Lögberg-Heimskringla - 26.11.1970, Qupperneq 1
*
THJODMIMJASAfNIO
REYKJAVIK,
ICELANO.
Hö gber g - Hetmöímngla
Stofnað 14. jan. 1888 Siofnað 9. sept. 1886
84. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1970
NÚMER 43
Björn Björnson
Allir lesendur L.-H. kann-
ast við Björnson bræðurna í
Minneapolis, syni hinna
merku hjóna Gunnars og
Ingibjargar Björnson. Björn
Björnson, sem er vara-forseti
Northern States Power Com-
pany í Minneapolis var hér
á ferð í fyrri viku í boði
Manitoba Electrical Associa-
tion (Winnipeg Hydro og
Manitoba Hydro). Hann flutti
ræðu við hádegisverðarboð
sem þetta félag efndi til s. 1.
fimmtudag og sóttu um 150
manns þennan fund — raf-
magnsverkfræðingar og aðrir,
sem vinna að þessum málum
hér í fylkinu. Ánægjulegt var
að sex þeirra manna sem
beita sér fyrir þessum störf-
um og sátu við háborðið voru
Islendingar.
Ýtarlegar umsagnir um
fundinn birtust í báðum dag-
blöðum borgarinnar og munu
flestir, sem skilja og hafa á-
huga fyrir þeim málum hafa
lesið þær. Blaðamönnum þótti
Björn sérstaklega skemmti-
legur ræðumaður, gæddur
kímnigáfu og hnittinn í orð-
um.
Björn veitti okkur þá á-
nægju að líta inn á skrifstof-
una og spurðum við fyrst um
kosningu Valdimars, en þurfti
ekki að því að spyrja; hann
var endurkosinn með yfir-
gnæfandi meirihluta í féhirð-
isembætti Minnesotaríkis.
Björn lærði prentiðn í
prentsmiðju föður síns í Min-
neota eins og hinir bræðurn-
ir og að loknum háskóla- og
s í ð a r blaðamanna prófum
varð hann ritstjóri Minneota
Mascot í þrjú ár og samdi
ritstjórnargreinar fyrir stór-
blöðin í Minneapolis 1939-41
og réðst síðan til National
Broadcasting félagsins og fór
á vegum NBC til Islands, síð-
an til Svíþjóðar, þaðan til
vígvallanna, svo til Noregs og
Danmerkur eftir að þau lönd
losnuðu undan Nazistum.
Hann varð útvarpsfréttamað-
ur í Hvíta húsinu í forsetatíð
Trúmans og hefir' nú starfað
með ofannefndu rafmagnsfé-
lagi síðan árið 1950.
Björn er kvæntur yndis-
legri konu, og átti ég þá á-
nægju að kynnast henni þeg-
ar ég fór á hundrað ára af-
mælis hátíð Islendingabyggð-
ar á Washington lsland í sum-
ar. Hún heitir Birgitta og er
að svenskum og brozkum ætt-
um. Hún er hámenntuð kona
og kennir nú frönsku við há-
skólann í Minneapolis. Þau
hjónin eiga fimm börn á lífi,
4 syni og eina dóttur, öll hin
mannvænlegustu.
Við þökkum Birni fyrir
komuna. — I. J.
lagsins, sem vildi að haldið
yrði áfram samningum við
Pólverja um smíði skuttogara,
en skuttogaranefnd segir að
þeir samningar séu komnir í
strand, þar sem Pólverjar
vilji ekki smíða togarana fyrir
jafn hagkvæmt verð og Spán-
verjar. Þá voru kaupin sam-
þykkt á fundi borgarráðs. Þar
var fulltrúi Alþýðubandalags-
ins, Sigurjón Pétursson, á
m ó t i kaupunum og vildi
áframhaldandi samningavið-
ræður við Pólverja.
100 MANNS
SJÓSETTU ESJU
Gífurlegur mannfjöldi safn-
aðist saman við Slippstöðina
h.f. á Akureyri á tólfta tíman-
um á laugardaginn 3. okt,
þegar nýja strandferðaskip-
inu, sem hlaut nafnið Esja,
var hleypt af stokkunum.
Veður var stillt og svallt. At-
höfnin hófst með því, að
G u n n a r Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvar-
innar, flutti ávarp, en síðan
tók Ingólfur Jónsson, sam-
göngumálaraðherra til máls
og kona *fians gaf skipinu
nafnið.
ÍSLANDSFRÉTTIR
Úr Tímanum frá 3. okt. til 16. nóv.
Á aðalfundi Landeigendafé-
lags Laxár og Mývatns, sem
haldinn var í Skjólbrekku
Mývatnssveit fyrir nokkru,
var gerð fundarsamþykkt, þar
sem varað er við þeirri hættu
sem Mývatni og Laxá kann
að stafa af ryki og afrennsli
Kisilgúrverksmiðjunnar við
Mývatn.
Nú er lokið fyrsta áfangan-
um bið byggingu nýrrar drátt-
arbrautar í Ytri-Njarðvík, á
vegum Skipasmíðastöð Njarð-
víkur h.f. Var þessi fyrsti
áfangi formelga vígður fyrir
nokkru.
Þessi nýja dráttarbraut
mun geta tekið á móti bátum
allt að 600 tonnum og 40—50
metra að lengd. Hefur Suður-
nesjamenn lengi skort slík
dráttarbraut. Eldri dráttar-
braut skipasmíðastöðvarinnar
er 150 tonna og verður hún
enn í fullu gildi, fyrir smærri
báta.
Hitaveita Húsavíkur var
formlega tekin í notkun 3.
október s. 1.. Framkvæmdir
við lagningu veitunnar til
Húsavíkur, frá Hveravöllum
í Reykjahverfi, sem er um 19
km. leið, hófust í maí í vor
og er því verki nú lokið, að
öðru leyti en því, að eftir er
að hleypa vatni frá einum
hveranna inn á leiðsluna. Inn-
anbæjarkerfinu er að mestu
lokið. Nokkrir bæjarbúar hafa
þegar tekið vatnið í notkun,
en almenn vatsnsala mun
hefjast upp úr mánaðamótun-
um okt. og nóv.
Nú er ákveðið að kaupa tvo
skuttogara af Spánverjum til
viðbótar þeim sem þegar er
búið að semja um kaup á.
Annan þessara togara mun
Bæjarútgerð Reykjavíkur
kaupa, fen óráðið er um kaup-
anda á hinum. Útgerðarráð
hefur samþykkt kaupin.
Greiddu allir fulltrúar í út-
gerðarráði atkvæði með kaup-
unum, nema Guðmundur Vig-
fússon, fulltrúi Alþýðubanda-
NÝJAR
HELGAFELLSBÆKUR
Nokkrar af haust- og jóla-
bókum Helgafells eru þegar
komnar út, svo sem „Innan-
sveitarkrónika“ eftir Halldór
Laxness og „Vonin blíð“ eft-
ir William Heinesen, í þýð-
ingu Magnúsar Jockumssonar,
fyrrv. póstmeistara og Elías-
ar Mar. Þá er komin út þriðja
útgáfan af fyrstu bók Stefáns
Harðar Grímssonar, „Svart-
álfadans“.
Af væntanlegum bókum
síðar í haust ber hæst ný bók
eftir Sigurð Nordal um Hall-
grím Pétursson og Passíu-
sálmana. Þessi bók hans hef-
ur lengi verið í smíðum, en
Sigurður hefur nú nýlokið við
hana.
Þá er væntanlegt smásagna-
safn eftir Guðberg Bersson,
og nýtt skáldverk eftir Thor
Vilhjálmsson.
í haust kemur út sagnfræði-
rit eftir Sigurlaug Brynleifs-
son og fjallar bókin um
Svarta dauða. Er rakin ferill
þeirrar plágu inn í Vestur-
lönd og til Islands árið 1402.
Einnig verður gefin út ný
og endurskoðuð útgáfa á öll-
um verkum Stefáns frá Hvíta-
dal. Kristján Karlsson, bók-
menntafræðingur, annast út-
gáfuna og ritar ítarlegan for-
mála um skáldið og verk hans.
1 október kom síðan stórt
skáldverk eftir Guðmund L.
Friðfinnsson á Egilsá, og er
þetta áttunda skáldverk hans,
rómantísk ástar- og hetjusaga.
Einnig kemur út fyrir jólin
safn bókmenntaþátta e f t i r
Svein Skorra Höskuldsson, og
er hér irm að ræða þætti þá
sem hann flutti í útvarp fyrir
nokkru.
Eins og áður segir er verk
Heinesens, Vonin blíð, þegar
komin út, en sem kunnugt er
hlaut fræeyski rithöfundurinn
v e r ð 1 a u n Norðurlandaráðs
fyrir þá bók. Helgafell og Mál
og menning standa að útgáfu
þessa verks, og hefur bókin
verið í þýðingu í 2—3 ár að
sögn Ragnars Jónssonar.
Innansveitarkrónikan er
einnig komin út, og væntan-
legt er síðar á árinu leikrit
það, byggt á Kristnihaldi und-
ir Jökli, sem Iðnó hefur nú
sýningar á. Sveinn Einarsson,
leikhússtjóri, samdi leikritið
upp úr verk Laxness og verð-
ur nafn bókarinnar „Úa“.
Helgafell gefur alls út á
þessu ári 15 bækur, og er verð
bókanna um 10—15% hærra
en á síðasta ári, og mun það
almennt minni hækktin en
annars staðar í Skandinavíu,
að sögn Ragnars.
600 ÞÚS. KR. ÚTHLUTAÐ
TIL FJÖGURRA HÖFUNDA
Fjórir rithöfundar hlutu s.l.
10. okt. viðurkenningu úr Rit-
höfundasjóði Islands. Var út-
hlutað 600 þúsund krónum, og
fékk hver þeirra rithöfunda
sem nú hlutu viðurkenningu
150 þús. kr. Þeir eru Jón
Björnsson, Tómas Guðmunds-
son, ,‘Ólafur Jóhann Sigurðs-
son og Þorsteinn frá Hamri.
Formaður sjóðsstjórnar, Björn
Th. Björnsson, afhenti upp-
hæðirnar við athöfn á Hótel
Sögu.
Björn sagði, að nú væri
lokið fyrsta áfanga í starfsemi
Rithöfundasjóðsins, en þetta
var í þriðja sinn sem úthlutað
er úr honum. Til þessa hefur
eingöngu verið úthlutað við-
urkenningarstyrkjum til rit-
höfunda, en nú verður sú
breyting á að 60% af því fé
sem sjóðurinn fær fyrir útlán
bóka úr bókasöfnum rennur
til þeirra höfunda, sem skrif-
að hafa þær bækur er lánað-
ar eru, en 40% verður úthlut-
að sem viðurkenningu til ein-
stakra höfunda, eins og gert
hefur verið til þessa. Gerð
Framhald á bls. 2.
DR. RICHARD BECK:
Haustsýn
Þótt hnykli brýrnar haustsins stormaský,
og haf í ölduróti stynji þungan
við brimsorfnar strendur,
rhér skína gegnum sortann sumur ný,
úr sævi lít ég stíga daginn ungan —
og rétta mér hendur.
Scholarship Winners
Augusla Lynne Magnusson,
of Winnipeg, is the winner of
the $4000.00 General Motors
Scholarship. She has a bril-
liant hi-gh school record in her
s t u d i e s and in her extra-
curricular activities.
Lynne attended Daniel MC-
Intyre Collegiate in Winni-
peg, including grade 12. On
her final examination in 1970,
she had an average of 93%.
Her mark on the school exa-
mination mathematics paper
was 99, and on the Board exa-
mination, 100.
Lynne was editor of the
Daniel Mclntyre Collegiate
student paper, “D.M.C. Eye”,
in 1969-1970. “D.M.C. Eye”
was awarded first rating by
the University of Minnesota
to write the Canadian Maths
National Scholastic Press As-
sociation for the first time
in the twenty years of its
existence.
In the province of Mani-
toba Mathematical contest for
grade 12 students, in 1970,
Lynne placed sixth. She was
district prize winner in the
same contest and was chosen
Olympiad. In the challenging
TV series “Reach For The
Top” Lynne was a member
of the D.M.C. team. She was
a member of the Collegiate
gymnastic team of 1967-1970;
and won the first place medal
in balance beam and free ex-
ercise in the MSSAA provin-
cial championship in March,
1969.
Lynne was a member of
the D.M.C.I. Concert Choir,
Framhald á bls. 2.