Lögberg-Heimskringla - 16.06.1960, Blaðsíða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 16. JÚNÍ 1960
7
Mfs. Kalrín Elízabet Hillman
23. oklóber 1871 —
19. desember 1957
Á síðari árum hafa öldruð
systkini dáið í Dakota byggð-
inni, Katrín Elizabet Hillman
°g bróðir hennar, Oddur
Sveinsson. Hefir dregizt að
þeirra væri minnzt í íslenzku
blöðunm.
Saga þeirra byrjar á sveita-
heimili í Norður-Múlasýslu á
íslandi, þar sem foreldrar
þeirra, Sveinn Thorsteinsson
°S Sigurbjörg Bjarnadóttir
újuggu með átta börnum sín-
urn. Þar fæddist Oddur 3. júlí
Í869, en Elízabet 23. október
1871. Þröngt var í búi eins og
yíða, neyddust því foreldrarn-
if til að bregða búi og flytjast
með stóra hópnumtil Ameríku
árið 1876. Ferðinni var heitið
til Nýja Islands og þar settist
Ijölskyldan að skammt fyrir
sunnan Riverton. Flestum er
kunnug harmasaga innflytj-
euda á þeirri tíð, ekki sízt
þeirra, sem komu með stóran
kernahóp í eymdina og alls-
Wsið. Strax fyrsta árið dó
ueimilisfaðirinn og ekkjan
fi°ð uppi ein með mörgu
þörnin. Fyrstu árin var hún
þyrr á heimili sínu, en síðar
eftir eins árs dvöl hjá dóttur
finni, Pálínu, í Mikley, flutt
)st hún búferlum, ásamt sex
börnum sínum, til Dakota ár-
|ð 1879 og fékk eignarrétt á
újörð skammt frá Pembína.
ar var fjölskyldan í fjögur
þar til þau eignuðust aðra
újörð skammt fyrir norðan
"fountain, sem varð heimili
^iízabetar mestan hluta ævi
uennar.
Einn dagur í æsku hennar
^ar henni ógleymanlegur.
m vorið 1884 var hún í
arnahóp þeim, er séra Hans
horgrimsen fermdi í nýju
*rkjunni á Mountain, þó
yggingin væri ekki alveg
uilgerð. Fólkið sat á planka-
ekkjum; en ekki dró það úr
elgi dagsins, þar sem í fyrsta
ainn var fermingarathöfn í
yrstu íslenzku kirkjunni í
Ameríku.
Árið 1893 giftist Elízabet
°ni Hillman, ekkjumanni,
a svert eldri en hún. Þeim
j°num varð fjögurra barna
f^ðið; John, bankastjóri í
nnic, N. Dak.; Louis að
°untain og Elízabet, Mrs.
SYSTKINAMINNING
Johann Geir í Eyford byggð.
Magnús, fulltíðamaður, dó ár-
ið 1954. Síðar varð það hlut-
skipti Elízabetar að stunda
mann sinn í gegnum afar
langa banalegu, þar til 1929
að hann fékk hvíld. Gerði hún
það með einstakri þolinmæði
og trúmennsku.
Árið 1931 giftist Elízabet
Rögnvaldi Hillman, ekkju-
manni, sem um langt skeið
hafði búið stóru búi í Mouse
River byggðinni. Eftir stutta
dvöl á bújörð Elízabetar
fluttu hjónin til Mountain,
þar sem þau eignuðust snot-
urt heimili. Þar voru þau þar
til 1951 að þau fluttust til elli-
heimilis byggðarinnar, Borg,
vegna heilsuleysis Elízabetar.
Má heita að hún væri aldrei
frísk þau árin, sem hjónin
dvöldust þar, og var alveg
rúmföst síðasta hálftannað ár-
ið, þar til hún andaðist 19. des.
1957. Hin langvarandi þraut
hennar var bærilegri vegna
aðdáanlegrar aðhlynningar
forstöðukonu Borgar, Guð-
rúnar Olgeirsson og alls
starfsfólksins á elliheimilinu.
Jafnan við hlið hennar var
eiginmaðurinn, Rögnvaldur,
og einnig dóttir hennar, Mrs.
Johann Geir, sem varði öllum
mögulegum stundum til að
þjóna móður sinni með ein-
stakri alúð og nærgætni. Önn-
ur blessun var, að séra Ólafur
Skúlason kom oft til hennar,
og komu hans fylgdi sólskin,
sem stytti daginn og vermdi
sálina.
Dásamlegt eftirdæmi fylgir
endurminningunni um Elíza-
bet Hillmann. Marga mánuði
gat hún enga björg sér veitt
— ekki lyft hendi, en enginn
heyrði hana kvarta. Þolin-
mæði og andlegt þrek ein-
kenndi hana um ævi tíð.
Auk manns hennar og
barna, áður getið, syrgja hana
tvö barnabörn, Robert Hill-
man og Linda Geir. Hún var
jörðuð í grafreit Víkur safn-
aðar á Mountain. Vinur henn-
ar, séra Ólafur Skúlason, flutti
kveðjumál.
Oddur Sveinsson, eins og
áður er getið, kom með for-
eldrum sínum til Nýja íslands
1876, og með móður sinni til
Pembína 1879. Eins og aðrir
frumherjar þurfti hann ungur
að vinna langa daga fyrir lítið
kaup. Eftir að hann kom til
Dakota, vann hann bænda-
vinnu hér og hvar, og ýmis-
legt annað sem að höndum
bar. Það, sem einkenndi öll
hans störf, var skylduræknin
og trúmennskan. Alls staðar
kom hann sér vel.
Hinn 31. desember 1900
kvæntist Oddur Guðnýju
Schram, dóttur Jóseps og
Kristínar Schram, þá búsett
nálægt Hallson. Heimili ungu
hjónanna var tvær og hálfa
mílu norður af Mountain. Þar
fæddust öll þrjú börn þeirra,
Jóseph, Kristín og Sigurbjörg,
jafnan nefnd Bertha. Fyrstu
ár fjölskyldunnar voru sól-
skinsrík, en brátt dimmdi yf-
ir. Móðirin var kölluð burt
1910. Var yngsta barnið,
Bertha, þá aðeins tveggja ára.
Var hún strax tekin til fóst-
urs af föðursystur sinni, Pál-
ínu, og manni hennar, Aðal-
mundi Guðmundssyni að
Garðar. Ekkjumaðurinn, Odd-
ur, reyndi fyrst að halda við
heimilinu með hinum tveim-
ur börnunum, en fimm árum
síðar, 1915, dó Kristín dóttir
hans, ellefu ára gömul. Upp
úr því flutti Oddur til Moun-
tain og var þar unz 1926, að
hann settist að nálægt Garðar
hjá Aðalmundi Guðmunds-
syni, þar sem dóttir hans,
Bertha, var fóstruð. Á því
heimili, í skjóli þessarar góðu
dóttur, var hann til æviloka.
í ellinni varð Oddur Sveins-
son fyrir þeirri þungu sorg að
missa einkason sinn, Swain
Joseph Swainson, sem lézt á
bezta aldri 24. október 1954.
Þessi gáfaði efnismaður, for-
seti American Co’s Mineral
Laboratories í Stanford, Conn.
um mörg ár, var búinn að
ryðja sér braut til náms og
skipaði margar ábyrgðar-
miklar stöður. (Minningarorð
um hann í Lögbergi 12. maí
1955 skýra ýtarlega frá víð-
tæku starfi hans.)
Systkini Odds hafa öll safn-
azt til feðra sinna, eitt á eftir
öðru, Thorsteinn, Björn, Pál-
ína, Kristín og Stefanía. Síð-
astur til hvílu var Oddur, dá-
inn 25. júní 1958, eftir að hafa
verið rúmfastur í tvö og hálft
ár. Löngu leguna bar hann
með stillingu og hugarró, vit-
andi að heimilisfólkið var allt
að gjöra til að honum liði sem
bezt. Hann var jarðsunginn
frá Garðar kirkju; séra Ólafur
Skúlason og séra Eric Sigmar
fluttu kveðjumál.
Dóttir hans, Bertha Swain-
son, hefir áunnið sér almenna
virðingu fyrir hvað mikið hún
hefir lagt í sölurnar fyrir
heimili sitt. Fyrst hjúkraði
hún fóstru sinni, Pálínu Guð-
mundsson, rúmföst síðustu
þrjú ár ævi sinnar, síðan um
tíma fóstra sínum, Aðal-
mundi. Þar að auki var sonur
Pálínu af fyrra hjónabandi,
Sveinn Johnson, sjúklingur á
heimilinu í mörg ár, og nú
seinni árin lagði Bertha mik-
ið á sig til að hlynna að veik-
um föður sínum.
„Mér finnst að æviferill
þinn hafi verið brattur," sagði
ég við hana.
,Oft hefir það verið,“ segir
hún, „en það hefir bætt úr,
að einlægt hefir verið með
mér sérátaklega kær fóstur-
bróðir, Mundi (G. A. Guð-
mundsson), sem hefir borið
Oddur Sveinsson
3. júlí 1869 —
25. júlí 1958
með mér allra byrðar, og hjá
honum hef ég ágætt heimili
í góðri byggð.“
Lauga Geir
Arabískar konur fó
aukin réttindi
Hin gamla aðferð Múham-
eðstrúarmanna við að skilja
við konur sínar með því að
segja við þær: „Ég er skilinn
við þig,“ dugar senn ekki
lengur.
Það er nefnilega áformað
að breyta þessum lögum í
Arabíska sambandslýðveldinu
til þess að styrkja fjölskyldu-
böndin, og munu hin nýju lög
ganga í gildi 1. okt. n. k., en
eftir þann tíma verða eigin-
mennirnir að leita á náðir
dómstólanna til að losna við
konur sínar.
Enn verður það leyfilegt að
eiga fjórar eiginkonur, en sú
fyrsta fær réttindi til að skilja
við manninn, ef hann tekur
fleiri að sér.
Aðeins lítill hluti Egypta og
Sýrlendinga er fjölkvænis-
menn, þrátt fyrir það að hin
1300 ára gömlu lög leyfi þeim
að eiga fjórar eiginkonur.
Lögin eru einnig niðurlægj-
andi fyrir eiginkonur á ýmsan
annan hátt, eins og t. d. með
því að beita má lögregluvaldi
til að þvinga konuna til að
vera heima hjá bónda sínum.
Með hinum nýju lögum get-
ur dómari leyft skilnað að-
eins, ef um ótryggð eða strok
er að ræða.
Nýju lögin meina eigin-
manninum að hýða konu sína
eða ausa yfir hana ókvæðis-
orðum. Ef honum Verður það
á, má veita henni lögskilnað
í sex mánuði — á fullum laun-
um. Ef hann gerir slíkt aftur,
getur hún skilið við hann að
fullu.
Svipaðar 1 a g a breytingar
hafa oft verið umtalsefni í
Egyptalandi, sérstaklega síð-
an byltingin var gerð, 1952.
En byltingarforsprakkarnir
hafa farið rólega í þessar sak-
ir, þrátt fyrir það að þeir h'afa
verið fljótir til að breyta ýms-
um ákvæðum um eignarrétt
og landsetu.
Vísir, 4. mai
Sálrænir fyrirburðir
Frá bls. 5.
hefði hún farið í kirkju, lagt
rósir að fótum uppáhalds
dýrlings síns og beðið hann
að vernda mann sinn.
Maður nokkur fékk óþol-
andi verk í kjálkann allt í
einu, án þess að nokkur orsök
væri til þess. Seinna fékk
hann bréf frá móður sinni og
sagði hún honum frá því, að
einmitt á þessari sömu
stundu hefði hún verið skor-
in upp vegna ígerðar út frá
vísdómstönn.
Konu nokkra dreymdi sama
drauminn á hverri nótt í hálf-
an mánuð. Henni þótti sem
maður hennar, er var flota-
foringi, hefði fengið heimfar-
arleyfi, tekið sér far með flug-
vél, en flugvélin farizt og all-
ir sem í henni voru beðið
bana. Svo leið enn nokkur
tími, nokkrir mánuðir. Þá
fékk flotaforinginn heimfar-
arleyfi. Hann símaði þá til
konu sinnar og kvaðist mundu
koma með flugvél frá Kali-
forníu. Hún bað hann bless-
aðan að gera það ekki, koma
heldur með járnbrautarlest.
Og svo var henni mikið niðri
fyrir, að hann hét þessu.
Hann afþakkaði flugferðina
og tók sér far með lest. Þegar
heim kom, frétti hann að flug-
vélin hefði farizt og allir far-
þegar og áhöfn með henni.
Þannig eru margar sögurn-
ar óvéfengjanlegur vitnis-
burður um sálræna hæfileika
manna, sem eru alveg eðlileg-
ir, en menn skilja þó svo lítt.
I
Framhaldslíf
Fram að þessu hefir hug-
myndin um að maðurinn sé
annað og meira en líkamsvél,
stuðzt að mestu leyti við trú-
arbrögðin. Trúin á einstakl-
ingslíf eftir dauðann er einn
af hyrningarsteinum svo að
segja allra trúarbragða. En
efnishyggjan andæfir þessu
og segir að ekkert sé til fyrir
utan efnisheiminn, ekkert sé
til sem ekki verði vegið eða
mælt í rannsókqjkrstofum. Og
eftir því sem þekking eykst,
aukast og efasemdir og marg-
ir krefjast meiri sannana fyr-
ir framhaldslífi en trúar-
brögðin geta veitt.
Ef öll fyrirbæri væri efnis-
legs eðlis, þá mundi ekki vera
um neitt framhaldslíf að ræða.
En öðru máli er að gegna, ef
fyrirburðirnir eiga ekkert
skylt við efnisheiminn, eins
og t. d. um skyggni og hug-
boð vOg fjölda mörg bréfin
segja frá því, að bréfriturum
hafi allt í einu birzt fram-
liðnir menn, án þess að nokkur
miðill væri nærri, eins og þeir
óskuðu að hafa samband við
hina lifandi.
Rannsóknir okkar um þetta
efni eru enn á byrjunarstigi.
Við verðum að fá miklu fleiri
sögur um að framliðnir hafi
birzt og finna nýjar aðferðir
til þess að ganga úr skugga
um sannleiksgildi þeirra.
Lesbók Mbl. 29. maí