Lögberg-Heimskringla - 05.03.1970, Blaðsíða 1
thjocminjasafnid
REYKJAVIK,
ICELANO . f
i
Hö gberg - ^etmöfer íngla
Stofnað 14. jan. 1888 Slofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 5. MARZ 1970
NÚMER 9
Kveðjur fró íslandi til
Þjóðræknisfélags íslendinga
í Vesturheimi
FRÁ FORSETA ÍSLANDS
Við hjónin biðjum þig að senda þingi Þjóðræknis-
félags fslendinga í Vesturheimi beztu kveðjur og óskir
um gott gengi í heillaríku starfi félagsins.
Kristján Eldjárn.
FRÁ BISKUPI ÍSLANDS
Sendi 51. Ársþingi Þjóðræknisfélagsins alúðar-
kveðjur og blessunaróskir. Votta Þjóðræknisfélaginu
virðingu og þakkir fyrir mikilvæg störf.
Sigurbjörn Einarsson.
FRÁ RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS
Fyrir hönd fslendinga austan ála sendir Ríkis-
stjórn íslands yður beztu kveðjur vina og frænda með
þeirri ósk, að böndin treystist og bræðraþelið vaxi
þannig, að hvorki ryð né sinnuleysi fái grandað þeim
ómetanlegu verðmætum, sem skapazt hafa af hlýju
hjartaþeli einlægrar þjóðrækni.
Ríkisstjórn íslands,
Bjarni Benediktsson
Emil Jónsson Jóhann Hafstein
Ingólfur Jónsson Gylfi Þ. Gíslason
Magnús Jónsson Eggert G. Þorsteinsson.
FRÁ IÐNAÐARMÁLARÁÐHERRA
ÍSLANDS OG FRÚ
Við hjónin minnumst með gleði og þökk þeirra
ógleymanlegu kynna, sem við urðum aðnjótandi við
heimsóknina til ykkar á gullaldar afmælinu. Þeim get-
um við ekki lýst, aðeins munað þau og lifað í endur-
minningu. Við vitum að margháttaður heiður okkur
auðsýndur var ekki verðskuldaður, en okkur þykir
engu að síður vænt um hugarþelið og vináttu ykkar.
Ragnheiður og Jóhann Hafstein.
FRÁ FYRRVERANDI
AMBASSADOR ÍSLANDS OG FRÚ
Sendum Þjóðræknisfélaginu beztu kveðjur og ein-
lægrar óskir um bjarta framtíð.
Oddný og Pétur Thorsteinsson.
Kveðjur
V i ð þökkum ánægjulegt
samstarf á liðnum árum. Heill
og haminigja fylgi störfum á
51. ársþinginu. Sendum öllum
þingfulltrúum innilegar
kveðjur og blessunaróskir.
Þjóðræknisfélag íslendinga
í Reykjavík
Sigurður Sigurgeirsson,
formaður.
Ennþá eru okkur í fersku
minni og ofarlega í huga hin-
ar dásamlegu móttökur sem
við urðum aðnjótandi ykkar
á meðal í ágústmánuði 1968.
Stjórn félagsins, þingfull-
trúum svo og öllum vinum
sendum við innilegar þakkar-
kveðjur og ámaðaróskir.
Pálína Guðmundsdóttir
Sigurður Sigurgeirsson.
Kæru vinir:
Þegar sú stund nálgast er
ég veit að mínir góðu vinir
innan Þjóðræknisfélags ís-
lendinga koma saman til
funda og mannfagnaðar, verð-
ur mér æfinlega hugsað til
ykkar og þeirra gleði- og á-
nægjulegu samverustunda er
ég átti með ykkur síðari hluta
febrúarmánaðar og fyrri hluta
marz 1966.
Þótt liðin séu fjögur ár síð-
an þetta var hefi ég engu
Fimmtugasta og fyrsta ársþing
Þjóðræknisfélagsins
gleymt frá þeim ljúfu mót-
tökum og elskulega viðmóti
sem hvarvetna mætti mér, og
mun heldur aldrei gleymast.
Því langar mig nú til, í
sambandi við þinghald ykkar
nú, að senda ykkur öllum
mínar hjartanlegustu kveðjur
og óskir um bjarta og gleði-
ríka framtíð í ykkar mikils-
verða þjóðræknisstarfi.
Guð blessi Þjóðræknisfélag-
ið og ykkur öll, sem fyrir það
vinna til heilla og’hamingju
fyrir Islendinga vestan hafs
og austan.
Virðingarfyllsí:
Brynjólfur Jóhannesson
leikari.
Við samfögmun ykkur í dag
og dveljum í huganum meðal
góðra vina alla þingdagana —
eins og svo oft endranær.
Þökkum fórnfúst og giftu-
drjúgt starf í þágu íslenzkra
menningarerfða.
„Glatið eigi göfgi málsins,
góðar konur, vaskir menn.
þó að liggi leið á brattann,
langt er fram til nætur enn.“
— E. P. J.
Nokkur undanfarin ár hófst
hið árlega þing Þjóðræknis-
félagsins með guðsþjónustu
sunnudagskveldið á ð u r en
þingið tók til starfa, en vegna
breytingar á þingdögunum,
var það ekki hægt í þetta
skipti og munu ýmissir hafa
saknað þess, en bænastund
hefir ávalt farið fram við
þingsetningu og flutti séra
PhiHp M. Pétursson, menn-
ingarmálaráðherra fylkisins
fallegt ávarp á föstudagsmorg-
uninn, sem birt er á ritstjórn-
arsíðu þessa blaðs.
Sálmar eru sungnir við
þessar guðræknis athafnir, og
í fjöldamörg ár hefir verið
sunginn sálmur séra Matthí-
asar, Faðir andanna, yndis-
legur sálmur, en ég hefi aldrei
fellt mig við niðurlagsorðin,
„Vertu oss fáum, fátækum
smáum, líkn í lífstríði alda.“
Þessi síðustu orð eru ekki
beinlínis upplífgandi svona í
byrjun þingstarfa.
1 þetta skipti voru sungnir
tveir sálmar eftir séra Helga
Hálfdánarson og er gott að
breyta til} annar þeirra vzn
hinn fallegi og vinsæh sálm-
ur, Þín miskun, Ó Guð er sem
himininn há og endar annað
versið með því að biðja Guð
að gleyma ekki „aumingjans
kveini.“ Það er vitaskuld
lagður víðtækur skilningur í
þessi orð, en ekki er neitt
hressandi við þau. Það mun
nú talið goðgá næst að minn-
ast á þetta, en þá verður að
taka því.
Gunnar Erlendsson annað-
ist undirleik við sönginn, eins'
og hann hefir gert með prýði
í fjöldamörg ár.
Það var síður en svo að um
kveinstafi væri að ræða á
þessu þingi og menn litu yfir-
leitt björtum augum á fram-
tíðarstörf félagsins.
Skúli Jóhannsson varafor-
seti félagsins stýrði þingi
skörulega. Hægt var að ljúka
öllum þingstörfum á tveim
dögum með því að breyta of-
urlítið gömlum venjum. í stað
þess að skipa fólk í nefndir
til að athuga sérstök mál,
voru þau lögð beint fyrir
þingheim og afgreidd strax.
FULLTRÚAR FRÁ
DEILDUM Á ÞINGI
Hanna og
Ágúst Guðmundsson
Framkvæmdast-jóri
verkfræðingadeildar
Richard Beck Jr.
Stórblaðið „T h e Denver
Post“ í Denver, Colorado,
flutti nýlega þá frétt, að
Sundstrand verksmiðjufélag-
ið, sem rekur hið mikla fyrir-
tæki Sundstrand Aviation Di-
vision þar í borg, hafi ákveð-
ið að auka starfsemi sína með
stofnun nýrrar rannsókna- og
framleiðsludeildar. S k ý r ð i
blaðið ennfremur frá því, að
Richard Beck Jr., vélaverk-
fræðingur, yrði framkvæmda-
stjóri hinnar verkfræðilegu
hliðar á starfsemi deildarinn-
ar. Fer blaðið eftirfarandi
orðum um hið nýja starf hans
og starfsferil hans hjá verk-
smiðjufélaginu:
„Richard Beck has been
named manager of engineer-
ing for the new Denver-based
division. He heads a large
staff of engineers who will
work on new product devel-
opment.
Beck has served Sundstrand
Division here since 1967 as
manager of development eng-
ineering. He joined the firm
in 1962 as a research engineer
and participated in develop-
ing the high speed Sundyne
pumps. He holds a degree rn
mechanical engineering from
the University of North Da-
kota and earned a Masters
degree in mechanical engi-
neering at Cornell Univer-
sity.”
Eins og getið var í Lögb.-
Heimskr. á sínum tíma, vann
Richard sér mikinn náms-
frama á skólaárum sínum, en
hann er nýorðinn 37 ára.
Ofannefnd blaðafrétt ber því
vitni, að hann hefir einnig
átt sinn þátt í vélauppfinning-
um í þágu verksmiðjufélags
þess, er hann starfar hjá.
Hann er kvæntur amerískri
konu Virgínu að nafni, af
þýzkum ættum. Eiga þau tvo
syni, Richard Allan, 9 ára, og
Robert Martin, 6 ára.
Frón, Winnipeg.
Jakob F. Kristjánsson,
Kristín R. Johnson,
Páll Hallsson,
Skúli Jóhannsson,
Gunnar Baldwinson.
Norðurljós, Edmonton, Alta.
G. C. Thorvaldson.
Esjan, Arborg, Man.
Herdís Eirikson,
Gestur Pálsson,
Stefán Stefánson,
Kristín L. Skúlason.
Lundar, Lundar, Man.
Mrs. Ingibjörg Rafnkelson,
Snorri Rögnvaldson.
Brúin, Selkirk, Man.
Mrs. Christine Stefánson,
Mrs. Lillian McKeague.
Báran, Mountain, N. D.
Dr. Richard Beck,
Mrs. Margrét Beck.
ísland, Morden, Man.
Thomas Thomasson.
Gimli, Gimli, Man.
Mrs. S. A. Sigurdson,
Stefán Stefánson,
Mrs. L. Stevens,
Mrs. Lára Tergesen. k
Fjöldi utanbæjargesta sótti
þingið og kveldsamkomumar.
Framhald í næsta blaði.