Lögberg-Heimskringla - 22.07.1965, Qupperneq 17
LÖGBERG- LÖGBERG-
HEIMSKRINGLA HEIMSKRINGLA
Eina íslenzka vikublaðið í Eina íslenzka vikublaðið í
Norður Ameríku Norður Ameríku
Styrkið það. Logberg - Heimskringla Styrkið það.
Kaupið það Kaupið það
Lesið það Lesið það
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 22. JÚLl 1965 17
Gleðiríkir endurfundir
FJÓRIR ÆTLIÐIR: Ællmóðirin, Elín Krisimannsson lil
hægri; Jóhanna dóiiir hennar frá íslandi slendur að baki
hennar. Björg dóliir Jóhönnu iil vinsiri og Karen dóttir
Bjargar er fremsi.
Þau hjónin Elín Guðrún
Jónasdóttir og Friðrik Ágúst
Kristmannsson fluttust frá
Ólafsvík á íslandi vestur um
haf 1903 og áttu heima fyrstu
15 árin í Manitoba, en síðan
í Prince Rupert B.C. Elín
missti mann sinn árið 1950 og
hefir síðustu árin dvalið á
heimilinu Höfn í Vancouver.
Hún er nú á fjórða árinu
yfir nírætt, hefir borið árin
vel og er glaðlynd og falleg
eins og myndin sýnir.
Hún varð að skilja dóttur
sína, Jóhönnu, sem var á
þriðja ári, eftir á íslandi og
vonaðist til að geta sent eftir
henni síðar, en árin liðu og
ekki varð af að hún kæmi
vestur og því síður var von
til þess þegar Jóhanna giftist
og hóf búskap með manni
sínum, Jóni Daníelssyni að
Hvallátrum í Breiðafirði. En
sambandið milli þeirra
mæðgna var náið. Þegar
Björg, dóttir Jóhönnu var
fullorðin sendi hún hana
vestur í heimsókn til ömmu
sinnar. Sú ferð varð Björgu
hamingjurík; hún kynntist
manni sínum John Savage
og búa þau nú stórbúi í
Richmond á Lulu Island, B.C.
og eiga þau tvö börn, Karen
og John.
Og svo kom loks hin marg-
þráða dóttir Elínar vestur
ásamt manni sínum í heim-
sókn til dóttur sinnar og móð-
ur í marzmánuði og lýsti
Guðlaug Jóhannesson, þeim
gleðiríku samfundum í bréfi
sínu til L-H 25. marz.
Af börnum Elínar eru, auk
Jóhönnu, fjórir synir á lífi,
allir mikilsvirtir athafna-
menn, þrír búsettir í Prince
Rubert: Hjörtur Rosmann,
eigandi að tveim fluttninga-
skipum; Snæbjörn Skarphéð-
inn í þjónustu fiskimáladeild-
ar stjómarinnar; Valdimar
Daníel forstjóri olíufélags í
Prince Rupert og Jónas
Júlíus, við fiskiðju (niður-
suðuverksmiðju) í Vancouver.
Dr. Páll ísólfsson:
Þróun fónlistarinnar á íslandi
fró fornu fari
Framhald úr síðasta bl.
Eina hljóðfærið, sem þekkt-
ist í landinu — enda þótt það
næði aldrei almennri út-
breiðslu — var Langspilið. En
eftir því sem vitað er, hafði
það einungis diatoniskan
skala, það var því ekki hægt
að leika á þetta hljóðfæri
kromatiskt.
Afleiðingin varð sú, að
mörg lög, sem upprunalega
voru samin í moll breyttust
með þessum hætti í dúr eða
lydiska tóntegund. Það má
því beinlínis rekja til þessa
hljóðfæris þær breytingar
ýmsar, sem orðið hafa á lög-
unum frá sinni upprunalegu
mynd.
Skorturinn á hljóðfærum
leiddi það af sér, að blær
hinna erlendu laga hlaut að
breytast. Sálmalögunum var
iðulega breytt eða þau „um-
samin“ og urðu síðar að hin-
um svokölluðu „gömlu lög-
um“, sem nú er oft talað um.
Áður en vér yfirgefum
kirkjusönginn, skal það tekið
fram, að Grallarinn, sem var
saminn upp úr Graduale Jes-
persens og kom fyrst út 1573,
var bæði sálma- og söngbók,
þar sem nótur fylgdu hverj-
um sálmi. Árið 1794 gerði séra
Árni Þórarinsson, sem síðar
varð biskup á Hólum, það að
tillögu sinni, að Grallarasöng-
urinn væri lagður niður og
nýrri lög valinn í staðinn. —
Þetta leiddi til þess að
Magnús Stephensen kon-
ferensráð gaf út árið 1801
hina svokölluðu aldamóta-
sálmabók. 1 henni eru þrír
sálmar með nýrritíma tón-
skrift, og voru þeir teknir úr
kóralbók Zinks, sem um það
leyti var að koma út. Þessi
sálmabók var lengi notuð, en
oft voru þó gerðar á henni
endurbætur.
Árið 1855 gaf Ari Sæmund-
sen út Leiðbeiningar til þess
að kenna almenningi að leika
á langspil. Þessi bók var
prentuð með bókstafsnótum.
Lögin skrifaði hann aðeins að
nokkru leyti eins og fólk söng
þau, og var af þeim sökum
um litla breytingu að ræða
á þeim. í þessari bók eru 119
sálmar, auk leiðbeininganna.
Það var fyrst árið 1840 að
orgel kom í Dómkirkjuna í
COMPLIMENTS OF . . .
DEMPSEY'S BARBER SHOP
CENTRE ST. GIMLI, MAN.
Hugheilar árnaðaróskir
TIL ALLRA ÍSLENDINGA
Á ÞJÓÐMINNINGARDAGINN
ARNASON ENGINEERING CO.
GENERAL CONTRACTING ENGINEERS
CONGRATULATIONS . . .
To Our Many
Customers and
Friends
You'll be thrilled wit-h our
lorge jtore.
ROBINSON
Department Store
Formerly
R.C.A. STORE
(Retailers Co-Operotive
Association)
Owned and Operoted by
Spencer W. Kennedy
DRY GOODS ond VARIETY STORE
MERCHANDISE
Winnipeg Office: Lot 7, Rosser Rood
Ph. 642-7954
P.O. Box 130, GIMLI, Mon.
PHONE 482-3881
Selkirk Monitoba
Compliments of . . .
DROP INN BAKE SHOP
AND RESTAURANT
Karl and Edith Einarson
Home baked bread, buns, pastry, doughnuts, cakes
including Vinarterta, etc.
Phone 376-2272 Arborg, Mon.
Riverton: Tuesdays and Saturdays
Compliments of . . .
S. A. SIGURDSON & SON
Your Esso Agent and Dealer Engro Fertilizers - Flexi-Tooth
Atlos Tires, Botteries and Accessories
Farm Equipment Filters
Phone 376-2247 Arborg, Man.
Compliments of
JOHANN’S
BEAUTY SALONS
CHATEAU BEAUTY SALON
Modern Air Conditioned Solon
2539 PORTAGE AVE. WINNIPEG
Phone VE 2-0759
JOHANN'S BEAUTY SALON
3rd Ave. Phone 642-5077 Gimli, Man.
Compliments of COMPLIMENTS OF . . .
LAKELAND DAIRIES LTD. WILLOW ISLAND
SELKIRK, MANITOBA ★ White Rock—Historic Site, londing ploce of the first lcelandic Settlers and Birthplace of first child of lcelandic origin born in Manitoba.
S K Y R Avoiloble: WINNIPEG PHONE GL 2-0312 (Direct Line, no Toll Charge) Selkirk and Districts and Gimli FULLY MODERN CABIN MOTEL - FISHING CAMPING - BOATING - PICNIC GROUNDS ARNASON BROTHERS PHONE 642-8849 GIMLI, MAN.