Lögberg-Heimskringla - 16.07.1970, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 16.07.1970, Blaðsíða 1
 THJODMtNJASAFNin REYKJA V | K ' ÍCELAND. # Xö gberg - Hetmökringla Siofnað 14. jan. 1888 Siofnað 9. sepi. 1886 84. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 16. JÚLÍ 1970 __<*gjg|8». q_____ NÚMER 28 Hörmulegur atburður (Því miður hafði blaðið ekki handbærar myndir af frú Sigríði Björnsdóiiur og Benediki litla Vilmundarsyni). Sá hörmulegi atburður varð á íslandi aðfaranótt þess 10. júlí, að forsætisráðherra íslands, dr. Bjami Benedikts- son, frú Sigríður Björnsdóttir kona hans, og tveggja ára dóttursonur þeirra Benedikt Vilmundarson, fómst í elds- voða, er sumarbústaður forsætisráðherra við Þingvallavatn brann til grunna. Á íslandi ríkir nú þjóðarsorg, og hvar sem ísland eða íslendingar eiga ítök í hugum fólks eru menn harmi slegnir vegna þeirra válegu skeyta, sem nú hefir verið stefnit að íslenzkri þjóð. Á þetta ekki sízt við um íslendiniga í Vestur- heimi, sem em bundnir íslandi margvíslegum böndum. Þess er skemmst að minnast, að dr. Bjarni forsætisráð- herra og kona hans, frú Sigríður, þekktust boð íslendinga- dagsnefndarinnar í Manitóba um heimsókn til Kanada sum- arið 1964. íslendingadagsnefnd átti samvinnu við Þjóðrækn- isfélagið um þá heimsókn, og að loknum Islendingadegi ferðuðust þau hjónin og Björn sonur þeirra í fylgd með aðalræðismanni Gretti L. Johannson og frú um vesturhéruð Kanada. Þau vom aufúsugestir alls staðar og merkir full- trúar þjóðar sinnar, og tókust á ferðum þeirra um Kanada mörg og ánægjuleg kynni, sem héldust síðan. Mjög var eftir- tektarvert, hve glöggur forsætisráðherrann var á sléttu- Islendingana gömlu, þessa römmu Islendinga á þá gömlu og góðu vísu, en þessa menn hafði hann í óeiginlegum skiln- ingi átt að fornkunningjum lengi, svo innlifaður var hann íslenzkri þjóðarsál eins og hún var á síðasta fjórðungi aldar- innar sem leið. Eftir heimkomuna lét svo forsætisráðherr- ann ekkert tækifæri ónotað að tala máli vestanmanna bæði í ræðu og riti, og sýndi í þeim efnum bæði drengskap og góðgirni. Dr. Bjarna Benediktssonar verður minnzt á Islandi sem eins einarðasta stjórnmálamanns aldarinnar. Hann hlaut mikl- ar gáfur í arf, og hann ólst upp á rammíslenzku heimili, þar sem stjórnmálaleg farsæld Íslands var jafnan ofarlega á baugi, en faðir hans Benedikt Sveinsson var á sínum tíma þjóðkunnur stjórnmálamaður. Ungur að árum lauk Bjarni embættisprófi í lögfræði og eftir framhaldsnám erlendis gerðist hann prófessor í lög- fræði við Háskóla íslands, einn af yngstu mönnum, sem nokkurn tíma hafa hlotið þá nafnbót við Háskóla íslands, en hann var þá aðeins tuttugu og fjögra ára gamall. Árið 1940 varð Bjarni borgarstjóri Reykjavíkur og síðar gegndi hann ýmsum embættum í Ríkisstjórn íslands sem utanríkisráð- herra, dóms- og iðnaðarmálaráðherra, menntamálaráðherra, og síðast sem forsætisráðherra frá 1963. Um árabil hafði hann og verið formaður stærsta stjómmálaflokks þjóðarinn- ar„ Sjálfstæðisflokksins. Óvenjulega staðgóð þekking og glæsilegur námsárangur dugðu Bjarna Benediktssyni til prófessorsembættis tæplega hálfþrítugum. Fræðilegar athuganir hans sem prófessors voru mjög bundnar starfsögu Alþingis, og liggur eftir hann merkilegt ritverk byggt á þeim athugunum. Aðallífsstarf Framhald á bls. 2. Bréf fró Séra Robert Jack Tjörn, Vatnsnesi, V.-Hún., 2. júlí, 1970. Klulkkan er rétt rúmlega 12 að miðnætti. Miðnætursólin skín í allri sinni dýrð og Húnaflói er spegilsléttur. Nóttin minnir mig á orð Step hans G. Stephanssonar: Fjarst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín. Nóttlaus voraldar veröld, þar sem víðsýnið skín. Þegar ég hugsa um lönd og og borgir þeirra, nú í myrkri, er þessi fegurð náttúrunnar sérstaklega dýrleg, sem orð geta varla lýst. Og nú á þessum tíma er Manitoba í þann veginn að halda upp á hundrað ára af- mæli sitt. Og bráðum halda íslendingar upp á afmæli — 100 ár frá því að þeir námu land á Gimli. Ég hlustaði í gærkveldi, eða fyrir tveimur tímum á drottn- ingu Englandn fljdja ræðu stjómarinnar í Lávarðardeild brezlka þingsins. Hún byrjaði á því að segja, að hún og maður hennar myndu innan skamms ferðalst til Manitoba og North West Territories til að halda upp á hundrað ára afmæli þess. Það minnti á samtal, sem ég átti við eigin- mann drottningar, hertoginn frá Edinborg. Það var á Ak- ureyri þegar forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson kynnti okk- ur. Hertoginn spurði mig hvenær ég hefði komið til Is- lands. Eg sagði honum það. Ég sagði honum ennfremur af hverju ég hefði komið hingað, nefnilega til að kenna Soccer bótbolta. „En rúna“, spurði hann, „Hvað g?rið þér nú?“ „Ég er prestur í kirkju á Islandi‘‘ svaraði ég. Hann hikaði dálítið og þá sagði hain, „þér komið hing- að til a5 kenna Islendingum að sparca bolta, en nú eruð þér að sparka þeim inn í himnarki.“ Vel ; minnst; skal ég að- vara Mtnitobabúa, að óleyfi- legt erað skála fyrir drottn- ingunn í vátni, að minnsta kosti Wa landar gert það á meirih.ttar samkomum sín- um. Ég ít frá mér fara í gær grein il Wilhelms Kristján- son, sim á að birtast í Ice- landicCanadian í ágústlok. Hún <r auðvitað á ensku og eitthvð á skozku með. Hún er ekli merkileg grein; fann eitthvð létt, sem ég vona að Framhald á bls. 2. Vestur-íslenzk skáldkona látin Frú Lára Goodman Salver- son, Toronto, hin víðkunna skáldkona lézt 13. júlí 1970. Hún hlaut verðlaun og varð v í ð f r æ g fyrir skáldsöguna, The Viking Heart. Hún skrif- aði alls ellefu skáldsögur og fjölda smásagna. Hana lifa maður hennar, George Salv- erson og sonur þeirra George, sem getið hefir sér orðslírs fyrir ritstörf við C.B.C.; enn- fremur systir hennar Halldora (Dora) ekkja Steindórs Jak- obssonar. Skáldkonan var fædd 9. des. 1891, dóltir Lár- usar Goodman. PÁLL SKÁLD GUÐMUNDSSON KVADDUR Nú er hljóðnuð harpa Páls, hans var óður tíðum snjall. Hitar ljóðaleiftur máls logans glóð, er undir svall. Richard Beck. Winnipeg-born Miss Laura Arnason, 18, of Vancouver, has been named 1970 Princess of the Icelandic Canadian Club of B.C. Shown wearing a traditional Icelandic costume, she is the twenty-ninlh Princess of the club since the post was established in 1940, and succeeds Miss Janice Henriksoll. Miss Arnason is the daughter of Olgeir (Al) and Shirley Arnason, both nalive Winnipeggers who moved to Vancouver in 1953. The B.C. club has existed under a variety of names since 1908

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.