Lögberg-Heimskringla - 03.12.1970, Qupperneq 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 3. DESEMBER 1970
7
DÁNARFREGNIR
Vicior R u s s e 1 Einarsson.
Fregnin um lát hans birtist í
L.-H. 29. október s. 1. en þess
var ekki getið að hann lézt
24. október, 1970.
* * =*=
Mrs. Sigrún Bradley eigin-
kona Wilfred Armin Bradley,
454 Kilbride Ave., Winnipeg
lézt 7. nóvember 1970. Hún
var fædd í Winnipeg en ólzt
upp í Vestfold og átti lengi
heima í Clarkleigh héraðinu.
Auk eiginmanns hennar lifa
hana tveir synir, David Arm-
in í Winnipeg og Wilfred
Maurice í Vancouver; þrjár
dætur, Irene — Mrs. John
Coghill í Ottawa, Ruth —
Mrs. Frank Gould í Winnipeg
og Lois — Mrs. Leonard
Andree í St. Boniface; fimmt-
án barnabörn; ein systir,
Mrs. Kári Byron að Lundar.
Hún var í söfnuði St. Luke’s
lútersku kirkjunnar og starf-
aði í kvenfélagi United Col-
lege.
* * *
Guðrún Jónsson fyrrum til
heimilis í Selkirk og St. Pet-
ers, Man., lézt 10. nóvember,
1970 á Bethania Nursing
Home, 93 ára. Hún flutti af
íslandi til Canada árið 1901
og settist að í Selkirk og starf-
aði fyrr á árum mikið að mál-
um lútersku kirkjunnar þar
í bæ. Eftirlifandi eru þrjár
dætur, Elizabeth — Mrs.
Michael K e 11 y í Selkirk,
Caroline — Mrs. John Lind-
strom í McLennon, Alberta
og Mabel — Mrs. Walter
Prince í Elmwood, Winnipeg,
Man.; 12 barnabörn; 31 barna-
barnabarn. Eiginmaður henn-
ar Björn, dó árið 1948.
* * *
Helgi J. Sigurdson, 77 ára,
búsettur að Hnausa, Man.,
lézt 12. nóvember, 1970. Hann
var fæddur að Geysir en
flutti að Hnausum 1926 þegar
hann kvæntist Sigurlaugu og
lifir hún mann sinn; ennfrem-
HJARTASJÚKDÓMAR
OG KRABBAMEIN
ALGENGUSTU
DÁNARORSAKIR
BÆÐI í EVRÓPU
OG AMERÍKU
R ú m u r helmingur allra
dauðsfalla í Bandaríkjunum
á rætur að rekja til hjarta-
sjúkdóma og krabbameins.
Sama ástand ríkir í 20 af
þeim 23 Evrópulöndum, sem
senda heilbrigðisskýrslur til
Al'þj óðaheilbrigðismálastof n-
unarinnar (WHO).
Þessar upplýsingar er að
finna í „World Health Statis-
tics Annual“ sem WHO hef-
ur nýlega sent frá sér og
fjallar um skýrslur frá 1966.
Enda þótt dánartalan hafi
lækkað síðan 1962 í nálega
öllum' löndum Evrópu, hefur
dauðsföllum af völdum
hjartasjúkdóma og krabba-
ur lætur hann eftir sig tvo
syni, Gest og Marino, að
Hnausum og systur, Vigdísi
Sigurdson í North Hollywood,
California.
:Jc íjc *
Sigrid Davidson eiginkona
Frank Ness Davidson, 735
Alverstone St., Winnipeg, lézt
17. nóvember, 1970. Eftirlif-
andi eru eiginmaður hennar
og sonur þeirra, Gerald í
Winnipeg.
* * *
Mrs. Ólöf Anna Oddleifsson,
Árborg, Man., eiginkona Sig-
urðar Óskars, sonar Gests
Oddleifssonar landnáms-
manns varð bráðkvödd 22.
nóvember 1970. Hún var fædd
í Red Deer, Alberta 17. okt.
1890 dóttir hinna merku land-
námshjóna Einars Jónassonar
læknis og Jónínu Sigfúsdótt-
ur. Hann var einn af fyrstu
íslenzku landnámsmönnum á
Gimli 1875. dvaldi síðan nokk-
ur ár að Mountain og í Vest-
ur Canada en vegna beiðni
Ný-íslendinga fór hann aftur
til Gimli 1899 og stundaði þar
lækningar til æviloka. Þar ólzt
plöf upp ásamt mörgum syst-
kinum. Hún stundaði nám i
Gimli Skólanum og útskrifað-
ist frá kennaraskólanum í
Winnipeg. Varð síðan kenn-
ari í Gimli og Framnes skól-
unum þar til hún giftist eftir-
lifandi manni sínum árið 1919
og stofnuðu þau bú í grend
við Árborg og áttu þar heima
síðan. Hún tók góðan þátt í
starfi Únítara kirkjunnar og
öðrum félagsmálum. Auk eig-
inmanns hennar lifa hana
tveir synir, Einar og Sammy,
báðir í Árborg og dóttir Thor-
ey — Mrs. A. Fjeldsted í St.
Boniface; einn bróðir Jóhann-
es Jónasson í Selkirk; tólf
barnaböm og tvær barna-
barnadætur. Útfararathöfnin
fór fram í Únítarakirkjunni í
Árborg; séra Philip M. Pét-
ursson flutti kveðjumál.
meins fjölgað bæði í Banda-
ríkjunum og flestum löndum
Evrópu. Undantekningarnar
e r u Frakkland, Júgáslavía,
Ungverjaland og Austurríki,
en þar hefur dauðsföllum af
völdum hjarta- og æðasjúk-
dóma fækkað. Island og Rúm-
enía eru einu löndin þar sem
krabbamein er á undanhaldi.
í þeim löndum, sem skýrsl-
urnar taka til, eru hjarta-
og æðasjúkdómar langalgeng-
asta dánarorsökin. Bandarík-
in eru efst á blaði, en þar
eru 54,3 prósent dauðsfall-
anna af völdum þessara sjúk-
dóma. Næst kemur Finnland
með 54%. Á öðrum Norð-
urlöndum er hlutfallið sem
hér segir: Danmörk 52,3%,
Island 43,9%, Noregur 50,1%
og Svíþjóð 52,4%. Lægsta
hundraðstalan er í Júgóslavíu,
29,9%. Sé litið á hlutfallið
milli lcarla og kvenna, kemur
í ljós, að hlutfallslega fleiri
konur en karlar deyja af
hjarta- og æðasjúkdómum í
öllum löndum nema íslandi.
FLÓTTINN ÚR
SVEITUNUM
í skýrslunni er einnig fjall-
að um eitt mesta vandamál
fátæku landanna í heiminum,
sem sé flóttann úr sveitum
til borga og bæja. Það eru
einkum ungt fólk sem yfir-
gefur landbúnaðinn og held-
ur til borganna. Það tekur sig
upp af margvíslegum orsök-
um — að nokkru vegna þess
að jörðin veitir ékki nægileg-
an afrakstur, að nokkru
vegna þess að jarðarskikarnir
eru ekki nógu stórir til að
framfleyta a 11 r i fjölskyld-
unni, og að nokkru vegna
þess að því finnst tilveran úti
á landsbyggðinni ömurleg og
finnst það vera einangrað,
bæði andlega og efnalega.
Eftir því sem menntunar-
skilyrðin batna, eykst straum-
urinn t i 1 borganna. Þess
vegna er ofureðlilegt, að ýmis
ríki telji, að betri menntun
orsáki flóttann úr sveitum til
bæja og þar af leiðandi at-
vinnuleysi í þéttbýlinu. Það
hefur víða komið á daginn,
að ungt fólk af báðum kynj-
um, sem lýkur skólagöngu
um 16 ára aldur, lítur á það
sem fullkomna niðurlægingu
að snúa aftur heim til for-
eldrahúsanna til að stunda
landbúnaðarstörf.
\í skýrslunni er þó lögð á-
herzla á, að þéttbýlismyndun
sé eðlilegt fyrirbæri í landi
þar sem efnahagskerfið er að
breytast. 1 stað þess að leit-
ast við að stöðva þessa þróun
eru hlutaðeigandi lönd hvött
til að horfast í augu við hana
og færa sér hana í nyt með
þvi að veita því sveitafólki,
sem er fastákveðið að flytjast
í þéttbýlið, faglega grund-
vallarmenntun, sem búi það
undir vistaskiptin og hina
nýju lífshætti. Fyrir þá, sem
búa áfram í sveitunum, er
fagleg menntun einnig nauð-
synleg, svo þeir geti gert
landbúnaðinn nýtízkulegri og
arðbærari.
Einn helzti þröskuldur þess
að veita sveitafólki í vanþró-
uðu löndunum faglega tilsögn
er ólæsið, sem er algengara
í sveitum en þéttbýli. Jafnvel
fólk, sem einhvern tíma hef-
ur lært að lesa og skrifa,
gleymir einatt þessari kunn-
áttu á nok'krum árum, sé
henni ekki haldið við. Þar
sem þéttbýlið býður upp á
ý m i s lestrarörvandi fyrir-
bæri, svo sem dagblöð, vegg-
spjöld og annað prentað efni,
eru slík örvunarmeðul sjald-
gæf í strjálbýlinu.
Þegar lengra er horft, felst
1 a u s n þessara vandamála í
auknu barnaskólanámi í sveit-
um, en stundum getur orðið
nauðsynlegt að skipuleggja
faglega kennslu fyrir ólæst
fólk, þar sem þörfin er allra
brýnust. Þetta er m. a. hægt
með því að samhæfa raun-
hæfa sýnikennslu munnleg-
um skýringum. Skort á prent-
uðu efni má að vissu marki
bæta upp með því að færa
sér í’ nyt hljóðvarp og sjón-
varp.
Fréííir frá S. Þ.
Garlic-laukur er heilnæmur
Garlic-laukur er sóttvamarmeðal, sem hreinsar blóðið og
hamlar gegn rotnunarsýklum. 1 Adams Garlic Pearles er
sérstök Garlic-olía er notuð hefir verið til lækninga árum sam-
an. Milljónir manna hafa um aldir neytt Garlic-lauks sér til
heilsubótar og trúað á hollustu hans og lækningamátt. Eflið
og styrkið heilsu ykkar. Fáið ykkur í dag í lyfjabúð einn pakka
af Adams Garlic Pearles. Ykkur mun líða betur og finnast þið
styrkari, auk þess sem þið kvefist sjaldnar. Laukurinn er i
hylkjum, lyktarlaus og bragðlaus.
WESTHOME SUPERMARKET LTD.
WHERE QUALITY COUNTS
Comer of Wellington Ave. and Beverley
737 WELUNGTON AVE.—PHONE 774-3491, 774-3492
SHOULiDER LAMB — Cured and Smoked
LEG OF LAMB — Cured and Smoked
Heavy or Medium Smoked Available
By Professional Experls
Good Supply of "RÚLLUPYLSA" Available
WE WILL SHIP ACROSS THE COUNTRY,
IF WE GET ORDERS SOON
WE ALSO SPECIALIZE IN QUALITY MEATS
FOR YOUR HOME FREEZER AT LOW PRICES
"What kind of gift can I get them this year?" is a
question you may be asking yourself right now. Why
not consider these, or one of the many other novel
gift appliances at Winnipeg Hydro Showrooms?
• ELECTRIC BLENDERS
• ELECTRIC CARVING KNIVES
• ELECTRIC CAN OPENERS
• ELECTRIC SHOE SHINERS
• ELECTRIC TOOTH BRUSHES
• ELECTRIC STEAM PRESS VALET
• ELECTRIC KNIFE SHARPENERS
• ELECTRiC HAIR DRYERS
YDRO
405 Portoge Ave.
Phone 946-0201