Lögberg-Heimskringla - 03.12.1970, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 3. DESEMBER 1970
Úr borg og byggð
SILFURBRÚÐKAUP
Á mánudaginn 23. nóvemb-
er áttu þau hjónin, Murray
og Ingibjörg McKillop 25 ára
giftingarafmæli. í tilefni þess
buðu þau hjónin bræðrum
sínum og fjölskyldum þeirra
og fleira nánu frændfólki og
vinum í kveldverðarboð á
International Inn hér í borg
og að kveldverði loknum til
hins fallega heimilis síns í
Stonewall, Man. á sunnudags-
kveldið 22. nóv. Þau voru gef-
in saman í hjónaband í River-
ton.
Foreldrar Ingibjargar voru
Sigurgeir W. og Kristbjörg
Sigurgeirsson bæði fædd og
uppalin í Mikley, síðar búsett
í Riverton, en nú bæði látin.
Brúðguminn er ættaður frá
Dauphin, Man. Frændi brúð-
arinnar séra Skúli Sigurgeir-
son framkvæmdi hjónavígsl-
una í Riverton kirkjunni og
við þá athöfn söng Margrét
Helgason — Mrs. Roland De
Cosse einsöng, og brúðkaups-
veizlunni í Parish Hall mælti
séra Bjami Bjarnason fyrir
minni brúðarinnar og tryggð-
arvinur fjölskyldunnar S. V.
Sigurdson, nú látinn flutti
ræðu.
Þau hjónin Murray og Ingi-
björg stunduðu í allmörg ár
búskap í grend við Dauphin
og Ingibjörg tók mikinn þátt
í söng og músíklífi bæjarins.
Þar fæddist einkasonur þeirra,
Brandt, nú tíu ára, vel gefin
og efnilegur piltur. Mr. Mc-
Killop stundar nú bílaverzl-
un í Stonewall og reka þau
hjónin jafnframt kvikmynda-
húsið þar í bæ.
Það var glatt á hjalla hjá
McKillops hjónunum þetta
kveld. Meðal gesta voru Mr.
og Mrs. Ted Arnason frá
Winnipeg og dáðust allir að
brúðarkökunni sem Mrs.
Arnason h a f ð i bakað og
skreytt af mikilli list fyrir
frændkonu sína.
Við árnum þeim ágætu
h j ó n u m , Murray of Ingi-
björgu, og Brant syni þeirra
allra heilla um ókomin ár.
— I J.
Pastor O. Donald Olsen, a
former Calgary Pastor has
accepted the call of the Exe-
cutive Board of Synod to be-
come the Assistant to Presi-
dent D. W. Sjoberg. On Oct. 1,
the Rev. O. D. Olsen took up
his new duties in the Synod
Office.
The Assistant to the Presi-
dent is a native of Winnipeg,
Manitoba. In Winnipeg he
took his grade school educa-
tion and then went on to
obtain his B.A. at the Uni-
versity of Manitoba. Pastor
Donald Olsen s t u d i e d at
Northwestern Lutheran The-
ological Seminary, where hé
received a B.D. degree in!
1958. That same year he was
ordained by the Icelandic
Synod of the United Luth-
eran Church.
At the time of ordination
Pastor Olsen accepted the
call of the Argyle Lutheran
Parish, Glenboro, Manitoba.
In 1962 he served under the
Board of American Missions
in organizing Hope Lutheran
Church in northwest Calgary.
Since organization he has
served as the Pastor of Hope
Church.
He is married and he and
his wife Beth have five chil-
dren: Brad 15, Elizabeth 12,
Gordon 11, Donna 9, and
Thomas age 5. The Olsens
have now taken up residence
in Edmonton.
The Weslern Canada
Lulheran, Oct. 1970.
The Wesiern Canada Luth-
eran, sem út er gefið í Burn-
aby, B.C., er málgagn The
Western Canada Synod of the
Lutheran Church in America.
Bæta má ég því við, að ný-
lega var ég einn af fulltrúum
kirkju minnar hér í Victoria,
B.C., á umræðufundi um
kirkjuleg mál í Nanaimo,
B.C., sem séra Olsen stjórn-
aði, og fórst honum það prýð-
isvel úr hendi. — R. B.
FRÁ SEATTLE
H é ð a n allt bærilegt að
frétta, nema hvað ískyggilega
mikið atvinnuleysi ríkir hér
um slóðir og ekki séð fyrir
endann á því. Veðurfar gott
og milt, en rignir þó töluvert
af og til.
Thor Viking.
BEZTA JÓLAGJÖFIN
Okkur hafa nú þegar borist
nokkur bréf frá fólki, sem
vill gefa vinum sínum Lög-
berg-Heimskringlu í jólagjöf
fyrir árið 1971. Við sannar-
lega fögnum því að geta sent
þessar jólagjafir og við send-
um hinum nýja áskrifenda
jólablaðið 1970 í kaupbæti
ásamt jólakorti með kveðjum
gefandans.
Jólablað þessa árs kemur
út í næstu viku, 10. desember,
en vitaskuld afgreiðum við
pantanir fyrir L.-H. þvenær
sem er. — I. J.
ÁRSFUNDUR FRÓNS
Ársfundur þjóðræknisdeild-
arinnar Frón var haldin í fé-
lagsheimilinu á Home Street
eftir hádegi, laugardaginn 19.
nóvember s. 1.
Fráfarandi forseti, Skúli
Jóhannsson g e r ð i stuttlega
grein fyrir starfi deildarinn-
ar síðastliðið ár er hámark-
inu var náð þegar félagsheim-
ilið var tekið til afnota í vor
sem leið. Þakkaði hann öllum,
MESSUBOÐ
Fyrsta lúlerska kirkja
John V. Arvidson, Pastor.
Sími: 772-7444
Sunday Services:
9:45 Sunday School:
9:45 and 11:00 Services.
sem það mál höfðu stutt með
fjárframlögum en alls söfn-
uðust um $4,700.00
Forseti taldi það nauðsyn
að fjölga meðlimatölu deild-
arinnar og sem spor í þá átt
hefði verið stofnað fulltrúa-
ráð sem saman stæði af þeim
m ö n n u m og konum sem
deildinni væru vinveitt og
hægt væri að leita til þegar
á lægi. Munu nöfn þeirra er
þetta ráð skipa verða birt við
hentugleika.
Eftir að skýrslur ritara og
féhirðis höfðu verið afgreidd-
ar fór fram kosning stjórnar-
nefndar og er hún nú svo
skipuð:
Forseti:
Hrund Skúlason,
Vara-forseti:
Birgir Brynjólfsson,
Ritari:
Heimir Thorgrimson,
Vara-ritari:
David Jensson,
Féhirðir:
Jochum Ásgeirsson,
Vara-féhirðir:
Mattie Halldorson,
Fjármálaritari:
Baldur H. Sigurdson,
Vara-fj ármálari tari:
Reynir Magnússon.
Prófessor Haraldur Bessa-
son þakkaði fráfarandi for-
seta fyrir frábært starf und-
anfarin ár og minntist sér-
staklega forystu hans í félags-
heimilinu. Öðrum sem úr
stjórninni véku var einnig
þakkað fyrir vel unnin störf
og þeir boðnir velkomnir sem
komið hefðu í staðinn. Auk
forseta gengu úr nefndinni,
þeir próf. Haraldur Bessason,
Páll Hallson og Hjálmar V.
Lárusson. í stað þeirra komu
Hrund Skúleison, Birgir Bryn-
jólfsson, Mattie Halldorson
og Reynir Magnússon.
Frú Hrund Skúlason mælt-
ist til stuðnings félagsmanna
og sagðist vona að deildinni
tækist að halda í horfi ef allir
beittu sér fyrir velferð henn-
ar eins og að undanfömu.
H. Th.
Ritari.
BAHA'I TRÚIN
Bænastund á íslenzku og
ensku, þriðjudaga kl. 7.30 e.h.
Allir velkomnir, 79 Weather-
stone Place, St. Boniface. —
Sími 256-9227.
Höfuðstöðvar á íslandi: Óð-
insgata 20, Reykjavík.
SÓLHEIMAR
Ljóðabók Einars Páls Jóns-
sonar. Nokkur eftirspurn hef-
ir verið eftir þessari ljóðabók
til jólagjafa og hafa nú nokk-
ur eintök borist hingað vest-
ur og fást á skrifstofu Lög-
bergs-Heimskringlu, 303 Ken-
nedy St., Winnipeg 2. Canada.
Verð bókarinnar er $10.00
og er póstgjaldið innifalið í
verðinu.
TIL SÖLU
Þriðja bindi (III) Vestur
íslenzkar æviskrár.
Herdís Eiríksson,
Box 10, Gimli, Man.
Til hægðarauka fyrir mína
mörgu vini á íslandi, Canada
og í U.S.A. er heimilisfang
mitt nú:
Jón J. Sigurðsson,
1027 Felspar St.,
Apt. 11 San Diego,
California, 92109,
PRE-CHRISTMAS PARTY
SATURDAY,
DECEMBER 5th, 1970,
8:00 p.m.
SCANDINAVIAN CENTRE
Dancing will begin at 9:00
p.m. and last till 1:00 a.m.
Refreshments from eight.
A delicious lunch will be
served at about ten o’clock
prepared as usual by Jytte
Jorgensen, Inga Markman
and associates.
Admission: $2.50 per person
— Please reserve early from
members of the Executive —
see above.
So — come all and let’s
have another enjoyable time
together.
STYRKTARSJÓÐUR
LÖGBERGS-
HEIMSKRINGLU
In memory of our laie mem-
ber — Lily Siephanson
The Victoria Ladies Icelandic
Club,
Treasurer Sara K. Ormiston
Club,
2634 Belmont Avenue,
Victoria, B.C... $25.00
* * *
The Icelandic Goodlemplars
of Winnipeg
c/o Mr. J. T. Beck,
975 Ingersoll Street,
Winnipeg 3, Man. . .. $75.00
* * *
Örn Arnason,
7500 Tunisie,
Brassard, Quebec . .. $10.00
* * *
Mrs. Rosa S. Benediktson,
5730-41 St. Crest.,
Red Deer, Alta ....... $4.00
Mrs. Lily S. Taylor,
Clarkleigh, Man...... $4.00
Ónefndur, North Bend P.O.,
B.C................. $12.00
Lára B. Sigurdson,
12-300 Furby St.,
Winnipeg 1, Man...... $5.00
Mr. T. Johnson,
170 Oakwood Ave.,
Winnipeg 13, Man. .... $10.00
Meðtekið með þakklæti,
K. W Johannson, féhirðir,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg 10, Man.
VINAFÉLAG
LÖGBERGS-
HEIMSKRINGLU
Miss Bertha Jones,
2020 Harrison Dr.,
Vancouver 16, B.C.
Miss H. Sigurdson,
2065 Henderson Hwy.,
Winnipeg, Man.
Mrs. Jónína Freeman,
Box 188,
Glenboro, Man.
Miss Ethel Reinholt,
2895 McGill St„
Vancouver, B.C.
J. H. Johnson,
6115-92nd Ave.,
Edmonton, Alta
3ínr (Ehrtsímaíi-
(iitnr A (hift g>tthBrripttmt
The lcelandic Canadian
offers you a Christmas Gift Giving Bargain
A special gift rate is offered for Christmas — 3 or
more yearly subscriptions at $2.50 each, and a gift card
will be sent to announce your gift.
Single subscription $3.00 each including gift card.
Back numbers are available at 75c each post paid.
Mail or phone your orders to:
The lcelandic Canadian
868 Arlington St. Phone: 774-6251 Winnipeg 3, Man.