Lögberg-Heimskringla - 19.03.1970, Side 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. MARZ 1970
7
' FIMMTUGASTA
OG FYRSTA ÁRSÞING
Framhald af bls. 5.
ir. Þá má geta þess að Páll
er jafnframt ritari Fróns og
formaður byggingarnefndar
félagsheimilisins en þar hef-
ur hanin unnið frábært starf.
Formaður fálagsmálanefnd-
ar, Baldur H. Sigurðsson, var
áður vara-fjármálaritari. Því
er ver vegna anna gat Baldur
H. Sigurðsson ekki sótt stjórn-
arfundi eins reglulega og
æskilegt hefði verið, hinsveg-
ar vann hann ágætt starf við
að safna auglýsingum í sein-
asta tímaritið, og á seinasta
starfsári að innheimta það,
sem útistandandi var fyrir
þær. Þá er rétt að geta þess
að Baldur H. Sigurðsson vann
vel fyrir Frón, en þar hafði
hann yfirumsjón og sá um
útsendingu dreifibréfa vegna
fjársöfnunarinnar til félags-
heimilisins.
Um vara-forseta, Skúla Jó-
hannsson, er að segja, að ekk-
ert gerðist sérstakt eftir að
honum var falið að gegna
störfum forseta til næsta
þings. Þó mætti geta þess að
hann fór ásamt prófessor Har-
aldi Bessasyni til Lundar á
landnemahátíðina, sem þar
var haldin hinn 6. júlí s. 1.
hélt prófessor Haraldur
Bessason þar prýðilegt erindi,
en um ræðu vara-forseta var
það helzt markvert, að þar
kom fram hugmyndin um
Vinafélag Lögbergs-Heims-
kringlu. Hefir sú hugmynd
mætt sæmilegum skilningi og
velvilja Vestur-íslendinga og
mun nú þátttaka vera komin
á annað hundraðið. En hug-
myndin er sú, að allir sem
vilja tilheyra þessu Vinafélagi
gefi eitt cent á dag, umfram
venjulegt áskriftargjald til
styrktar blaðinu.
Snemma á s. 1. starfsári
samþykkti stjórn Þjóðræknis-
félagsins að veita 500 dollara
styrk Lögbergs-Heimskringlu,
og á seinasta stjórnarfundi
hinn 14. þ. m. var aftur sam-
þykkt að veita jafnháa upp-
hæð til styrktar blaðinu. Þá
var um það talað að hafa
þennan styrk árlega og að
upphæð allt að 1000 dollur-
um, svo framarlega að fjár-
hagur félagsins leyfði. Verð-
ur að telja þetta hyggilega
hugsað, því vart gæti Þjóð-
ræknisfélagið á annan eða
betri hátt varið því takmark-
aða fjármagni, sem það hefir
yfir að ráða. Við verðum að
g e r a okkur ljóst að það
er einmitt blaðið Lögberg-
Heimskringla, sem er okkar
fjöregg og okkur ber að varð-
veita umfram allt annað.
Þó að kaupendahópur blaðs-
ins sé ekki stór, fer það ótrú-
lega víða og til hinna fjarlæg-
ustu og afskekktustu staða, 1
nokkrum borgum og heilum
byggðarlögum er það svo að
aðeins er um einn kaupenda
*að ræða. Það fer því ekki á
milli mála, að það er blaðið
Lögberg-Heimskringla, s e m
bindur okkur betur saman en
nokkuð annað, bæði hér í
þessari álfu og við heimaland-
ið. Hugsjónamálum okkar
hefir blaðið alltaf verið trúttv
enda skyldan okkar nú að slá
skj aldborg um blaðið og
tryggja áframhaldandi útgáfu
þess.
Þareð síðar hér á þinginu,
verður sérstaklega rætt um á
hvern hátt L.-H. geti fyllt það
skarð, er varð þá tímaritið
hætti að koma út ræði ég
þetta ekki nánar hér. Að lok-
um vildi ég svo þakka útgáfu-
nefnd blaðsins og ritnefnd
þess, fyrir okkar hönd, ágætt
starf á liðnu ári, en um fram
allt vildi ég þó þakka ritstjór-
anum frú Ingibjörgu Jónsson,
hið frábæra starf, sem hún
hefir unnið fyrir blaðið.
Hinn 17. júní á s. 1. ári varð
íslenzka lýðveldið 25 ára, það
fór vel á að fulltrúi Þjóðrækn-
isfélagsins á þessum merkis
degi, var fyrrverandi forseti
þess Dr. Richard Beck. Flutti
hann þar kveðjur okkar og
árnaðaróskir til íslenzku þjóð-
arinnar. Rómuðu íslenzku
blöðin mjög ræðu Dr. Becks,
enda er hann jafnan kærkom-
inn og aufúsugestur þá hann
heimsækir gamla landið. Þá
ferðuðust þau Becks hjónin
all víða um ísland í þessari
ferð, og kom Dr. Beck víða
fram á mannfundum og flutti
kveðjur okkar.
Það kom í hendur stjórnar-
innar, að úthluta fyrir
hönd menntamálaráðuneytis
íslands, styrk, sem ætlaður er
erlendum stúdentum til náms
við Háskóla Islands. Varð
herra Richard Hurdal, fyrir
valinu, samkvæmt tilmælum
ráðgjafa félagsins um menn-
ingar og menntamál prófess-
ors Haraldar Bessasonar.
Ég vildi svo að lokum, fara
nokkru morðum um Félags-
heimili Fróns. Stjórn Þjóð-
ræknisfélagsins gaf f y r i r
nokkru 200 dollara í bygging-
arsjóðinn, en til þessa hafa
safnast um 4 þúsund dalir af
þeim 5 þúsund, sem stjórn
Fróns fór fram á þá hún hóf
fjársöfnunina, er hún og þess
fullviss að það, sem á vantar
mimi fljótlega berast svo
hægt verði að ljúka við verk-
ið. Það var sérstaklega á-
nægjulegt í sambandi við
þessa söfnun, hversu margar
og góðar gjafir bárust að, frá
fjarlægum borgum og byggð-
arlögum og sýndi á. ljósann
hátt hversu sterkum böndum
við Vestur-íslendinar erum
bundnir, og rausn þeirra og
fórnfýsi frábær þá er góð mál
kalla. Með komu Félagsheim-
ilisins er að rætast hálfrar
aldar hugsjónamál, en það
var á einum af fyrstu fund-
um Fróns, sem séra Adam
Thorgrímsson ræddi um hús-
næðismál okkar og hversu
það væri nauðsynlegt félag-
inu að hafa húsnæði til um-
ráða, til þess að það gæti hald-
ið uppi þróttmikilli starfsemi.
Okkur er ljóst að allt er þarna
í minni stíl en frumherjamir
hefðu kosið. En ég vildi segja,
að þó að þama sé ekki hátt
til lofts né vítt til veggja, er
öllu vel fyrir komið, við höf-
um eignast fundarsal, sem
rúmar yfir 50 í sæti, um bóka-
safnið og tímaritin fer nú bet-
ur en áður var, og nokkur
hluti minjasafnsins er nú
kominn í smekklega sýninga-
skápa. Næstu ár munu sanna
hvílík lyftistöng þessi bætta
aðstaða á eftir að vera félag-
inu, og er það von mín að
starfsemin fái nú blómgast
betur en nokkru sinni áður.
Að lokum vildi ég svo
þakka starfsmönnum mínum
innan nefndarinnar þeirra á-
gætu störf fyrir félagið, en
persónulega þakka ég fyrir
mjög ánægjulegt samstarf.
Ég þakka svo fyrir góða á-
heyrn, ög vona að þetta þing
og störf þess megi bera giftu-
ríkan ávöxt, og bið svo þing-
fulltrúa að taka til starfa.
Minnist
BETEL
í «rfðaskróm yðar j
VIKING GIFT SHOP
698 SELKIRK AVENUE
WINNIPEG
Importers of Wooden
Shoes and Scandinavion
Articles
Business Hours Monday to
Thursday:
1 p.m. to 6 p.m.
Friday—1 p.m. to 9 p.m.
Saturday—9 a.m. to 6 p.m.
„Mér finnst sómi og ánægja að vera canadízkur ríkisborg-
ari þó ég sé ekki fæddur hér.“
„Síðan ég gerðist ríkisborgari í fósturlandinu sem ég kaus
mér, hefi ég notið meðvitundar um að eiga rétt til að taka
fullkominn þátt í þróun þessa feikna frelsis- og framtíðar-
lands.“
„Canadízka flaggið er nú mitt eigið flagg og ég nýt með
fögnuði míns trausta jafnréttis við alla sem það blaktar
fyrir, til að njóta kosta landsins og rækja skyldur mínar
við það.“
Áttu rétt til að njóta fríðinda, og ertu reiðubúinn að taka
á þig skyldur sem canadízkur ríkisborgari? Ráðgastu um
það við næstu skrifstofu Canadian Citizenship Court. Þar
verður þér fúslega hjálpað, hvort sem það er í: HALIFAX,
MONCTION, MONTREAL, OTTAWA, SUDBURY, TOR-
ONTO, HAMILTON, ST. CATHERINES, KITCHENER,
LONDON, WINDSOR, WINNIPEG, REGINA, SASKA-
TOON, CALGARY, EDMONTON, eða VANCOUVER. Þú
getur einnig skrifað til: Registrar of Canadian Citizenship,
Secretary of State Department, Ottawa.
“Ég er
canadízkur
ríkisborgari
af eigin
hvötum!”
GOVERNMENT
OFCANADA
l+l