Alþýðublaðið - 21.02.1907, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 21.02.1907, Qupperneq 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FRELSI — JAFNRÉTTI — BRÆÐRALaG MÁLGAGN VERKMANNA OG JAFNAÐARSINNA Á ÍSLANDI 1. IILAÐ REYKJAYÍK, FIMTUDAGINN 21. FFHIU AR 1907. II. ÍRG. alÞýdublaðið kemur út vikulega (52 tbl. á ári). Kostar 2 kr. inn- anlands, 3 kr. erlendis. Gjalddagi í. október. Utgffandi: Hlutafélag í Reykjavík. Ritstjóri og ábyrgðarm. Pétur G. Guðmundsson. Skrifstota og afgreiðsla í Austurstræti 10. Stefnuskrá Alþýðublaðið breytir í engu stefnu sinni, þó það breyti útliti. En haíi mönn- um ekki þótt hún koma nógu skýrt fram, eða vera ákveð- in nógu greinilega, má bæta úr því með því að telja hér upp það helzta, sem fyrir blaðinu vakir: A ð vernda rétt lítilmagnans. Að sporna við yfirgangi og kúgun auðvalds og ein- stakra manna. Að innræta bjá þjóðinni þekkingu á gildi vinn- unnar og virðingu fyr- ir henni. A ð efla þekkingu alþýðunn- ar, einkum á þ j ó ð - hagsfræði, atvinnu- rekstri og vinnuaðferð- um. Að styðja samtök meðal verkmanna, sem miða að því, að sporna við valdi og vana, áníðslu og órétti, en efla sam- eiginlegan hagnað. A ð efla svo andlegan þroska alþýðunnar, að hún verði jafn fær tif ráða sem dáða. Við væntum þess að allir sem vilja velferð þjóðarinn- ar í nútíð og framtíð, styðji okkur að þessu verki, með alúð og einbeittum vilja. Jafnréttið er sá töframáttur, sem einn getur aflað þess- ari þjóð sem öðrumvegsog virðingar, frelsis og far- sældar. Við trúum á þennan mátt og tileinkum okkur orðin: Frelsi, jafnrétti, brœdralag. Til kaupendanna. Alþýðublaðið biður afsökunar á því, hve mikill dráttur hefir orðið á útkomu þess. Eins og sjá má, heíir það breytt sniði sínu mikið nú um árámót- in. Ymsir örðugleikar hafa verið samfara þessari breytingu og virð- ist ekki ástæða til að telja þá upp hér. En breytingin er gerð i því augnamiði, að blaðið verði að meiri notum eftir en áður, geti haldið mönnum betur vakandi fyrir málefnum dagsins, með þvi að koma oft út, og geti flutt meira lesmál og fjölbreytilegra eftir stækkunina, Það flytur hér eftir allar almennar fréttir, svo fljótt og greinilega, sem unt er og rúm leyfir. Hraðskeyti um merkisviðburði í útlöndum fær blaðið vikulega eða oftar, gegn- um ritsímann. Með því að flytja fréttir, ætlar blaðið að spara kaup- endum sínum önnur blaðakaup að nokkru; því það er alkunna, að margir kaupa hin blöðin að eins vegna fréttanna. því sum þeirra að niinsta kosti, flytja lit- ið annað en stjórnmálaþref og fréttir. En stjórnmálaþref blað- anna, eins og það hefir verið á siðari árum, er orðið svo hveim- leitt mörgum manni, að ekki er á það bætandi. Þó er ekki svo að skilja, að Alþýðublaðið láti sig landsmál engu varða til lengd- ar, því alt sem snertir alþýðuna í heild sinni er í raun og veru landsmál, hvort sem það snertir stjórn, atvinnu eða mentun. En það ætlar sér að byggja þar á n^jum grunni, og kemur það síð- ar í ljós, hversu það hepnast. Þess nægir að geta í svip, að blað- ið fylgir engum sérstökum stjórn- málaflokki að málum, þeirra sem nú eru uppi í landinu. 111 meðferð á farþegum. Það er æði algengt, að islenzk- ir farþegar mæta illri meðferð á dönsku flutningaskipunum hér við land. Hefir nokkrum sinn- um verið kvartað undan því í blöðunum, en þó sjaldnar en skyldi. Það er gömul og rót- gróin skoðun bjá Dönum, að alt megi bjóða íslendingum, þeir hafi ekki meiri rétt á sér en dýrin. Og það er komið upp úr á ísl. að taka öllu með þögn og þolin- mæði af þeirra heúdi. Þetta má ekki með nokkru móti viðgang- ast lengur. Séu ísl. órétti beittir af útlendingum, verða þeir að hrópa hátt svo allir heyri — skýra dæmin rétt og greinilega fyrir al- menningi, jafnótt og þau koma fyrir. Nokkrir menn sem komu vest- an af Fjörðum með »Lauru« í vikunni sem leið, áttu tal við Al- þýðublaðið nýlega og sögðu frá för sinni á þessa leið. Þeir stigu á skip á Bíldudal 7 saman og báðu um far á 2. far- rými. Það fengu þeir ekki, en i stað þess var þeim visað ofan í »miðlestina«. Þar vóru nokkrar steinolíutunnur og annað ekki. Svo var lestin óhrein, að farang- ur þeirra ataðist allur óhreinind- um. Aflíðandi hádegi fór skipið af stað og var28 kl.stundir á leið- inni til Stykkishólms. Þeir fengu vonzku veður og ósjó. Gátu þeir valla fest svefn um nóttina, fyrir ágjöf, sem rauk ofan i lestina.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.