Lögberg-Heimskringla - 18.06.1970, Blaðsíða 1
llögberg-Jletmökringla
Sloínað 14. jan. 1888 Slofnað 9. sept. 1886
^ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 18. JÚNÍ 1970_<*fgf|Sfc> 9_NÚMER 24
600 People Honor Dr. Bardal
t*
r°m left to right: Dr. P. H. T. Thorlakson, Mrs. S. Bardal,
Dr. S. Bardal. Mrs. Thorlakson.
SHOAL LAKE (Special) — May 23 was not an official
lQliday here but to more than 600 people it was “Dr. Sig
Bardal Day.”
To mark the 50 years of service he has given to the
. Ooal Lake hospital area a testimonial dinner and commun-
gathering was held in his honor.
Members of hospital boards, village and rural councils
joitied with medical associates and friends at a banquet in
ne Buffalo Plains Inn, with 175 people attending.
John Hepworth, vice-chairman of the hospital board,
^as master of ceremonies and greetings came from Mayor
• S. McLean, Reeve Mike Antonation of the rural council,
r- J. E. Hudson, of the Hamiota Medical Group, and Dr.
chmidt representing the Manitoba Medical Association.
Guest speaker was Dr. Paul H. T. Thorlakson of Win-
tuPeg, who had practised in Shoal Lake for a short while
atld Was succeeded by Dr. Bardal.
Dr. Bardal began his practice in 1920 and over the 50
^ears has served this community. Today he carries on his
P^actice with offices in the hospital.
He has been an ardent sportsman, member of the curl-
lng club, an active member of Lakeside Golf Club. Fratern-
% he is a member of Shoal Lake Masonic Lodge.
In 1930 he married Miss Isabel Leiterman, RN. Mrs.
ardal has taken an active part in the community affairs,
nited Church Women and York Chapter OES.
The overflow gathering at the Ukrainian Hall follow-
the banquet is indicative of the esteem in which the
C°uple is held.
Framhald á bls. 2.
FRÆGUR HOCKEY LEIKARI
Th
e: a°*nas (Tom) Johnson var
af þremur, sem hlaut
^ 11 ^ikla heiður að vera
t 11111 í National Hockey
Hall of Fame. Hinir
Qa^,Cecil Henry Dye og Bill
Jadsb
y> sem eru einnig nafn-
togaðir garpar í hockey.
Tom var 15 ár í National
Hockey League og 1950 var
hann fenginn í hið vaska
hockey lið; Montreal Cana-
diens, sem „full time defence-
man“. Eftir 13 ár varð hann
fyrir því slysi að meiðast á
auga, en þá fengu Boslon
Bruins hann. Eftir að leika
hockey með þeim í 2V2 ár
slasaðist hann á fótlegg, og
var þá skipaður aðstoðar
stjórnari og þjálfari fyrir
Boston Bruins.
Þessi frækni íþróttamaður
er kominn af traustum ís-
lenzkum stofni. Afi hans
Kristján Jónsson var í fimm
manna nefndinni sem fór til
Manitoba árið 1875 til að velja
nýlendusvæði fyrir íslend-
inga og kusu þeir svæðið við
Winnipegvatn — Nýja ísland.
Landið sem Kristján valdi sér
var Lundi á Gimli.
Eftir hömungar fyrstu ár-
anna þar, fóru Kristján og
Sigurður Kristófersson í
landaleit á ný og námu fyrstir
íslendingar lönd í Argyle —
1880. Kristján bjó lengst af í
Baldur og var forustumaður í
sinni byggð. Hann var albróð-
ir Hon. Thomas H. Johnson
dómsmálaráðherra í Manitoba.
Þau hjónin Kristján Jóns-
son og Arnbjörg kona hans
áttu tvo syni og tvær dætur
og nefndu þau annan dreng-
inn Thomas. Hann gaf sig
nokkuð að íþróttum, sérstak-
lega curling. Hann er nú lát-
inn fyrir nokkru, en ekkja
hans, Dora (Landy) Johnson
á heima hér í borg og er þessi
frægi hockey leikari, Tom
Johnson, sonur þeirra.
Hockey kappinn Tom John-
son giftist stúlku frá Mon-
treal, Doris Bradner og þau
eiga fimm ára gamlan son,
sem einnig ber nafnið Thom-
as Johnson.
Doktor í
Hon. Philip M. Peiursson D.D.
Meadville pj'estaskólinn,
sem er í sambandi við Chic-
ago háskólann, sæmdi Hon.
Philip M. Pétursson doktors-
nafnbót við skólaslitin 8. júní,
en þetta er 125ta afmælisár
MINNING:
Salome Halldorsson
F. 29. des. 1887 — D. 3. júní, 1970
Hún mun hafa verið fyrsta
barnið af íslenzkum ættum,
sem fæddist í Alptavatns-
byggðinni en þangað komu
íslendingar f y r s t sumarið
1887. Foreldrar hennar voru
landnámshjónin Halldór Hall-
dórsson og Kristín Pálsdóttir
frá Lundar bæði ættuð úr
ísafjarðarsýslu. Börnin voru
tólf, átta dætur og fjórir syn-
ir, öll nú til grafar gengin.
Ekki var það einungis að
S a 1 o m e væri frumburður
sveitar sinnar heldur varð
hún fyrsti nemandinn þaðan
að ljúka háskólanámi en það
var árið 1910. Námsferill
hennar við Wesley College í
Winnipeg var hinn glæsileg-
asti og hlotnaðist henni ýms
heiður. Meistara prófi lauk
hún nokkrum árum seinna.
Þá átti það fyrir henni að
liggja að verða fyrsta og
hingað til sú eina, kona af
íslenzkum ættum að vera kos-
in á þing Manitobafylkis. Þar
átti hún sæti tímabilið 1936
til 1941 sem þingmaður St.
George kjördæmis og fylgj-
andi Social Credit flokksins.
Um stjórnmálaferil Salome
verður hér ekki fjölrætt.
Flokkur hennar átti lítið fylgi
á þingi og á enn. Samt reynd-
ist Salome honum trú eins og
öllum málefnum, sem hún lét
sig skifta og vann sífellt. að
eflingu hans. Sat hún í þeirri
sveit jafnan hægra megin og
verður naumast lengra kom-
ist í þá átt innan kanadískra
st j órnmálasamtaika.
Salome er nú minnst sakir
persónulegs ágætis og fram-
úrskarandi kennara hæfileika,
en kennsla var hennar ævi-
starf.
Eftir að hún lauk námi
kenndi Salome víðsvegar á
miðskólum fylkisins en bezt
er hún þekkt fyrir störf sín
við Jóns Bjarnasonar skóla.
Þar kenndi hún ein átján ár
og stjómaði honum í eitt ár.
Á þessu tímabili nutu fleiri
hundruð nemenda kennslu
henniar og mun sá nemandi
vandfundinn, sem ekki minn-
ist hennar með djúpu þakk-
læti og virðingu. Hún var um-
fram allt ætíð boðin og tilbú-
inn til þess að hjálpa þeim
sem helzt þurftu hjálpar við.
Vist eru þeir margir sem
Framhald á bls. 2.
guðfræði
skólans. Thorey kona hans og
Philip sonur þeirra og kona
hans fóru einnig suður til að
vera við þessa virðulegu at-
höfn.
Séra Philip lauk námi í
guðfræði við Meadville skól-
ann 1929. Margir aðrir Islend-
ingar hafa útskrifast frá þess-
um prestaskóla; þar á meðal
Dr. Rögnvaldur Péetursson,
föðurbróðir Dr. Philips, og
þeir prestarnir Jóhann P. Sól-
mundsson, Guðmundur Áma-
son, Albert Kristjánsson, Sig-
urjón Jónsson, Helgi S. Borg-
ford, Emil Guðmundsson og
séra Friðrik A. Friðriksson
stundaði þar nám veturinn
1928.
Við óskum Dr. Philip M.
Pétursson til hamingju með
þennan heiður sem honum
hefir nú verið veittur. — I. J.
Fréttir fró fslandi
HANDRITIN Á
12 MILLJARÐA
Á k v e ð i ð hefur verið að
málið um skaðabótaskyldu
vegna afhendingar handrit-
anna verði tekið fyrir hæsta-
rétt Danmerkur frá 30. nóv-
ember til 4 desember n. k.
Handritin eru sögð metin á
6—12 m i 11 j a r ð a íslenzkra
króna.
Morgunblaðið.
* * *
LÆKNANEMI í FANGELSI
AF TRÚARÁSTÆÐUM
Fátítt er að íslenzkir borg-
arar verði að sæta fangelsi af
trúarástæðum, en slíkur at-
burður átti sér samt stað í
Reykjavík. Málsaðili fór í
fangelsið að eigin ósk, og eru
nánari tildrög eftirfarandi.
í gærmorgun kl. 9 hófst við
Háskóla íslands próf í efna>-
fræði hjá læknanemum, og
gengust um 95 nemar undir
prófið. Einn læknanemanna
fékk á hinn bóginn að taka
prófið kvöldið áður, og var
ástæðan sú, að hann er að-
ventisti og samkvæmt trúar-
sannfæringu sinni ber honum
að halda laugardaginn heil-
again.
Háskólayfirvöldum b a r s t
ekki vitneskja um þennan
annmarka á prófdegi fyrr en
um seinan var orðið að færa
prófdaginn til. Samkvæmt
prófreglum var heldur ekki
kleift að leggja sérstakt próf-
verkefni fyrir þennan nema,
og því varð það úr, að hann
fékk heimild til þess að taka
prófið degi áður, eftir að hafa
lagt fram skriflega ósk þess
efnis, að strax að prófi loknu
Framhald á bls. 3.