Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 16.06.1960, Qupperneq 2

Lögberg-Heimskringla - 16.06.1960, Qupperneq 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 16. JÚNÍ 1960 Fréttabréf úr Borgarfirði Niðurlag Margir hafa látizt hér í hér- aðinu frá því að ég skrifaði síðast. Ekki hafa þá neinar mannskæðar farsóttir verið þar að verki. Kíghósti fór hér um, en var vægur og olli engu manntjóni. Væg inflúensa stakk sér einnig niður hér og þar án þess að valda mann- tjóni. En dauðaorsakir hafa verið mjög margvíslegar, og hér verður aðeins hægt að nefna fátt eitt af því fólki, er lát- izt hefir, en ég set hér á eftir nokkur nöfn, er fyrst verða fyrir í því sambandi: Vil- mundur Jónsson bóndi á Mosfellsstöðum í Skorradal dó 20. maí s. 1., eftir langvar- andi heilsubilun. Hann lætur eftir sig konu og þrjú upp- komin efnis börn. Vilmundur var góður bóndi og drengur hinn bezti. Ari Guðmundsson verkstjóri í Borgarnesi dó af byltu af hestbaki 29. maí. Ari var sonur Guðmundar Auð- unnssonar frá Varmalæk, Vigfússonar frá Grund í Skorradal. Ólafur B. Björns- son, ritstjóri blaðsins Akra- ness á Akranesi, dó 15. maí, eftir langvarandi sjúkleika. Guðbjörn Oddsson bóndi á Rauðsgili í Hálsasveit dó 28. apríl 1959. Hann var orðinn við aldur, bilaður að kröftum og nærri blindur, en var á yngri árum sterkur vel og glímumaður og smiður og bjó jafnan góðu búi á Rauðs- gili og bætti jörð sína mjög. Margrét ólafsdóttir í Kvíum í Þverárhlíð lézt á síðastliðnu voru, í hárri elli. Hún var frá Kaðalstöðum í Stafholtstung- um, en bjó lengi myndarbúi í Kvíum, fyrst með Eggerti manni sínum, sem dó ungur, en síðan með sonum sínum, unz Ólafur sonur hennar tók þar við jörð og búi. Kristófer Helgason frá Heggstöðum í Andakíl lézt í aprílbyrjun ’59. Hann var á bezta aldri og lætur eftir sig konu og ungan son. Helgi faðir Kristófers og Páll S. Pálsson skáld í Kan- ada eru systkinasynir. Sigurð- ur Helgason, sem lengi bjó á Hömrum í Reykholtsdal, var afi Kristófers. Kristófer bjó í Fossatúni og síðar á Hegg- stöðum, en var nýlega fluttur til Reykjavíkur, er hann dó. Móðir hans, Ástríður, er dótt- ir Halldórs á Kjalvarstöðum. Halldór er nú á tíræðisaldri, vel hress og gengur enn að ýmsum störfum. Jón Þorleifs- son bóndi í Laxholti í Borgar- hreppi dó 25. marz 1959, ein- hleypur. Hann var sonur séra Þorleifs Jónssonar á Skinna- stað. G e s t u r Jóhannesson bóndi að Giljum í Hálsasveit varð bráðkvaddur í Reykja- víkurferð 9. apríl 1959. Hann lætur eftir sig konu og fjögur uppkomin efnis börn. Ekkjan, Þóra Jóhannesdóttir, býr nú með þremur börnum sínum í Giljum. Gestur var mikill dugnaðar bóndi og efnaður vel. 1 Reykholti dóu þrjár aldraðar manneskjur. Anna Indriðadóttir, tengdamóðir Þóris skólastjóra í Reykholti, dó j í aprílbyrjun og maður hennar Friðbjörn Sigurjóns- son dó í sumar. Hann var bróðir Guðmundar Sigurjóns- sonar, sem var um skeið í Kanada. Guðmundur var glímumaður og fékkst við nuddlækningar. Bróðir þeirra var og Fjalla-Bensi, svo nefnd- ur, sem var landsfrægur á sinni tíð. Þriðja manneskjan, sem dó í Reykholti, var Kristín Ögmundsdóttir frá Fjarðarhorni í Hrútafirði. Hún var fóstra séra Einars Guðnasonar í Reykholti og var í skjóli þeirra prestshjón- anna, öldruð og farlama. Sveinbjörn Sveinsson frá Geirhlíðarkoti í Flókadal dó 26. apríl 1959. Hann var á tí- ræðisaldri og var síðustu árin á elliheimili á Akranesi. María Steinsdóttir frá Skógum í Flókadal dó á Akranesi hjá dóttur sinni, Björgu, og tengdasyni, Þórði Erlendss. frá Sturlureykjum, sem búa á Litla-Bakka á Akranesi síðan þau fluttu frá Skógum. María var Húnvetningur. 1 síðari hluta ágústmánaðar lézt Brynjólfur Guðbrandsson í Hlöðutúni. Hann var orðinn aldraður. Orðlagður gæða- maður, búhöldur góður og heimili Hlöðutúnshjóna, Jón- ínu og Brynjólfs, jafnan talið í fremstu röð hvað allan menningarbrag snerti, jafnt úti sem inni. Ég held að Brynjólfur hafi verið fyrsti maður hér í héraðinu, sem fór um með plóg og herfi og vann að túnasléttum með hesta- verkfærum. Sigurður Bjarna- son, fyrrum bóndi í Hrauns- ási, lézt nokkru fyrir síðustu áramót, kominn hátt á níræð- isaldur. Merkur maður og greindur, fjör og léttleika átti hann í ríkum mæli, sem ent- ust honum óvenju lengi, þrátt fyrir ýmis konar raunir og mótlæti í lífinu. Kristófer Jónsson á Hamri í Borgar- hreppi lézt í vetur. Kristófer var frá Valbjarnarvöllum í Borgarhreppi. Anna Stefáns- dóttir í Síðumúla í Hvítár- síðu dó í Síðumúla í febrúar s. 1. Hún var ekkja eftir Jón Einarsson, er lengi var á Þor- gautsstöðum og í Síðumúla ijá Andrési Eyjólfssyni og konu hans, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur. Sonur þeirra Jóns og Önnu er Stefán kenn- ari og rithöfundur í Reykja- vík. Ingibjörg Halldórsdóttir frá Síðumúla-Veggjum lézt í sjúkrahúsi á Akranesi 4. nóv. s. 1. eftir langa vanheilsu. Hún stóð lengi fyrir búi hjá Magn- úsi bróður sínum á Veggjum og síðar í Efstabæ á Akranesi. Ingibjörg var prýðilega greind og listfeng, en á unglingsaldri fékk hún svo þungt sjúkdóms- áfall, að hún gekk aldrei heil til skógar eftir það, og síðustu misserin var hún sjúklingur á Sjúkrahúsi Akraness. Hinn 18. des. s. 1. varð bráðkvadd- ur einn bóndi hér í hreppi, Jón Rögnvaldsson. Hann læt- ur eftir sig konu og þrjár dæt- ur í bernsku og eina stjúp- dóttur. Jón var frá Þverdal í Saurbæ í Dölum vestur, mið- aldra maður, vel látinn. Hann var einn þeirra, er rekið hafa gróðurhúsabúskap á Klepp- járnsreykjum. Sigríður Sigur- jónsdóttir á Kópareykjum dó 26. marz s. 1. úr hjartabilun. Hún var ung dugnaðarkona, sem átti sex ung börn með eiginmanni sínum, Benedikt heitir, Egilsson, Skagfirðing- ur að uppruna. Þau hjón voru búin að setja sér upp nýbýli á Kópareykjum. Helga Jak- obsdóttir á Sturlureykjum dó 8. marz s. 1. af heilablóðfalli. Hún var dóttir Jakobs Þor- steinssonar frá Húsafelli. Guðríður systir Helgu dó í Reykjavík 19. jan. s. 1. úr krabbameini. Hinn 17. marz s. 1. dó María Sæmundsdóttir á Hvítárvöllum eftir langan búskap þar. Hún þótti jafnan myndar og sóma kona. Mann sinn, Ólaf Davíðsson frá Þor- gautsstöðum í Hvítársíðu, missti hún 1927, að mig minn- ir, og bjó síðan með börnum sínum. Davíð, sonur hennar, var lengst af ráðsmaður hjá t^enni. Jósep Sveinsson lézt seint í júní s. 1. Hann var son- ur Sveins Torfasonar, er eitt sinn bjó á Háafelli í Hvítár- síðu. Jósep var búinn að missa konu sína, Valgerði Þorvaldsdóttur frá Norður- reykjum í Hálsasveit, fyrir nokkrum árum. — Þótt upp- talning þessi sé orðin löng, eru víst margir ótaldir hjá mér, en ég verð að láta hér staðar numið. Nú er kominn 18. apríl, og ég hefi aldrei haft tíma til að snerta á að ganga frá þessum línum og verð að biðja afsök- unar á þessu rissi. Ef tími og rúm leyfðu, mætti víst ýmis- legt til tína hér til viðbótar. Ég sé að ég hefi gleymt að geta um lát Steinunnar í Ausu í Andakíl, sem varð bráð- kvödd 25. nóv. s. 1. Hún var kona Sigvalda Jónssonar í Ausu, og þar bjuggu þau all- an sinn búskap. Steinunn var greind og dugmikil kona. Son- ur þeirra hjóna er Benedikt skólastjóri á Laugarvatni, sá er tók við af Bjarna Bjarna- syni fyrrverandi skólastjóra. Annar sonur þeirra hjóna er Jón bóndi í Ausu. Af burt- fluttum Borgfirðingum, sem látizt hafa á sama tímabili, koma mér fyrst í hug: Eyjólf- ur Jóhannsson frá Sveina- tungu, form. Borgfirðingafé- lagsins í Reykjavík og lengi framkvæmdarstjóri Mjólkur- félags Reykjavíkur, dó í apríl- byrjun 1959. Eggert Jónsson frá Ausu dó 1 Reykjavík. Hann var lengi kenndur við Rauðsgil, því þar bjó hann áður en hann fluttist suður, en í Reykjavík rak hann verzlun í mörg ár. Sigríður Andrésdóttir frá Grímsstöð- um dó í Reykjavík, var jörð- uð í Reykholti 30. maí 1959. Hún var ekkja eftir Guðmund Hannesson á Grímsstöðum. Sonur þeirra hjóna, Kristinn, er nú bóndi á Grímsstöðum. Sigríður var í Reykjavík í mörg ár, eftir að hún lét af búskap. Af nýlátnum Islendingum koma mér fyrst í hug: Jónas Kristjánsson læknir, er lengi TILKYNNING FRÁ Manitoba Hospital Services Plan IÐGJALDID HÆKKAÐ Gengur í gildi 1. jonúar 1961 Manitoba Hospital Service Plan iðgjaldið fyrir hvert sex (6) mánaða tímabilið verður: Einhleypor persónur $18.00 Fjölskyldur $36.00 Einstaklingar, sem greiða iðgjöld sín á vinnustað sínum með frádrætti af mánaðar- kaupi sínu, byrja að greiða samkvæmt ofan- greindu verði í júní 1960. Einstaklingar, sem greiða iðgjöld sín á skrif- stofum bæja og sveita, munu byrja að greiða hið hækkaða gjald frá 15. október til 30. nóv- ember 1960. GEORGE JOHNSON. M.O. Minister of Health •nd Public Welfare O. L PICKFRINO Commissionei of Hospitalizotio*

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.