Lögberg-Heimskringla - 29.10.1970, Qupperneq 2
2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 29. OKTÓBER 1970
MINNINGAR
RÓSU ALDÍSAR VIGFÚSSON, ÁRBORG, MAN.
Niðurlag
Nú v o r u m við komin í
áfangastað, og varð þá brátt
að skyggnast um eftir atvinnu
og húsnæði. Við bjuggum
fyrst hjá foreldrum mínum,
og vann Trausti við slátt um
sumarið hjá Eiríki Eymunds-
syni í Odda. Kona hans hét
Helga. Hún var góð kona og
hjálpsöm öllum, sem bágt
áttu. Þetta fyrsta sumar okk-
ar við íslendingafljót dó Guð-
rún Hallgrímsdótiir, kona
B j ö r n s Guðmundssonar á
Bakka við Fljótið. Hann hafði
verið póstur, áður en hann
fluttist vestur. Varð það nú
að ráði, að við flyttumst í hús
hans, og annaðist ég hússtörf
fyrir hann í staðinn. Ekki
varð það þó lengi, því að hann
seldi hús sitt um veturinn og
hætti búskap, og stóðum við
þá uppi heimilislaus að nýju.
Þá hljóp Jóhann Briem og
hans ágæta kona Guðrún
undir bagga með okkur og
buðu okkur a ð dveljast á
heimili sínu Grund, meðan
Trausti var að koma upp
dálitlum bjálkakofa þar í
bæjarstæðinu. Á Grund var
gott að vera. Þar voru allir
saman valdir, húsbændumir
og börn þeirra öll, og kann
ég ekki að gera mun þeirra.
Nú eru .gömlu hjónin flutt
inn í fögnuð herra síns, sem
þau hafa í sannleika þjónað.
Blessuð sé minning þeirra.
Þegar lokið var smíði húss
okkar, fluttumst við þangað.
Stóð það í fögrum grenilundi,
en þröngt var um okkur og
engin leið að hafa þar skepn-
ur, enda lifðum við mest af
smíðum manns míns.
Sumarið 1900 vann Trausti
að skólasmíði suður í Geysis-
byggð. Bjó hann hjá Páli
Halldórssyni á Geysi. Þótti
honum þar skemmtilegt. Þótt
vinnutíminn væri langur og
vel að verki verið, var samt
tími til þess að skemmta sér
við söng á kvöldin. En syst-
kinin á Geysi voru söngelsk,
og svo var Trausti líka, og
varð honum því sumardvölin
ánægjuleg. Með Trausta var
þar vinur hans frá Fljótinu,
Jón Pálsson, bróðir Guðrún-
ar Briem. Þetta sumar kynnt-
ist Trausti landi og fólki í
Geysisbyggð, og varð það til
þess, að við fluttumst þangað
sumarið 1902.
Sumarið 1900 kom það fyr-
ir, er ég var ein heima með
Þórunni dóttur okkar, þá
þriggja nátta, að ég lá vak-
andi í rúmi mínu en hafði
ljós á litlum náttlampa. Sá
ég þá allt í einu mannshönd
og handlegg séilast yfir rúm-
ið til okkar, og var líkt og
höndin vildi snerta bamið.
Höndin var nett og vel hirt,
og skyrtuermin hvítköflótt.
Stóð þetta nokkra stund, og
hvarf mér allur máttur á
meðan. Sýn þessa setti ég í
samband við það, að daginn
eftir kom unglingspiltur í
heimsókn, og var erindi hans
aðallega að sjá litlu stúlk-
una.
Eins og fyrr var getið, tók
Trausti land í Geysisbyggð,
og fluttumst við þangað 1902.
Nefndi hann bæ sinn Vatns-
dal, og er hann mjög sunnar-
lega í byggðinni. Okkur þótti
báðum fyrir að skiljast við
margt af vinafólki okkar við
Fljótið, en annars var ekki
úrkosta. Vinna var þar stopul,
enginn möguleiki á skepnu-
haldi, og því erfitt með af-
komu. N ágrannar okkar
hjálpuðu okkur við flutning-
inn, og gekk hann greiðlega.
Móðir Trausta, Auðbjörg Þor-
sleindótlir, hafði komið til
okkar um veturinn. Var hún
þá 70 ára gömul. Hún dvald-
ist síðan hjá okkur til dauða-
dags, en hún dó 93 ára. Þá
fluttist einnig með okkur
maður á sjötugsaldri, Jón Ein-
arsson. Hann var röskur mað-
ur og skemmtilegur í heimili.
Síðar fluttist hann aítur nið-
ur að Fljóti. Jón þessi var afi
Tímóteusar og Halldóru, sem
fyrr var getið.
Ekki var hægt að segja, að
landið væri álitlegt um þess-
ar mundir. Svo mátti heita,
að allt land væri á floti yfir
sumarið, og varð að heyja í
fenjum þessum. Ekki var um
önnur tæki að ræða en orf
og ljá. En víða var þar fag-
urt. Flóinn var yfir að líta
eins og stöðuvatn, og minnti
það mig á blessaðan sjóinn
heima. Fyrst bjuggum við í
lélegum kofa, en reistum síð-
ar gott hús, þar sem við höf-
um búið síðan. Með búskapn-
um' stundaði Trausti vinnu
hjá nágrönnunum og víðar
um byggðina. Vil ég nú geta
að nokkru nágranna okkar og
annars fólks, sem var í Geys-
isbyggð um þessar mundir.
Áður hef ég getið um Eyjólfs-
staðafólkið. Heima á íslandi
höfðum við kynnzt Jóhannesi
Nordal og Valgerði konu
hans. Sigurður var bróðir Jó-
hannesar íshússjóra. Þau hjón
bjuggu í Norðtungu. Heim-
ili þeirra var gestrisið, og
þótti ætíð sjálfsagt að koma
þar við og fá hressingu, er
leið manna lá þar um. Á
n æ s t a landi við skólann
bjuggu Árni Vigfússon og
Ingibjörg kona hans. Hét bær
þeirra Hjarðarholt. Áttu þau
tvo syni og e i n a dóttur.
Trausti var kunnugur foreldr-
um Ingibjargar heima á Akra-
nesi. Þau hjón gáfu okkur
kálf, er við fluttumst í ná-
grennið, en annan áttum við
fyrir, og urðu það fyrstu ux-
amir, er við eignuðumst, og
reyndust þeir okkur þarfir
þjónar. Næstu nágrannar okk-
ar voru í Hvammi og Odda. I
Hvammi bjuggu hjónin Jón
Guðmundsson og Guðrún.
Höfðu þau flutzt sunnan frá
Dakota með fallega hjörð og
þrjú stálpuð böm. Annar Jón
Guðmundsson bjó í Odda með
ráðskonu, er Krisiín hét. Hún
var ágætiskona og hagsýn
húsmóðir. Með þeim var upp-
kominn sonur Jóns, Magnús
að nafni. H a n n kvæntist
Maríu Einarsdóllur, og tóku
þau við búi í Odda. Hjálmur
Jóhannesson og Guðbjörg
bjuggu á Svarfhóli fyrir norð-
an Hvamm, en Hallur og
Margréí þar skammt frá, og
nefndu þau bæ sinn að Leik-
skálum. Björn, bróðir Sveins
á Eyjólfsstöðum, tók land fyr-
ir norðan Hvamm.
Þetta var fólkið, sem sett-
ist að um líkt leyti á þessu
svæði, og þori ég að fullyrða,
að þar lifðu menn í einingu
andans og bandi friðarins, því
að allir hjálpuðust að til þess
að létta undir hver með öðr-
um. Eitt fyrsta verkefnið var
að grafa skurði, til þess að
þurrka landið. Unnu þeir það
í félagsvinnu. Var það erfitt
verk, því að ekki voru önnur
tæki en skóflur og forkar.
Einu vinnudýrin voru uxar,
þegar þá unnt var að koma
þeim við. Er lítill vafi á, að
margir bjuggu lengi að því
erfiði, sem þeir lögðu á sig.
Síðar fengu þeir nokkum
styrk til þessa Verks. Var það
mest fyrir tilstilli Sveins
Thorvaldssonar í Riverton.
Áður en skurðgreftinum lauk,
varð Trausti fyrir því slysi
að stinga sig illilega á fork.
Var hann óvinnufær mikinn
hluta sumars. Það hjálpaði
okkur þá, að hann átti inni
fyrir vinnu sína hjá ýmsum,
og var það nú endurgoldið í
vinnu, annars hefur hver nóg
með sig um heyskapartím-
ann. En allir voru hjálpsam-
ir, ef til þeirra var leitað, og
hefur það haldizt til þessa
tíma.
E i 11 sumarið, sem við
bjuggum þama, kom ein-
kennilegt atvik fyrir mig.
Trausti maður minn var þá
að vinna hjá nágranna okkar,
Jóhannesi Péturssyni. Heim-
ili hans er um hálfri mílu
sunnar og einni mílu vestar
en bær okkar. Svo bar við,
að ég átti eitthvert brýnt er-
indi við Trausta, og fór því
dag einn að finna hann og
fór gangandi að venju. Ég
borðaði hádegismat hjá Pét-
ursonshjónunum, og að því
búnu gekk Trausti með mér
út á götuna, sem lá heim til
okkar, en hélt síðan til vinnu
sinnar. Rétt eftir að hann
skildi við mig, verður mér
litið upp. Sé ég þá hús á hæð
nokkurri fram undan mér,
þar sem ég vissi enga von
mannabústaðar. M é r flaug
fyrst í hug, að ég kynni að
hafa villzt, þótt um stuttan
spöl væri að ræða, svo ég
geng heim að húsinu í þeim'
tilgangi að spyrja til vegar.
Þegar ég kem upp að húsinu,
sé ég engin lífsmerki þar, og
ekki rauk þar úr strompi.
Húsið var auðsýnilega ný-
byggt. Nýr tjörupappi var
lagður á þakið, og hann
negldur niður með nýhefluð-
um, ómáluðum listum. Húsið
var fremur lítið, með lágu risi
en snoturlega byggt. Fyrir
utan húsið var pallur og þrjár
tröppur upp á hann. Tveir
gluggar voru á framhlið húss-
ins og grænar blæjur fyrir
báðum. Voru þær ekki dregn-
ar alveg niður, svo að mér
flaug í hug að gægjast inn
um gluggann. En hvert sinn,
sem ég ætlaði að gera það,
var líkt og eitthvað aftraði
mér frá því, svo að úr því
varð ekki. Framan við húsið
var 1 á g u r skúr, líkastur
geymsluhúsi.
Ég var nokkra stund á ferli
umhverfis húsið. Allt í kring-
um það var nýhöggvið skóg-
arrjóður, og stóðu þar enn
gildir stofnar, nýlegir í sárið.
Þegar ég var að skyggnast
þarna um, kom ég auga á ný-
höggna braut, sem lá yfir
hæðardragið, og sýndist mér
það vera heybraut. Gekk ég
suður eftir henni, og verður
þá fyrir mér fjós og heygarð-
ur, og lá þar dálítið af heyi.
Fjósið var lítið, sýnilega fyrir
fáar skepnur, og lá það í
slakka í öldinni, og þótti mér
það einkennilegt. Ekki sá ég
nokkra lifandi skepnu, ekki
einu sinni kött eða hænu. Ég
hélt dálítið lengra áleiðis, og
varð þá fyrir mér moldarflag,
og var moldin í því fín og
falleg, rétt eins og heima á
Islandi. Óskaði ég mér, að
komin væri svo sem ein fata
af henni heim til mín, til að
hafa hana í blómapottana
mína. Þegar ég var komin
yfir flagið, urðu fyrir mér
krossgötur.
Lágu þar vegir í þrjár
áttir, suður, austur og vestur.
En ólílcir voru þeir vegir því,
sem ég þekkti þá í Nýja Is-
landi, því að þeir voru allir
mölbornir, sléttir og skín-
andi fallegir. Mér fór nú ekki
að standa á saima, og hugsa,
að mér sé bezt að snúa við
og reyna að komast aftur
heim að húsinu. Gerði ég það,
og leit um leið aftur til fjóss-
ins og heygarðsins, og var þar
allt sem fyrr. Ég fór aftur
heim að húsinu, legg hendur
á tröppurnar og tel þær að
nýju. Þá snerti ég við lok-
unni á skúrnum. Jú, allt var
þetta áþreifanlegt. Ég geng
aftur slóðann niður ölduna,
sem ég kom fyrst eftir, og
varð þá brautin fyrir mér, og
fór ég eftir henni og komst
slysalaust heim.
Ekki fann ég, að mig syfj-
aði eða ég hefði gleymt mér
nokkra stund. En ég var renn-
vot og mjög slettótt, enda
voru þá brautir allar blautar
og pyttóttar hér suður frá.
Síðar fór ég um allt þetta
Aðeins $ 100 00
ÍSLANDSFERÐ FRAM OG TIL BAKA
FRÁ NEW YORK
Lægstu fargjöld! Þotu þjónusia! Ný lág fargjöld 1970 til
fslands fyrir alla-unga, aldna, skólafólk, ferðahópa!
ísland er líka fyrir alla. Hið fagra ísland minninganna;
nútíðar ísland sem erfitt er að ímynda sér; hið hrífandi
ísland, sem frændur og vinir hafa skýrt ykkur frá — og
sem þið getið sagt frá þegar heim kemur.
Nýju fargjöldin frá New York-aðeins $100 fram og
lil baka með 15 mannahóp eða fl. Fyrir einslaklinga aðeins
$120* fram og til baka fyrir 29-45 daga á fslandi; aðeins
$145* upp að 28 dögum aðeins $87*. Aðra leið fyrir stúdenta
er stunda nám á fslandi í 6 mánuði eða lengur. Fleiri lág
fargjöld er gegna þörfum ykkar.
LÆGSTU FLUGFARGJÖLD TIL:
ÍSLANDS, SVÍÞJÓÐAR, NOREGS, DANMERKUR,
ENGLANDS, SKOTLANDS OG LUXEMBOURG.
ICELANDICAIRUNES
Frekari upplýsingar hjá ferðaumboðsmanni þínum eða
Icelandic Air Lines.