Lögberg-Heimskringla - 12.11.1970, Síða 1
Slofnað 14. jan. 1888
THJODMINJaSAíNIO*
REYKJAVIK,
ICELANO.
Hetmökinsla
Stofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 12. NÓVEMBER 1970
NÚMER 41
Gamla kirkjan frá Silfraslöðum í Skagaíirði var flutt að
Árbæjarsafni og hlaðinn upp að nýju.
DR. RICHARD BECK:
Kveðja fril Kvennaskólans
í Reykjavík
(Vísur þessar sendi höf. dr. Guðrúnu P. Helgadótiur, skóla-
stjóra Kvennaskólans, í bréfi á síðastliðnu vori, og las hún
þær upp á fjölmennri samkomu við skólaslitin.)
Fjallakonan kjólnum ljósum
klæðist, bjart er höfuðtrafið.
Berðu þínum blómarósum
beztu kveðju yfir hafið.
Vemdi góðar vorsins dísir
vegu þeirra alla daga.
Inn í framtíð leið þeim lýsir
löng og mikil skólans saga.
ÍSLANDSFRÉTTIR
í dag var verið að vígja
litlu kirkjuna
að Árbæ.
Hún er fjarska, fjarska
gömul,
meira en hundrað ára
og flutt að norðan
og vígð þar,
fyrir langa löngu.
Og lítil og fátækleg er hún,
borin saman við stóru
og nýju
kirkjurnar í borginni
og líkist meira bænahúsi
en kirkju.
Veggimir hlaðnir upp úr
torfinu að norðan og
steinunum að sunnan,
til að gera hana
ofurlítið sunnlenzka.
Efst á risgaflinum lystilega
útskornar fjalir,
sín hvorum megin og
mætast í laufum á
burstinni,
tákn jarðargróðans.
Rósir kærleikans og
liljur vallarins sveigjast í
fallegum boga niður
fjalirnar.
Neðst ártalið:
ANNO, til vinstri og
1842 til hægri.
Látúnshringur í
tréhurðinni,
gaflarnir bikaðir, svartir og
grænt gras á þekjunni.
Lítill klukknahiminn
spölkorn fyrir framan.
Litla kirkjan var troðfull og
hópur af fólki fyrir utan.
Biskupinn stóð með mítur
á höfði
fyrir framan gamla
alterið og
prestarnir sátu í
hátíðarskrúða
í kórnum.
Ungi sóknarpresturinn,
í hvítu rykkilíni,
talaði úr gamla stólnum.
Fullorðna fólkið hugsaði
um
litlu sveitakirkjuna heima
og konurnar drógu upp
vasaklútana
og þurrkuðu sér um augun.
Ungu stúlkurnar brostu
svolítið
og dreymdi að gaman
væri að
gifta sig í svona lítilli
og notalegri kirkju.
Krakkarnir gláptu á
biskupinn
og fallega hattinn hans.
Sólin skein inn um
litlu glerrúðurnar
og geislarnir ljómuðu á
litla trékrossinum í
glugganum fyrir ofan
altarið.
Tvær smáspýtur lagðar
í kross,
eins og auðmjúkar hendur
fólksins, sem byggði
kirkjuna sína,
fyrir langa löngu,
fyrir norðan.
Þorbjörg Árnadóttir.
AURSKRIÐA FÉLL
Á 3 JARÐIR í KJÓS
Gífurleg úrkoma hefur ver-
ið á Suðurlandi síðustu tvo
sólarhringa, m.a. valdið aur-
skriðum á þremur stöðum í
Kjós. Þannig féll mikil aur-
skriða yfir túnið á bænum
Eyri og allt umhverfis bæjar-
húsin þar. Bar hún m.a. stór-
eflis björg, og hefur bónd-
inn á Eyri, Hjörtur Þorsteins-
son, orðið fyrir verulegu
tjóni. Þá fór skriða yfir skrúð-
garð við íbúðarhúsið á Ytri-
Tindastöðum og við Miðdal
tók skriða í sundur símalínu
og stíflaði Mýrdalsá (Kiða-
fellsá). Hvergi hafa þó skrið-
ur farið yfir vegi og stöðvað
umferð á þessum slóðum.
Blaðamaður Morgunblaðs-
ins kom að Eyri, en þar var
þá jarðýta að vinna að því að
ryðja aur og steinum frá bæj-
arhúsum. Eins voru vega-
vinnumenn mættir með vélar
til að hreinsa úr vegaræsum
við bæinn, en skriðan hafði
borizt alveg að honum. Við
hittum að máli Hjört Þor-
steinsson, bónda.
„Aurskriðan féll um sjö-
leytið í gærkvöldi", sagði
Hjörtur. „Við vorum að
mjólka, þegar við heyrðum
þungar drunur. Myrkur var,
og erfitt að átta sig á því,
hversu mikið þetta var. Það
kom hins vegar í ljós með
birtingu, og þá hægt að átta
sig á aðstæðum. Skriðan hef-
ur byrjað efst í fjallinu hér
fyrir ofan, borizt niður gilið
og breitt úr sér hér niður á
túninu. Eins og segja má hef-
ur skriðan borið með sér heil
björg, þannig að ég óttast að
erfitt muni verða að hreinsa
þetta. Ég gæti trúað, að alls
hafi um 3—4 hektarar farið
imdir skriðuna, þar á meðal
einn bezti hluti túnsins."
„Ú r k o m a n hefur verið
óskapleg,“ hélt Hjörtur áfram.
„Á Meðalfelli var úrkoman
100 mm á tveimur sólarhring-
um, og hér hefur hún eflaust
verið meiri. Tjónið? Nei, ég
þori engu að spá um það, en
það er mikið.“
Þegar við vorum að fara frá
Eyri hafði ein kind fundizt
dauð undir skriðunni, og
Hjörtur taldi ekki útilokað,
að fleiri hefðu grafizt undir,
er skriðan féll. Mikill vatns-
elgur var alls staðar í Kjós-
inni í gær.
Mgbl. 18. okt.
ÚR TÍMANUM
4. 5. OG 6. NÓVEMBER
Síjórn Laxárvirkjunar bauð
fréttamönnum fjölmiðla að
kynna sér aðstæður á virkj-
unarstað við Laxá. Greindu
þeir svo frá, að Laxárvirkj-
unarstjórn h e f ð i fallizt á
sáttatillögu, sem lögð hefði
verið fram á Húsavík fyrir
tveimur vikum, þar sem gert
sé ráð fyrir 23 metra hárri
stíflu í 2. áfanga virkjunar.
Nú er búið að merkja út í
landslagið í Laxárdal, hve
vatn fer þar hátt við þá stíflu-
gerð. 23 metra há stífla mun
að s ö g n Laxárvirkjunar-
manna, mynda lón, sem er
aðeins einn tuttugasti af því
uppistöðulóni, sem ráðgert
var í fyrstu áformum um
virkjun í 4 áföngum, en þau
áform fólu í sér, að Laxárdal
yrði að mestu sökkt undir
vatn. „Sáttatillögu-lónið“ mun
aðallega leggja hraun undir
sig og hluta úr túninu á
Briningsstöðum. Þ e 11 a lón
verður ekki forðabúr heldur
til að losna við krap og fá
hreinna vatn í vélarnar. —
Norska blaðið Bergens Tid-
ende skýrði frá því fyrir
nokkrum dögum, að næsta
sumar færu fram athuganir
á norðurljósum, og yrðu loft-
belgir sendir upp frá ýmsum
stöðum í Noregi og á íslandi.
Rannsóknir þessar eru á
v e g u m Fysisk Institutt í
Björgvin og University of
California í Bandaríkjunum.
Verður um loftbelgjaathugan-
ir að ræða. Á sama tíma næsta
sumar verða loftbelgir sendir
upp frá 3—4 stöðum í Norður-
Noregi og frá Reykjavík.
Einnig sé í athugun að senda
loftbelgi upp frá Grænlandi
og Japan.
Hér er um að ræða geisla-
mælingar í því skyni að fá
nánari upplýsingar um eðli
norðurljósa.
Steinn frá tunglinu verður
til sýnis í Þjóðminjasafninu í
Reykjavík. Þarna er um að
ræða stein, sem Neil Arm-
strong hafði á brott með sér
frá tunglinu. Steinninn hefur
verið á ferðalagi um heiminn
undanfarið og til íslands kem-
ur hann frá Noregi. Að sjálf-
sögðu er steinn þessi ákaflega
mikils virði, því að ekki eru
margir slíkir til, og þess vegna
er hans jafnan vandlega gætt.
Fyrir nokkru skilaði þýzka
verktakafyrirtækið Hochtief
endanlega Straumsvikurhöfn,
en eitt ár verður þá síðan
Hafnarfjarðarbær tók að sér
rekstur hafnarinnar. Upphaf-
legt tilboð í gerð hafnarmann-
virkja í Straumsvík hljóðaði
upp á 227 milljónir króna, en
Hochtief hefur fengið greidd-
ar 300 milljónir króna og hafa
gert kröfu um 300 milljónir
í viðbót. Á framkvæmdatíma-
bilinu urðu 2 gengisfellingar,
og miklar verðhækkanir, svo
búast má við að tilkostnaður
verktakans hafi verið nokkru
meiri. Máhnu var skotið til
gerðardóms í París.
Framhald á bls. 8.
Tvær hliðar
, lífsins
Hörð nú mæða hrellir mig,
hjarta blæða sárin,
ógnir skæðar sýna sig,
sorgar flæða tárin.
Mitt er yndi margskonar,
myrkum hrindi’ trega,
geisla lindir gæfunnar
glitra yndislega.
Hvort þín braut er þægileg
eða þyrnum stráð og grjóti,
náðin Guðs er nægileg
þó napurt blási móti.
Kolbeinn Sæmundsson.
1
%