Alþýðublaðið - 03.03.1907, Síða 1

Alþýðublaðið - 03.03.1907, Síða 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FKELSI — JAFNRÉTTI — BRÆÐRALaG MÁLGAGN VERKMANNA OG JAFNAÐARSINNA Á ÍSLANDI 3. BLAÐ REYKJAYÍK, SUNNUDAGINN 3. MARZ 1907. II. ÁRG. alÞýðublaðið lcemur út vikulega (52 tbl. á ári). Kostar 2 kr. inn- anlands, 3 kr. erlendis. Gjalddagi 1. október. Utgefandi: Hlutafélag í Reykiavík. Ritstjóri og ábyrgðarm. Pétur G. Guðmundsson. Skrifstofa og afgreiðsla í Austurstrasti 10. Ágrip af sögu jafnaðarkenningarinnar. ii. Kristur var langtá undan sam- tiðarmönnum sinum. Þeir vóru ekki færir um, að halda þeirri stefnu fram, sem hann hafði haf- ið. Eítir fráfall hans var kenn- ingum hans snúið upp í trúarat- riði smátt og smátt. Pær dreifð- ust meðal lýðsins kynslóð fram af kynslóð, breyttu veruleik sín- um og urðu að andlegum heila- hrotum, sem fjarlægðust æ meir og meir heilbrygða skynsemi. Lar kom loks, að spillingin náði undir- tökum á hinum upphaílega krist- índómi og samvizkulausir svikar- ar og peningablóðsugur fóru að nota kristnu trúna sem verkfæri, til að vinna gagnstætt anda Krists og kenningu. Hin mikla náðar- gjöf, sem Kristur gaf mannkyninu, jafnréttis- og mannúðarkenningin, var gerð þannig að hefndargjöf. Enn þá er mannkynið ekki orðið svo andlega þroskað — eftir 19 aldir — að starf Krists og kenn- ing sé metin að verðleikum al- ment, hvað þá heldur að henni sé fylgt í verkinu. Eftir að Nýja-Testamentið var fært í letur og breytt út meðal þjóðanna, fóru aftur að vakna jafnréttis-vonir í hugum ýmsra manna. Þeir þóttust finna í því bendingar um það, að Kristur mundi koma aftur til jarðarinnar og seta á stofn »þúsundáraríki«, þar sem menn gætu lifað í friði og fullsælu, kærleika og jafnrétti. En þetta vóru vonir. sem þeir menn trúðu að mundu rætast og gerðu því sjálfir ekkert verulegt til að koma þessum hugmyndum í framkvæmd. Þá vóru og aðrir, sem gerðu sér hugmyndir um umbætur á þjóðfélagsskipun og réttarfari, hugsuðu sér, hvernig því skyldi haga, svo jörðin gæti orðið full- komið sæluland (Utopien). Vóru stundum ritaðar bækur, sem lýstu þessum hugsköpuðu ríkjum út í æsar. Merkust þeirra bóka er talin sú, sem Englendingurinn Morus samdi og gaf út á latínn 1516. Thomas Morus var ríkiskanzlari hjá Hinrik VIII Englandskonungi. Bók hans var lýsing á eyju einni í Kyrrahafinu, sem hann kallaði Útópíu (þ. e. landið óskapaða), Á eynni haPi spekingur einn, Útópus að nafni, stofnsett ríki, bygt á grundvallarkenningum frels- is, jafnréttis og félagsskapar. Á Útópíu eru margar borgir og stórar. Göturnar eru beinar og breiðar. Húsin standa í réttum röðum, öll nákvæmlega jafnstór og bygð í sama stíl. Alt er sameiginleg eign, hús lóðir og lausafé. Enginn einn getur haft betri húsakynni en ann- ar. Til þess að koma í veg fyrir það, er húsunum skift meðal íbú- anna eftir hlutaveltu tíunda hvert ár. Landinu umhverfis borgirn- ar er skift í jafnstórar spildur, og er 40 manns ætlað að yrkja hverja spildu. Allir eru skyldir að vinna nokkuð að landbúnaði, þó þeir búi í borgum. Iðnaður er tölu- verður í landinu. Allir eru skyld- ugir að vinna 6 stundir á dag, karlar og konur, 3 stundir árdeg- is og 3 stundir síðdegis. Sátími, sem afgangs er, er notaður til lista- og vísindaiðkana, ræðuhalda og skemtana. Samkomur með ræðuhöldum og fyrirlestrum eru haldnar iðulega, og eru ætlaðar jafnt konum sem körlum. Öll- um vinnuafurðum er safnað í eitt forðabúr í miðri borginni, og þang- að sækja allir nauðsynjar sínar, svo sem hver hefur þörf fvrir. Peningar eru ekki til í landinu og ekkert hægt við þá að gera. —Útópíu-búar lifa góðu lífi. Veik- indi þekkjast þar varla. Þó eru til sjúkrahús og standa þau utan- borga. Þeir ganga til rekkju kl. 8 á kvöldin, sofa 8 stundir og fara á fætur kl. 4 á morgnana. Klæða- burður þeirra er látlaus og hag- feldur. Mismunandi tízkusnið þekkjast ekki. Konur klæða sig eins og karlmenn. Matgerðarhús hafa þeir sameiginleg ogborðsali. Undir borðum hlusta þeir á fyr- irlestra eða hljóðfæraslátt. Trúarbragðafrelsi ríkir í Útó- píú. Þó má enginn hafa vist í landinu, sem ekki trúir á per- sónulegan guð og annað líf, eftir dauðann. Landslögin eru mjög óbrotin, málaferli fágæt og glæpir eiga sér varla stað. Þyngstu hegn- ingu er svo hátlað, að afbrota- maðurinn er hneptur í gullhlekk. Gull er sem sé auðvirðilegast allra málma. Lítitfjörlegustu ilát og á- höld eru úr gulli eða silfri. Perl- ur og demanta má ekki nota til annars en fyrir leikföng handa börnum. Þetta eru aðalatriðin í hugsjón Morusar. En sá er gallinn mest- ur á henni, að höfundurinn hefir víst aldrei hugsað sér að koma henni í verulega framkvæmd. III. Það virðist eiga vel við, að minn- ast hér með nokkrum orðum á þjóðfélagsskipunina í Perú, eins og hún var þegar Spánverjar fundu það land, í upphafi 16. aldar. Hennar er sjaldan getið i menn- ingarsögu mannkynsins, en hún er stór-merkileg ei að síður. Þeir menn í Norðurálfunni, sem hugsuðu mest um umbætur á mannfélagsskipuninni, komast það lengst, í þá daga, að bvggja stór- ar skýjaborgir og hugsa sér fyrir- komulag, sem þeir álitu sjálfir ó- gerlegt að koma í framkvæmd. En um sama leyti vóru því nær allar þessar sömu hugmyndirlátn-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.