfilegust er þó reglan um unninn hrepp. Vjer höfum lengi átt því að fagna að klipptir væru kaflar úr eldri löggjöf vorri, hjer og þar svo að segja af handahófi, og smellt inn í staðinn hálfumsnúnum eða illa þýddum ákvæðum úr dönskum lögum, sem gilda um alólík atvik og ástæður. Hið íslenska löggjafarþing sjálft hefur gengið dyggilega fram i slíkri iagasetning, og mun leitun á öllu flekkóttari gloppulögum hjá nokkurri þjóð, heldur en sumum þeim dansk-íslensku kynblendingsbálk- um sem alþing hefur soðið saman og samþykkt á síð- ustu árum (sbr. t, a. m. farmannalögin). Það er auðgert að sýna fram á stórvægilegan óhagnað, sem ýms af þessum ónáttúrlegu ákvæðum hafa í för með sjer hvert ár sem þau standa breytingarlaust, en vart mun annað vera bersýnilegra en skaðvænleikur þessarar greinar í sveitarlöggjöfinni, sem slær öllum dyrum opnum fyrir þeirri ómannúðlegu og heimskulegu hreppapólitík sem svo lengi hefur verið fjölda landsmanna til eyðileggingar og þjóðfjelaginu öllu til ómetanlegs tjóns og vansa, Þegar svvitarstjórnirnar eru orðnar smeikar um að einhver lítt efnaður barnamaður muni ætla að hafa það af að hjara í sveitartjelaginu hinn tiltekna áratjölda eru höfð öll útispjót — stundum svo ranglát og ómannúð- leg að það er minnkun fyrir þjóðina að slíkt skuli eiga sjer stað — til þess að flæma tjölskyldumanninn burt úr því tjelagi sem hann er orðinn tengdur með vinnu og viðskiptum, ef til vill yfir mörg hjeruð þver og endilöng upp á kostnað landsmanna, til þess að demba honum niður í sveitarfjelag þar sem hann hefur ekkert að gera að minnsta kosti fyrst um sinn,' og verður til jafnmikill- ar byrði sem hann áður* var til gagns þar sem hann átti heima. Sögurnar um það hvernig fátæklirigar með ýmsum brögðum ern ginntir eða jafnvel neyddir til þess að leita á náðir sveitarinnar til þess að hægt sje að ráð- stafa þeim fara ekki hátt sumar hverjar, en það er ó- hætt að segja að margur fátæklingur á þessu landi hefur orðið fyrir ofsóknum vegna þessara ólaga, sem hverjum rjettsýnum manni mundi blöskra að heyra væri rjett sagt frá öllu, 1896. Ákvæðið um unninn hrepp á rót sína að rekja til þeirrar skammsýni sem kemur svo víða fram í löggjöi vorri, þar sem einblínt er á hagsmuni einstaklings eða smáfjelags, en hagsmunum þjóðheildarinnar er gleymt. En það virðist þó auðsætt að þjóðtjelaginu öllu má standa á sama hvort þessi eða annar hreppur hagnast eða skaðast á uppeldi þurfamanna; það eitt sem þjóðina varðar er það, að uppeldisbyrðin verði sem ljettust og arðurinn sem mestur af starfi þjarfans fyrir lamiið allt, þegar reikningurinn er gjörður upp að lokum. Og þessu takmarki verður því að eins náð að þjarfinn hafi allt það atvinmi og bústaðarfrelsi sem er sameinanlegt mcð nauðsynlegu eptirliti fátækrastjórnarinnar eptir því, hvern- ig hann rækir skyldu sína til að hafa ofan af, fyrir sjer og sínum. Alþingi hefur lítið sem ekkert fengist við fátækra- löggjöfina um langan tíma; þingmenn eyða þeim nauma starfstíma sem þeim er veittur, í alls konar ómerkilega lagasmíð, sem ekki er til annars en auka prentunar- kostnað á alþingis og stjórnartíðindum. En ofsóknalögin gegn fátækum mönnum sem fæddir eru utan dvalarhrepps síns eru látin haldast áratug eptir áratug án þess að nokkur hreifi við þeim. Þau eru að sínu leiti jafn vitur- leg eins og mansalspólitík ýmsra sveitarstjórna er hafa keypt vinnandi menn og efnileg börn hundruðum saman út úr landinu, og verður varðveislu þingsins á þessu hneykslisákvæði ekki jafnað betur við fieitt heldur en barlóminn góða út af aukaþingskostnaðinum þegar ræða er um breytingar á stjórnarhögum landsins. Gæti þjóðinni nokkurntíma auðnast að fá skaplega skipað alþingi, er ætlandi að þessu ástandi verði breytt einna fyrst af öllu því sem stendur nú í vegi fyrir við- reisn íslenskrar alþýðu. Og þegar menn finna að alþingi fer að vinna með alvöru og framsýni að endurbótum á þessu og öðru af vorum mörgu meinum er stafa frá úreltri, hálfdanskri eða óviturlegri löggjöf mun þess heldur ekki langt að bíða að hyggnari menn landsins sjái að árlegar þingsam- komur geta verið þjóðinni til stórhagnaðar í stað þess sem lítilfjörlegur kostnaður við starf löggjafanna er nú notaður eins og grýla til þess að hræða menn frá því að bæta rjettarástand þjóðtjelagsins og einstakra manna. En til þess að sýna mönnum hve mikið beint fjártjón get- ur orsakast af aðgjörðaleysi löggjafarvaldsins er ekkert betur fallið heldur en fátækraflutningarnir og hreppapóli- tíkin,

x

Dagskrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.