Lögberg-Heimskringla - 23.04.1970, Síða 1
I
T*HJODM I NJASAf N I 0,
R£YKJAVIK,
ICELAND.
Hö gberg - Hetmöfer tn gla
Sloínað 14. jan. 1888 Slofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. APRÍL 1970 9 NÚMER 16
Heilbrigðismálaþingið í Winnipeg
í tilefni þessa mikla heilbrigðismálaþings, sem haldið
verður { Centennial Hall dagana 26-30 apríl birti Winnipeg
Tribune heilsíðu frásögn í laugardagsblaðinu um þingið og
um frumkvöðul þess, Dr. P. H. T. Thorlakson. Fréttaritar-
inn, Manfred Jager, hefur haft tal af ýmsum um Dr. Thor-
lakson og komst að því, að hann hefir ávalt staðið í ýmis-
konar stórræðum og unnið með lífi og sál að öllu því, sem
hann hefir beitt sér fyrir, þannig að allir undrast yfir starfs-
þreki hans.
„Það sem ég hefi áhuga fyrir þreytir mig ekki“ hefir
hann eftir lækninum.
„Hann er stórbrotinn eins og Island, landið, sem honum
þykir svo vænt um og er íslendingur í húð og hár þótt hann
sé fæddur í Norður Dakota. Það er ekki auðvelt að skilja
hið norræna eðlisfar hans en allir sem kynnast honum vel
bera djúpa virðingu og aðdáun fyrir honum.“
Fréttaritarinn segir frá hinni ríku kímnisgáfu læknisins
og fleira skemmtilegu en þegar hann skellur á hainn heitinu
„Grand old man of medicine“ þá skeikar honum hraparlega,
þVí engum mun detta aldur í hug, sem þekkir Dr. Thorlak-
son; því hugmyndaflugið, áhuginn, starfsgleðin, kímnin og
jafnvel útlit hans hefir engum breytingum tekið.
Á síðastliðnum tveim árum hefir Dr. Thorlakson átt
sambönd við um 20 lönd, sem sanda munu 500 fulltrúa á
þingið, og um 500 manns frá borgum Og byggðum í Canada
eru væntanlegir, og svo fjöldi fólks úr Winnipegborg og
umhverfi.
Svo sem skiljanlegt er, er mikill kostnaður við þetta
heilbrigðismálaþing, en margir munu vilja sækja það þótt
þeir hafi ekki sambönd við heilbrigðismál. Er gert ráð fyrir
að ýms stórfélög kaupi fjóra aðgöngumiða fyrir $120 sem er
$30 fyrir hvem og geta þeir svo sótt þingið eftir vild — allt
nema lokasamsætið, sem er vitaskuld aðallega fyrir fulltrú-
ana.
Victor B. Anderson látinn
Viclor Björn Anderson lézt
að heimili sínu í Campbell
River, B.C., 14 apríl 1970, 88
ára að aldri. Hann kom mikið
við sögu Winnipegborgar; var
bæjarráðsmaður í 23 ár. Ber
það vott um vinsældir hans
hve oft hann var endurkosinn.
Lengi var hann virkur með-
1 i m u r í verkalýðsfélaginu,
Trade and Labor Board í
Winnipeg. Hann var þrentari
að iðn og var um langt skeið
Bréf frá Séra
Robert Jack
formaður í prentsmiðju Col-
umbia Press félagsins, sem
prentaði Lögberg.
Það mun hafa verið árið
1953 að Victor lét af störfum
og fluttu þau hjónin þá vest-
ur að hafi. Auk konu hans,
Nellie, lifa hann þrír synir,
Cecil í Winnipeg, Victor O. í
Campbell River og Claude í
Victoria, B.C. Barnabörnin
eru átta og barna-barnabörn-
in tíu. Ennfremur systir hans,
Mrs. Emily Thorson, sem
lengi veitti forustu í stjórnar-
nefnd heimilisins Höfn.
Tjörn, Vatnsnesi,
V.-Hún., Iceland,
14. apríl, 1970.
Kæra Ingibjörg
og lesendur L.-H.
Marzmánuður kvaddi okk-
ur eins og ljón með hríðar-
veðri og kulda. Apríl heilsaði
okkur með þýðu og hita þó
að snjórinn sé ekki alveg far-
inn af túninu, er hann samt
að hverfa smátt og smátt, því
hann var mikill. En því mið-
ur er ísinn ekki mjög langt
frá, en ef vindu: inn heldur
áfram að sunnan má búast við
að hann fari.
Þessi mikli hafís hefur ver-
ið bændum, og jafnvel öðr-
um, til bölvunar síðustu ár
og vonandi að hann láti okk-
ur í friði núna. Frostið er nú
að fara úr jörðinni og eru
vegirnir ákaflega blautir og
mjúkir að erfitt reynist að aka
á þeim.
Við höfum hér starfandi á
Vatnsnesinu slysavarnarfélag
sem heitir Vorboðinn og var
aðalfundur þar haldinn í gær
á Illhugastöðum. Frú Jónína
sem er nú blind og ekkja
Guðmundar Arasonar 'afkom-
andi Natans, sem var myrtur
á Illhugastöðum árið 1888,
minnir mig er formaður fé-
lagsins.
Frú Jónína geymir marga
merkilega hluti á Illhugastöð-
um, og meðal þeirra er karfa
sem Fjalla Eyvindur bjó til
á sínum tíma. Á veggnum í
stofunni hanga margar gaml-
ar myndir, og er ein þeirra
af manni nokkrum sem Eyj-
ólfur hét og sem fór frá
Vatnsnesi með konu sinni og
ellefu börnum um 1870 til
Utah.
Þessi Eyjólfur var sonur
Guðmundar Ketilssonar,
bi'óður Nathans. Börn þeirra
hjóna voru eiginlega tólf og
var eitt eftir á Vatnsnesi,
stúlkubarn sem síðar var
móðir Gests Guðmannssonar
Framhald á bls. 5.
Hundrað ár í Vesturheimi
Þessi stórmerka kvikmynd, sem Dr. Finnbogi Guðmundsson,
fyrrv. prófessor við íslenzku deildina í Manitoba háskóla, en
nú Landsbókavörður í Reykjavík, lét gera verður sýnd í
Manitoba eins og hér segir:
Selkirk, April 23, (Icel. Hall beside Luth. Church)
Gimli, April 24 (George Johnson Gymnatorium)
Arborg, April 25 — Federated church
Lundar, April 29th, Community Hall
Morden, May lst, 1 — 6 Hall
Mountain, May 2, Community Hall
Winnipeg, May 5th, Parish Hall F. L. Church.
Kvikmyndin er í litum ög hefst á kafla frá íslandi, þar sem
sýnd er fjölskylda, sem er að týgja sig til vesturfarar, eins
og maður getur hugsað sér, að það hafi gerzt á hinni öldinni.
Sá kafli er tekin norður í Skagafirði.
Myndin fékk sérstaklega góða dóma, þá hún var sýnd
á íslandi, enda þar talin algjört listaverk.
— Skúli Jóhannsson.
Þrír úr Fálkaliðinu fræga. er sigraði í ísknatlleik á
Olympíuleikunum í Antverpen 1920 — (sjást í kvikmyndinni).