Alþýðublaðið - 29.03.1921, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 29.03.1921, Qupperneq 4
ALÞYffrURLvAÐlÐ 0MSKIPAfjet V&SP/V E.s. SoðnrlAiið * lllKreidMia bi»ðsior e» < Aiþyðuhiisinu við lag >l»ssiva-tí Og HvrrfisgOtu. Simi 9»W. ioiílyH'ngum <e >«iUð þaag.ð cða I Gutenberg i »tðasta Iagi k IO árdegis, mub dag, sem þaei éíga að itoma « biaðið 'sknftargjald ein Izr. á tnanoði Augiysingaverð kr. 1,50 cm. sindáikuð Utsölumeno beðnir að gera skil IU afgreiðslunnar, að minsta kosti ársí)órðungslega Lánsfé til byggingar Aiþýfiu- hússin8 er veitt móttaka i Al- þýðubraufigerðinni á Laugaveg 61, i afgreifislu Alþýðublaðsins, i braufiasölunni á Vesturgötu 29 sg á skrifstofu samningsvinnu Oagsbrúnar á Hafnarbakkanum. Styrkifi fyrirtækið! e 8 fer héðan til Vestfjarða föstudag 1. apríl kl 9 árdegis. — Vörur afhendist t dag og á morgun. gljábrendir og nikkel- húðarir í Fálkanum. K aupið Alþýðublaðið! Ritstjórí og ábyrgðarmaður: ____ólafur Friðríksson_ Frentsmiðjan Gutenberg. er blað jafnaðarmanna, gefinn út á Akureyri. Kemur út vikulega f nokkru stærra broti en .Vfsir*. Ritstjóri er Halidór Friðjónsson. Verkamaðuriitn er best ritaður alira norðlenzkra blaða, og er ágætt fréttablað. Ailir Norðlendingar, víðsvegar um landið, kaupa hann. Yerkamenn kaupið ykkar biððl Gerist áskrifendur frá nýjári á ýjfreiVsia ýlþýlnbi. Alþýðnblaðið er ódýrasta, ljðlbreyttasta og bezta ðagblað landsins. Eaup- ið pað og lesið, þá getið pið aldrei án þess verið. Jack London: Æfintýri. ef þeir gerðu uppreist gegn honum. Þeir vissu, að hann svaf aldrei. Lika vissu þeir, að ekki var hægt að drepa hann raeð særingum — það höfðu þeir reynt. Jafnvel veikin, sem strádrap þá, vann ekki bug á honum. Eftir hirtinguna í garðinum, hafði komist á nokkuru meiri regla. Þeir létu undan járnkrumlu hvíta mannsins. Nú gáfu þeir honum bara hornauga, eða grettu sig, þegar hann snéri að þeim bakinu. Þeir geymdu nöldrið, þangað til á kvöldin, að þeir voru sestir að í kofunum og hann heyrði ekki til þeirra. Og nú flýði enginn, og engiun læddist um svalirnar á nætumar. í dögun, þremur dögum eftir hýðinguna, sáust snjó- hvít segl Jessie blika við hafsbrún. En vegna þess hve kyrt var varpaði hún ekki akkerum fyrr en klukkan var orðin tvö. Sheldon hughreystist, er hann sá skipið og beið þess rólegur. Hann sagði eins og vant var fyrir verkum og vitjaði sjúklinganna. Honum fanst nú alt vera leikur; áhyggjurnar voru horfnar. Nú gat hann Jagst fyrir og látið sér batna í næði. Jessie var komin. Félagi hans kom aítur, hraustur og heilbrigður, eftir sex vikna dvöl á Malaita til þess að ráða verkamenn. Nú gat hann tekið að sér stjórnina, og þá komst alt í lag aftur á Beranda. Sheldon lá í hægindastól sfnum og fylgdi bátnum sem kom frá Jessie með augunum. Hann furðaði á því, að ekki skyldi róið nema með þremur árum, og enn þá furðulegra þótti honum það, hve illa mönnunum gekk að komast út úr bátnum, þegar að landi kom. Alt f einu var sem ljós rynni upp fyrir honum. Svert- ingjarnir þrír, seur róið höfðu, báru börur á milli sín. Mvítur maðtxr, sem Sheldon sá, ao var skipstjórinn á Jessie, gekk á undan þeim, lauk tipp hliðinu og hleypti þeim inn, og kom svo á eftir. Sheldon varð það ljóst, að sá sem á börunum lá var Hughie Drummond, og hoDum sortnaði fyrir augum. Hann langaði til þess eins, að deyja. Þetta var of þung- bært. Hann fann það, að hann muudi ekki geta rekið búskapinn lengur, í því ástandi, sem hann var. En bráðlega tendraðist vilja-aflið aftur, og hann skipaði svertingjunum að setja börurnar á gólfið við hliðina á sér. Hughie Drummond, sem hafði verið hraustur og glaður, síðast þegar hann sá hann, lá á börunum með skinin beinin. Lokuð augun voru sokkin djúpt í augna- tóftirnar, varirnar voru svo skrælnaðar, að það skein £ tennurnar, og kinnbeinin stóðu því nær út úr skinninu. Sheldon sendi annan þjóninn eftir hitamæli og leit spyrjandi á skipstjórann. „Svarti dauði", sagði skipstjórinn. „Svona hefir hann legið meðvitundarlaus í sex dægur. Og á skipsfjöl geisar blóðkreppusótt. Hvað er hér aðr" „Eg hefi látið jarða fjóra menn á dag", svaraði Sheldon, um leið og hann hallaði sér út úr hægindastólnum að börunum og stakk hitamælinum undir tungu félaga slns. Ólson skipstjóri bölvaði ógurlega og sendi annan þjóninn eítir whisky og sódavatni. Sheldon leit á hita- mælinn. „Fjörutíu og tvö stig", sagði hann. „Veslings Hughie", Ólson hauð bonum whisky. „Eg þori ekki að bragða það — maginn er í ólagi", sagði Sheldon. Hann sendi eftir einum verkstjóranum og skipaði honum að láta grafa gröf og smlða líkkistu úr kassa- fjölum. Llkkistur voru aldrei gerðar um svertingjana, þeir voru jarðaðir eins og þeir komu í heiminn; ájárn- börum voru þeir fluttir að gröfinni skamt frá sjúkra- skýlinu og lagðir þar alsnaktir til hinstu hvíldar. Þegar Sheldon hafði gefið þessa skipun hallaði hann sér aftur út af og lokaði augunum. „Þetta hefir verið hreinasta helvíti", byrjaði Ólson skipstjóri og helti meiru víni 1 staup sitt. „Eg skal segja þér, Sheldon, þetta hefir verið Ijóta fjandans ferðin. Mótbyri og logn. í tiu daga hefir okkur rekið fram og aftur. Hákarlar eltu okkur þúsundum saman, vegna þess góðgætis, sem við höfum varpað útbyrðis. Það lá við, að þeir léðust á okkur, þegar við fórum í bátinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.