Aftanskinið - 01.02.1906, Page 3

Aftanskinið - 01.02.1906, Page 3
I. 2, bl. AFTANSKINIÐ, 11 H lega alvara, með það, ?ð fara ekki lengra og slepti því tökum á d&rismey minni, og mér tii stórrar gleði fajin ég þá, að ég sveif upp á við aftur. — — — Sköramu seinna vaknaði ég kófsveittnr og með megnwsta hausverk. Þ>á var kiukkan orðin eitt um daginn. Ég hét þvi í sv fninum, wð dansa ekki tramar, og þsð heit heíl ég dvggilega haldið og mun að likindum gjöra franivegis. Einar ÞAjVIBARSKELFIR. Ormur á Eyri. Pað var nú karl í krapinu, hann Ormur gamli á Byri. Hann var kominn nær áttræðu og var rétt eins og þegar hann var um tvítugt. Tvígiftur hafði hann verið, en var nú búinn að vera ekkjumaður í tíu ár, og aldrei á þeim tíma verið við kvenmann kendur. Ormur hafði verið hreppsstjóri í fjörutíu ár, oddviti í átján, sýslunefndarmaður í þrjá- tíu ár 'o. s. frv., og öll sín störf hafði hann leyst mæta vel af hendi. Það var því engin furða, þó hann væri virður vel af samsveit- ungum sínum, og margur efnabóndinn vildi gjarna sjá einkadóttur sína sitja á brúðar- bekknum við hlið Orms, sem þriðju konu hans. Og meyjarnar sveiuðu heldur ekki þó hann liti á þær, því auk als annars var hann heldur sélegur maður, þrátt fyrir sín áttatíu ár. En hann Ormur, hann var nú ekki alveg á því, að fara að giftast neinni af þessum heimasxtum; hann hafði helzt í huga, að lifa sem piparsveinn það sem eftir væri æfinnar. En á honum sannaðist hið fornkveðna að fár veit hverju fagna skal; freistingin var nær en hann ugði. Hann varð sem sé her- tekinn af ungri og fjörugri Evu dóttur — átján ára gamalli stúlku. Anna hét hún, blessuð blómarósin; fríð og fönguleg og mesti fjör-ftskur. Það mátti nú segja, að hún væri fjörug — hún Anna, — hún sem hló að ölltim sköpuðum hlutum — og jafnvel að honum Ormi — Ormi gamla á Eyri. — En hann kærði sig kollóttan, þó hún hlæi að honum. Hann hló líka og avo var allt gott. Hann Ormur gamli var nú ekki mikið að hugsa um, þó að hann væri sextíu og tveimur árum eldri; o-nei, nei. Hann var einu sínni orðinn skotinn í stelpunni, og svo vildi hann fá hana, sagði hann, hvað sem það kostaði. Og hann fór bara í betii buxurnar sínar, — já þá hefðuð þið átt að sjá hann Orm — og beiddi stúlkunnar. „Anna min!“ sagði hann, „viltu eiga mig?“ O, ekki alveg! Hún bara hoppaði, og hló að hreppstjór- anum, oddvitannm o. s. frv. og sagði: „Það er gat á sokknum yðar.“ Og svo hló hún eins og vitlaus, stelpan. En Ormur glotti baia og sp,gði: „Yiltu eiga mig?“ „Nei, nei! Svei!“ Og hún skelli-hló. Þá var nú sjón að sjá hann Orm; því megið þið trúa. —- Hann bölvaði í sand og ösku og fór. En hún dansaði og hló. Og svo hætti hann alveg að hugsa um stelpuna, en það skuluð þið vita, að ráðs- konan fékk að stoppa í sokkana hans fram- vegis. Þetta æftntýri lét Ormur sór að kenningu verða og hætti að hugsa um kvonmál; enda eru líkindi til, að hann hafl ekki viljað eiga það á hættu, að fá fleiri hryggbrotin. Hann Ormur, — Ormur gamli á Eyri — það var nú karl í krapinu. Einar þambarskelfir.

x

Aftanskinið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aftanskinið
https://timarit.is/publication/155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.