Aftanskinið - 01.02.1906, Page 7

Aftanskinið - 01.02.1906, Page 7
.1, 2. bl. AFTANSKINIÐ 15 íæri ti! að svara lienm. Jón stóð eftir sem þrumulosdnn og alveg ráðviltur; þetta hafði honum sízt til hugar komið. Hann hafði ekki hug á að ,elta hana inn í eldbúsið, til aö spyrja hana hvernig A.þessu stæði. o Hann stóð grafkyr 1 sömu sþorum og var að hrjóta heilann um, hvernig hann 1 ætti að snúa sér í þessu. Honum fanst eins og hiininn og jörð hofði hrunið. Hann fánnf að hann gat ekki oorið þetta. Svo datt honum/ ait í einu í hug, að segja skiíið við þénna heim. Með því gat hann bezt sýnt Gunnu, hve heitt hann hafði elskað hana. Þá þóttist hann viss um að hana mundi iðra þessa — hún mundi syrgja hann og gráta. Já, og hver gat vitað nema hún mundi helzt kjósa að fylgja honum eftir til ókunna landsins. Og sokkabandið, trygðarpanturirm henrar það skyldi verða snaran, sem hann hengdi sig í. Þá gat Gunna notað hitt sokkabandið ef hún mat ást hans og trygð að verðleikum. Jón var ekki lengi að brjóta heilann um þetta. Sokkabandið hafði hann við hendina. Það var vafið inn í rauða Kína-auglýsingu i hrjóstvasa hans. En þá var að finna ein- hvern snaga tii að hengja sig á. Efst upp í mæni í bæjardyrunum var digur skipsnagli, sem hafður var til að hengja á söðulinn hennar • Gunnu að vetrinum. Nú var hann auður, og hann var meir en nógu sterkur til að halda Jóni. Hann tók sokkabandið upp úr vasa sínum, vafði utan af því bréfið, hnýtti saman endana og bjó til lykkju. Meðan þessu fór frara snaraðist Gunna fram úr eldhúsinu og upp á lof't, með kaffiketilinn. Hún varaðist að lfta við Jóni. Nú var um að gjöra, að nota tækifærið, meðan bún var nppi, og svo var hún sjálfsagt sú fyrsta, sem kom að hon- um dinglandi í snörunni. Hann klifraði upp á bitann, brá sokkabandinu í kappmellu um hálsinn á sér og hinni lykkjunni um naglann. Meðan hann var að hagræða þessn sat hann á bitanura. En þegar hann var búinn að koma því öllu vel í lag, herti hann lykkjuna fast að hálsinum og rendi sér niður af bitanum. Lykkjan hertist að hálsinum og honum flaug í hug að iðrast eftir alt saman. Hann brauzt um af sársaukanum og fanst sem haun væri alveg að hengjast. Hann heyrði brest, og þóttist þjóta af stað eitthvað út í genninn, svo vissi hann ekki meira af sér. — — — Þegar hann rakr.aði við aftur var hann kominn í skaut Abrahams eða sama sem. H&n > !á í faðmi fóstru sinnar sálugu, sem hafði verið guðhrædd og góð kona og var nú d,áin , fyrir átta árum. Þau yoru stödd i grænu rjóðri f blómskrýddum skógi. Alt í kring um þau ómaði yndislegur fugla söngnr og þægi- legan iim lagði að vitum hans: Hann fór að spyrja gömlu konuna hvernig á þvi stæðiyað hann væri hér kominn, og það þrátt fyrir það, þótt hanu hefði séð fyrir sér sjálfur. E'ri hún sagði honum, að það væri fyrir þá sök, að h&nn hefði fórnað lífi sínu á altari ástariunar, þesc sem mest væri og sterkast f syndugum heimi. — kærleikans. Jón botnaði ekkert í því að hann skildi ekki muna eftir þvi að hann hefði fundið Pétur eða lagt verk sín á metaskálarnar. En honum lá nú annað þyngra á hjarta en himnarikisvistin og það var — Gunna. Hann fór að spyrja fóstru sína eftir henni. Hvort hún vissi nokkuð hvernig henni mundi bafa orðið við, þegar hún fann hann dinglandi i sokkabandinu. Jú, það vissi gamla konan ofur vel. Það hafði farið eins og hann gjörði ráð fyrir. fíún hafði orðið aiveg frá- vita af örvæntingu og hengt sig í hinu sokka- bandinu. Jón spurði hvort hann fengi ekki að hitta hana bráðuro. Nei þvi mátti hann ekki húast við. Slíkum trygðrofum var annar staður ætlaður. — Jón þóttist skilja hvar það væri. Honum þótti lítið koma til himnarikis- vistarinnar fyrst Gunna fékk ekki að vera þar hjá honum. Hann spurðí fóstru sína hvort ekki væi’U nein ráð til þess, að hún fengi að koma þangað til sin. En hún þvertók fyrir það. Réttlætið varð að ske. Jón spurði hana hvort hann gæti ekki fengið að fara þangað til að finna hana, eða að minsta kosti að senda henni línu. (Framh.)

x

Aftanskinið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aftanskinið
https://timarit.is/publication/155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.