Lögberg-Heimskringla - 29.10.1970, Blaðsíða 1
«
thjodminjasafnid»
REYKJAVIK,
I C E L A N D .
Xö gber g - ^etmöfer ingla
Sloínað 14. jan. 1888 Slofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 29. OKTÓBER 1970_8_ NÚMER 39
Bjarni Goodman 75 ára
DR. RICHARD BECK:
voru Færeyingar. Slasaða
fólkið var komið á sjúkrahús-
B j a r n i Goodman, fyrrv.
hárskeri, varð 75 ára s. 1.
mánudag 19. þ. m. Vinir hans
og skyldmenni komu saman
til að fagna honum, að heimili
sonar hans Robert Goodman,
87 Fidler Avenue, í Silver
Heights næstkomandi laugar-
dag 24. þ. m.
Bjami var fæddur að Ás-
um í Árnessýslu, 19. október
1895. Foreldrar hans voru Jón
Guðmundsson, bóndi og Sig-
ríður Bjarnadóttir frá Tungu-
felli. Þau fluttu vestur um
haf um aldamótin og settust
að á Hove í Grunnavatns-
byggð og bjuggu þar til árs-
ins 1920, að þau fluttust til
Lundar, og svo um árið 1930
til Gimli.
Bjarni kvæntist Ehsabetu
Hrefnu Thorsteinson 19. des.
1924. Hún dó 9. nóv. 1943. Þau
eignuðust 5 börn, sem eru öll
á lífi, Robert Gordon í Winni-
peg; Elmer Kenneth, Van-
couver; Lillian Bernice (gift
Allan M. Whiteside), Cal6a.y;
Helen Joyce (gift Philip O. H.
Petursson), Charleswood; og
Jón Ragnar, í Saskatoon. Auk
þessara barna, á Bjarni 14
barnabörn. Systkini hans voru
þrjú, en af þeim er ein systir
á lífi, Anna, (Mrs. John Kach-
el) í Cleveland. Tvær systur,
Katrín, sem var gift Einari
Eiríkssyni í Vestfold, og
Margrét, sem var gift Dave
Rutherford, eru dánar.
Bjarni átti hárskerastofu
hér í bæ, á Hargrave Street
um fjölda mörg ár og rak þá
iðju til ársins 1966. Hann var
meðlimur í Þjóðræknisfélag-
inu og studdi mál þess og
gerir enn. Hann tilheyrði
íslenzka karlakórnum um
margra ára skeið. Tvisvar hef-
ur hann ferðast heim til ís-
lands, 1965 og 1968 og er ekki
frá því að taka sér þriðju
ferðina á hendur n. k. vor,
með hópferð, sem Þjóðrækn-
isfélagið er að efna til.
Á sjötugasta og firnmta af-
mælinu er Bjami hress í anda
og líkamlega hraustur. Vinir
hans árna honum alls góðs og
óska honum áframhaldandi
vellíðan um mörg ókomin ár.
P. M. P.
Elections
Hon. Valdimar Björnson
T h e Minneapolis Tribune
supports the best candidates,
regardless of party affilia-
tions in the U.S.A. elections
next week:
ln U.S.A.
“The Tribune is politically
independent. Therefore, our
preferences are for the can-
didates we believe best quali-
fied. We have looked not at
party affiliation, but at abil-
ity, experience and each can-
didate’s position on those
issues we consider impor-
tant”.
In an editorial about sixteen
candidates, this item about
Valdim'ar Björnson:
FOR TREASURER
BJORNSON
Democrats appear to have
little hope of defeating Val
Bjornson (R), a veteran public
official who has served the
state adequately for many
years. We favor his re-elec-
tion.
Svörtusker
(íkveikja þessa kvæðis er skipsirand við Vesiursirönd
Vancouvereyju. Annars er það ekki staðbundið hvorki
um heili né a-ð öðru leyii. en nánasi hugsað sem al-
menn iáknmyud.)
Hvítfext svarrar brimið við Svörtusker.
Sævar huliðsraddir að eyrum ber
vindur köldum rómi á vængjum sér.
Feigðargustur næðir í fjöðrum þeim,
fléttast dauðastunur í brimsins hreim.
Nóttin sveipar harmslæðum himingeim.
Vogrek þögult hættunni vitni ber,
vegfarendum áminning skráð þar er: —
Varast skyldu sæfarar Svörtusker.
Fréttir frá íslandi
EMIL JÓNSSON
LÆTUR AF
ÞINGMENNSKU
Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra hefur ákveðið að gefa
ékki kost á sér til þing-
mennsku á ný við næstu Al-
þingiskosningar. Gaf utanrík-
isráðhsrra yfirlýsingu um
þetta á fundi kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins í Reykja-
nesskjördæmi og staðfesti það
í viðtali við Mbl.
Emil Jónsson sagði, að það
væri þeigjandi samkomulag
milli þingmanna, að sitja ekki
á Alþngi eftir að þeir næðu
sjötugs aldri, en sjálfur yrði
hann 69 ára á næsta ári.
Við lok þessa kjörtímabils
hefur Emil Jónsson átt sæti
á Alþingi í 37 ár.
Mgbl. 6. okt.
HANDRIT AMÁLIÐ
Dómsmeðferð og þar með
lokadómi í máli danska ríkis-
ins gegn Árnasafni hefur ver-
ið frestað í rúma þrjá mán-
uði, en sem kunnugt er átti
Hæstiréttur að taka málið
fyrir 30. nóv. n. k., en verður
nú ekki fyrr en 10. marz.
Hér er um að ræða bóta-
málið, þar sem ríkið leitar
samþykkis Hæstaréttar á, að
það þurfi ekki að greiða Áma-
safni skaðabætur, þegar hand-
ritin verða flutt til íslands.
Áður hefur Eystri Landsrétt-
ur dæmt ríkinu í vil. Frestur-
inn var ákveðin vegna beiðni
Carlsens, lögfræðings Árna-
safns, og sagði hann í viðtali,
er hann var spurður um
ástæðurnar fyrir svo löngum
fresti: „Til að undirbúa mig
undir málflutninginn þurfti
ég á efni að halda frá Pau
Schmidth hæstaréttardómara.
Þar sem þessu efni seinkaði
og um mikilvægt mál er að
ræða, neyddist ég til að sækja
um stuttan frest til .Hæsta-
réttar, til að fá nægan tíma
til undirbúnings. Vegna hinna
mörgu mála, sem fyrir Hæsta-
rétti liggja, var ekki hægt að
koma málinu fyrir réttinn
fyrr en 10. marz“.
5. nóvember verður haldinn
stuttur réttarfundur í Hæsta-
rétti, þar sem formlega verð-
ur gengið frá frestuninni.
Mgbl. 1. okt.
ÆSKAN KOMIN ÚT
Af fjölbreyttu efni sept-
ember blaðs Æskunnar, má
nefna grein um Davíðs húsið
á Akureyri eftir Lilju Berg-
þórsdóttur, s m á s ö g u eftir
Maxim Gorki, frásögn með
myndum um ferð stúlkna um
vesturríki Bandaríkjanna, til
að kynnast náttúruverndar-
málum, sem þjóðin horfist
augu við og svo ævintýri frá
Bengal er nefnist „Undra-
verðar krukkur“. Ennfremur
er í blaðinu íslenzkt ævintýri:
„Sagan af Svanhvíti karls-
dóttur“. Þá hefst í blaðinu ný
framhaldssaga um þá þekktu
sögupersónu T u m a þumal,
prýdd fjölda mynda — einnig
hefst í blaðinu nýr þáttur,
skrifar Guðm. Sæmundsson
um íslenzk skip.
Að lokum skal svo getið
kveðju í blaðinu til íslenzkra
ungmenna frá félögunum í
þeirri velþekktu ensku hljóm-
sveit Led Zeppelin.
Grímur Engilberts ritstýrir
blaðinu.
FLUGSLYS
Átta manns létust í flug-
slysi í Færeyjum á laugar-
dagsmorguninn, 26. sept., þar
á meðal flugstjórinn, Bjarni
Jensson. Aðrir sem létust
ið í Þórshöfn um kvöldið.
Þrennt var útskrifað dagnn
eftir og er Valgerður Jóns-
dóttir, flugfreyja ein þeirra.
Hitt fólkið er ekki í lífshættu,
en margir eiga fyrir höndum
langa legu.
Ekki er enn ljóst, hvernig
slysið orsakaðist, en rannsókn
er hafin á tildrögum þess.
Ljóst er, að vinstri vængur
flugvélarinnar rakst utan í
fjallið Knúk, sem er hæsta
fjallið á eynni Mykinesi, rifn-
aði síðan af og vélin skall
niður í hlíðina. Allir, sem fór-
ust, sátu vinstra megin í vél-
inni. Sex klukkustundir liðu,
þar til fyrsti björgunarleið-
angurinn komst á slysastað-
inn, en hann var frá danska
eftirhtsskipinu Hvítabirnin-
um. Ekki gat skipið lagzt að
bryggju í Mykinesi og fór því
norður með eynni, þar sem
var betra var, og þar voru
leiðangursmenn og læknir
dregnir í vaði upp snarbratt-
an klettavegg, af íbúum í
Mýkinesi sem komnir voru á
vettvang.
í Mykinesi búa ■ m 60
manns og fóru allir, sem
vettlingi gátu valdið á stúf-
ana, þegar fréttist um slysið,
en það var þegar þrír farþeg-
ar komu gangandi til byggða.
Þ e 11 a var fokker-flugvél,
eign Flugfélags íslands.
Framhald á bls. 3.
K a r e n Pairicia Wilkinson
received her Bachelor of Sci-
ence degree in Pharmacy at
the University of Manitoba in
May, 1970.
She is the daughter of the
late Walter John Wilkinson
and granddaughter of Mrs.
Karen Wilkinson of Winni-
peg. Her great grandparents
were Pétur and Sigurlaug
Pétursson, well-known in the
Gimli district as member of
the earliest pioneer families.
Karen Patricia’s paternal
forbears were from SomerseÚ
England.