Lögberg-Heimskringla - 22.07.1965, Qupperneq 10
10
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 22. JÚLI 1965
ástæða er til þess að kynna
sér manninn með kostum
hans og göllum. Hann beið
lægra hlut í sjtórnmálabar-
áttunni og uppskar minna en
hann taldi sig eiga rétt á. En
vera má, að þjóðin eigi hon-
um á ýmsa lund meira að
þakka, en almennt hefur ver-
ið viðurkennt. Um það dæmir
sagan á sínum tíma.”
Vissulega er það laukrétt,
að saga Valtýs Guðmunds-
sonar er með mörgum hætti
harla eftirtektarverð; það er
t.d. mjög fágætt og að sama
skapi aðdáunarvert, hve fljótt
honum tókst að brjóta sér
braut úr umkomuleysi til
mennta og komast í virðulega
háskólakennarastöðu. — En
æskuárum sínum hefir hann
lýst á eftirminnilegan hátt í
bréfi til dr. Björns K. Þórólfs-
sonar, sem dr. Finnur hefir
tekið upp í formála sinn, og
drjúgum eykur gildi hans.
Kemur þá að bréfunum
sjálfum, sem bæði eru fróð-
leg og skemmtileg og bera
því vitni, að dr. Valtýr hefir
verið ágætur bréfritari. Jafn-
framt bregða bréfin björtu
ljósi á manninn Valtý Guð-
mundsson, skaphöfn hans og
lífsskoðun. Fæ ég ekki betur
séð, en að dr. Finni hafi tek-
ist ágætlega valið á þeim
köflum úr bréfum dr. Valtýs
til móður hans, stjúpa og
systkina, „sem helzt þóttu
lýsa bréfritara sjálfum og
viðhorfi hans til samtíðar-
manna og samtíðarmálefna
hverju sinni.“
I bréfunum til móður sinn-
ar ræðir dr. Valtýr, að von-
um, sérstaklega um fjöl-
skyldumál sín og önnur
einkamál, en í bréfunum til
stjúpa síns tíðum um íslenzk
stjómmál og önnur opinber
GREY GOOSE BUS LINES LTD.
Serving Manifoba for 37 Yeors
• Special Chartered Bus Rates
• Extra Summer Service Between
Riverton — Gimli and Winnipeg
Phone 786-1427
301 Burnell Sf. Winnipeg 1
Compliments of . . .
R O O S
UPHOLSTERING — DRAPERY SERVICE
FINE UPHOLSTERED FURNITURE
Phone ED 4-0202
ERIC W. ROOS 280 Burrin Ave., West Kildonon
THE MODEL FUR CO.
D. MINUK, PROP.
Fur Coats Made To Order.
Repairing, Remodeling, Relining & Storing
Tel. WHiteholl 2-6619 — Res. JUstice 6-1961
304 KENNEDY ST. WINNIPEG 2, MAN.
COMPLIMENTS OF
SALISBURY HOUSE
COFFEE SHOPS - DRIVE-INS
OPEN 24 HOURS PER DAY
WINNIPEG, KENORA, BRANDON
CONGRATULATIONS . . .
to the lcelandic People on the Occasion
of the 76th Anniversary of their Annual
Celebration Day at Gimli, August 2, 1965.
JOHN LECKIE LTD.
COMMERCiAL FISHING SUPPLIES
640 KING EDWARD ST. Phone SPruce 5-8404
ST. JAMES, MAN.
mál. Fer fjarri því, að þeir
eigi þar alltaf samleið í skoð-
unum; heldur hvor um sig
með einurð fast á sínu, og
auðsætt, að Símon, stjúpi
Valtýs, hefir ekki verið neinn
veifiskati, en greindur maður
og gjörhugull, er bæði var
rökfastur og átti létt með að
færa skoðanir sínar í orða-
búning. Má í því sambandi
minna á eftirfarandi orð úr
einu bréfi dr. Valtýs frá
seinni árum (30. marz 1921):
„Það gerir ekkert, þó við get-
um ekki orðið sammála um
hitt og þetta. Við erum jafn-
góðir vinir fyrir því. Það
vantaði nú bara, að hver
mætti ekki hafa sína skoðun
og sannfæring og halda henni
fram — fram í rauðan dauð-
ann.“
I bréfum þessum ber Vest-
ur-íslendinga, málefni þeirra
og viðhorf til ættjarðarinnar
eðlilega oft á góma, og þar
sem annars staðar eru þeir
feðgar hvergi nærri alltaf á
sama máli. En ljóst er, að dr.
Valtýr kunni vel að meta ætt-
jarðarást íslendinga vestan
hafs, helztu skáld þeirra og
aðra menningarfrömuði.
í bréfum þessum deilir dr.
Valtýr hart á Hannes Haf-
stein og aðra andstæðinga
sína í stjórnmálum, og er
fróðlegt að lesa þau með sam-
anburði við ævisögu Hannes-
ar eftir Kristján Albertsson,
en lokabindi hennar kom ein-
mitt út um sama leyti og um-
rætt úrval úr bréfum Valtýs.
Dr. Finnur Sigmundsson
hefir enn á ný með þessu riti,
sem er fimmta bindi í safn-
,inu íslenzk sendibréf, sýnt
það, hve vel með þessu riti,
sem er fimmta bindi í safn-
inu íslenzk sendibréf, sýnt
það, hve vel honum lætur út-
gáfa slíkra bréfa. Útgáfa
þessa nýja bréfasafns er af
hendi leyst með nærfærni og
smekkvísi; skýringar hans
gagnorðar og lesandanum til
nauðsynlegrar leiðbeiningar
og aukins skilnings á bréfs-
efnunum. Að öllum frágangi
er þessi bók, eins og fyrri
bindi safnsins, einnig hin
vandaðasta og snyrtilegasta,
prýdd mörgum myndum af
dr. Valtý, konu hans og ætt-
mennum.
Formála sínum að þessu úr-
vali úr bréfum dr. Valtýs
lýkur útgefandi með þessum
orðum: „Sagan af stjórnmála-
afskiptum hans er að sjálf-
sögðu ekki fullsögð í þessum
bréfum til vandamanna hans.
En hvað sem segja má um
viðbrögð hans í einstökum
atriðum, mun enginn geta
dregið í efa, að hann hafi af
heilum hug viljað vinna fóst-
urjörð sinni allt það gagn, er
hann mátti.“
Undir þau sanngjörnu og
drengilegu ummæli tek ég
heilum huga. Ástarjátningin
sonarlega og faguryrta til
ættjarðarinnar í kvæði dr.
Valtýs „Töframynd í Atlanz-
ál“ er áreiðanlega sprottin
undan hjartarótum hans, og
fer því ágætlega á því, að upp-
hafserindi hennar er prentað
einkunnarorð þessa úrvals úr
bréfum hans.
Þolinmæðin þrautir vinnur
allar.
CHARLES
RIESS & CO.
FUMIGATORS
SUnset 3-3529
877 Wall St. WINNIPEG
"...we bought
it through
Many families are
launching themselves
into a summer of fun by
financing the boat of
their choice through the
Bank of Montreal
Family Finance Plan.
This low-cost,
life-insured plan is the
sensible way to finance
major purchases of many
kinds for all the family.
Ask for full details at any
branch of “MY BANK’’.
Bank of Montreal
inance
-INSURED LOANS
)
Plan
There are 31 B of M OFFICES in METROPOLITAN WINNIPEG
to serve you
WORKING WITH CANADIANS IN EVERY WALK OF LIFE SINCE 1817