Aftanskinið - 01.02.1906, Blaðsíða 6

Aftanskinið - 01.02.1906, Blaðsíða 6
14 AFTANSKINIÐ. I., 2. bl. stórum gusum upp á, bakkana til Siggu eins og hún vildi líka ná í hana ; það þyrluðust stundum vatnsskvettur á hana af þvf, að vind- urinn blés á móti öllum gárum á ánni. Við alt þetta varð svo draugalegt, að Siggu lá við að detta af hestinum, bæði af hræðsiu og kulda, sem eðlilegt var, öll orðin vot og svo var hún illa útbúin, ofan á.alt hitt. Hún gat ekkert annað en grátið, — grátið heitum bænartárum tii Guðs, — að gefa það, að hrtn þyrfti ekki að vera alla æfi sveitarstelpa eins og hún var köliuð A Hál3i, höfð við alt það sem verst var, tíl allra. snúninga bæði við kyr og kindur. Hún sneri hestinura við, og ætlaði heim að Hálsi, hvað sem Þorgrimur gjörði við hana, en hitt veiflð langaði hana til þess, að Sara yflr ána. Hún velti þessu fyrir sér nokkrnm sinnum, en mátti þó til að ríg- haida sér í faxiö á Brún, sem fetaði sig hægt og gsciilega áfram í náttmyrkrinu, á móti veðriru. — — Siggu litlu fanst eins og ráiaioddar stingju sig i andlitið, þegar kiepjan lamdist af aíefli á litlu og njúku kinnarnar; loks gat hún ekki haidið lengra áíram, því hún var orðin svo þreytt að halda sér í faxið á Brúu. Þá dettur benni það ráð i hug, að. fara til nasta bæjar þó langt væii, þó var hún í efa um, að hún gæti fundið nokk- urn bæ, en hún treysti því, að gamii Brúnn mundi rata; hún hafði heyrt, að hai n væri svo góður að raia i myikri, hvert s< m maður viidi iáta hann iara. Hún sneri honum því undan veörinu og sagði við hann: »Við skul- um halda undan heim á prestssetrið. Þar á ég góðu að mæta.s (Framh.) Sokkabandiö, (Eftir Gest Vestíirðing.) ----— (Framö.) Jón varð að hátta svo um kvöldið, að hann iékk ekki tækifæri ti! að bjóða Gunnu 8inni góöa nótt, og hafði hann þó gjört ítrek- aðar tilraunir til að geta hitt hana eina. En fólkið var alt af aö vefjast fyrir honum. Þegar hann var háttaður gat bonum ekki komið til hugar að fara að reyna að sofa. flann hafði þarfiegra í huga. — Hann hafði svo mikinn unað af því, aö bollaleggja fram- tiðina með sjálfum sé>*, og byggja lo-ftkastala til að búa í þegar hann væri búinn að stað- festa ráð sitt. Lengur en tvö ár skyldi það ekki dragast u.ð hann léti séra Svein gjöra eitt og sama úr þeim Gunnu. En þá var að hugsa um jörðina. Hannhugsaði, þaðyrðikann. ske eittbvað til með það. Hann hafði auga- stað á koti sem likindi voru tii að mundi losna áður langt liði. Svo var hann Ioks farinn að hokra með kouu og — börnum. Það var nú svo sem sjálfsögð afleiðing, og hann var lengi að brjóta heiiann um, hvort hann ætti að láta konuna ráða nöfnum fyrstu krakkanna, eða hvort hann ætti að láta þau heíta foreidra nöf'aum sínum. — Hann var búinn að leggja at'tur augun ti! þess að ekk- ert skyldi giepja f'yrir. — Hann fleygði taum - unum fram á makkann á reiðskjóta hugsjðn- anna, og lét harm hlaupa með sig eins og hanu viidi. Þagar hanu var búinn að liggja þann ig og hugsa i tvo tíma, var harm búinn að gjöra meiri jarðabætur á ábýlisjörð sinni, en nokkur búfræðingur hefur gjört fyrir aðra, búinn að hýsa bæinn sinn ágætlega, sextán- falda kindurnar þeirra Gunnu og kúgildin, skapa kýr og hesta úr engu og öll bÚ3áhöld úr sama efni. En börniD þau voru orðin eitthvað limtán, sitt á hverju árinu, það elzta fjórtán ára, en það yngsta í móðuriífi. Loks sofnaði hann þó. Þegar Jón vaknaði um morguninn var Gunna komin of'an til að hita kaffið. Hann lét þ’/í ekki lengi bíða, að hypja síg í fötin, til að geta flýtt sér ofan að bjóða Gunnu sinni góðan daginn, áður en fleiri kæmu á fætur Þegar hann kom fram í göngin mætti hann henni. iGóðau daginn, hjartað mitt!« sagði hann og ætlaði að faðma hana að sér, en hún vatt sér undan og sagði hvatskeytislega: »Nei, nei, það getur ekki gengið, þetta kom svo flatt upp á míg í gær, að ég var ekki búin að átta mig á því!« Um leið og hún sagði þetta skauzt hún inn í eldbúsið, áður en Jón gat fengið tæki-

x

Aftanskinið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aftanskinið
https://timarit.is/publication/155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.