Aftanskinið - 01.03.1906, Síða 6

Aftanskinið - 01.03.1906, Síða 6
22 AFTANSKINIÐ. I., bl En hvað Steina þótti gramaD að hleypa Kauð sínum eftir grundinni, heim að Giii. Það var eins og hún væri trégólf, svo söng og hvein undir fótunum á Rauð, þegar hann þaut á- fram, og alt vár á fljúgandi ferð. Hvað það var gaman. en þó var það meira gaman, að eiga von á því, að geta leikið sér við Siggu þegar hann vildi og þau máttu fara út til þess, að fá krakka af hinum bæjunum, tii að ieika sér með þeim. 0! hvað þetta ait var gaman. Að hugsa til þess að eiga svona sólbjarta framtíð fyrir höndum, það var sú mesta skemtun, sem Steini þekti og að sitja á bakinu á Rauð þenna morgun. Hann hitti Jón á Gili og fékk honum l)réfið. Þaðan reið hann yíir að Hálsi og sagði Þorgrimi það sem fyrir hann var lagt. í fyrstu varð Þorgrímur hljóður við frá- sögn Steina, en sagði svo. hægt og stiiliiega í »Druknaði hún f Lxxá?* »Nei,« sagði Steini; »hún kom í gærkvöldi heim tii mín, nær dauða en lifi, og mamma tók á móti henni. Sigga fer ekki frá mömmu meðan þær lifa báðar. Þú þarft ekki að sýna þig í þvi oftar að hálf fyrirfara henni. Ég kalla það svo, þegar þú skipar henni út t ófært veður undir nótt. Sigga litla, aumíngj- ion, er þó aldrei nema barn á fjórtánda ári, en þu eJdgamall fauskur, ráðinn og roskinn. Þú ættir þess vegna ekki að skipa barni það, -em þú sjálfur treystir þér ekki til að gjöra«. Þetta sagði Steini, með svo mikilli áherzlu, að Þorgrímur stóð eins og hann væri dæmd- ur til dauða og horfði niður á fætur sér. (Framh.) Ævintýri. »Já, það var meriuieg ferð!« sagði Hailur gam,i,.og fór svo, víst í hundraðasta ckifti, að segja frá ævintýri einu, sem skeð hafði á fyrri hluta ævi hans. »Já, húu var merkileg! Ég man það eius og það hefði skeð í gær.« »Þú ættir að segja ofckur frá því, núná í rökkrinn, afi,« sagði ÓJi litli og settist á kné gamla manDsins. Svo byrjaði Hallur sögu sína: »Ég var kcminn nm tvítngt, þegar sagan gjörðist. — Einn jafnaldri minn og vinur, sem Þóröur hét og var mér mjög samrýmdur, kom til mín um uótt eina, þegar ég var ný sofnaður, vakti mig og bað mig aðklæðast. Mér þótti þetta kynlegt, en lét þó að ósk hans og fór á fætur Svo fór ég út með honum. Mácinn varpaði fölvum bjarma á hjarnið, sern marraði undir fæti; það var logn. Þegar við vorum komnir skamt fVá bænum, greip Þórður í mig og hvíslaði: »Ertu vinur minn?« Ég hrökk við, og þó mér pætti spnrningin æði kynleg svaiaði ég hiklaust: »Já!« — »Jæja, gott er það!« anzaði hann; »viltn þá ekki Þggja ofur lítiö í sölurnar til þess, að hjálpa mér, til að . . .« Hann þagnaði. »Hvað á ég að gjöra?« spurði ég forvitinn. »Vertu rólegur! Viltu sverja mér, að þegja yfir leyndarmáli því, sem ég nú ætla að trúa þér fyrir?« Hann hvest á mig augun. — »Já!« — »Gott! Taktu þá eftir: Ég hefi orðið ástfangiuu af yndislegri meyju, sem ég þarf að finna í nótt, þvi við ernm trúlofuö, en sá er galli á gjöf Njarðar, að hún er uppi í — tunglinu,* og hann leit npp. Ég hristi höfuðið vantrúaður. — »Þú þarft ekki að hiista höfuöið, Ha!lur,« sagði hann byrstur; »ég segi satt.« — »En hvernig í ósköpunuin ætlarðu áð ná fundi hennar?* hálf-hrópaði ég. - »Hafðu ekkí svona hátt!« sagðihann; »í þessum hól þarna,« og hann benti i'ram í dalinn, »byr huldumaður sem er mér vinveittur. Hann á gamlan hrosshaus, sem hefur þá náltúru, að honum er hægt að ríða, hvert sern vill; jafnt láö og lög sem loft. Ég heii hugsaö mér, að fá huldumann þenna, sem Símon heitir, til þess, aö láua mér haus- inn í nótt, til að fara á honum upp til tungls- ins. Þú mátt brosa Ég veit hvað ég syng. Og,« hélt hann átram, »mér þætti vænt um, ef þú vildit koma með mér.« — Ég var þá ung ur og fús til æviutýranna og þess vegna iét ég tilleiðast, að fara með honum. Þegar hann heyrði það, varð hann svo giaður, að hann kysti mig. — Svo fórum við til hólsins, þar

x

Aftanskinið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aftanskinið
https://timarit.is/publication/155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.