Lögberg-Heimskringla - 07.12.1972, Qupperneq 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 7. DESEMBER 1972
7
Þú aldrei gleymist
Fáein kveðjuorð í minningu um kæran vin
Jakob F. Krisijánsson, F. á Akureyri 23. maí 1895.
D. 8. oklóber 1972.
Frá hinni fyrstu góð-kynn-
ingu við þig, man eg þig vin-
ur Jakob, eða Kobbi eins og
þú varst ávalt kallaður af
vinum þínum. Það var fyrir
fjörutíu árum síðan, í samfé-
lags lífi Sambands safnaðarins
í Winnipeg, sem ég kynntist
þér fyrst. Þar var glaðværð
góð og gott að vera með í
sámstarfi og söng, þjóðlegum
leikum í athöfn og orði. Þar
var ljós á leiðum og leitað
fram með sókn og vöm eftir
þörf til nytsemdar til vegs og
vita, og lagst á eitt í dyggð og
dáð með heilbrigðri viðleitni
að gera vel og láta sem mest
gott af sér leiða. Þar varst þú
vinur með fjölskyldu þinni,
heill og hugumstór yfir marga
ára tugi. í þessari félags fjöl-
breytni kynntist eg þér og
þínum í söng á löngum leið-
um og ýmiskonar framvindu
átökum sem þér lét vel að
vinna hvar sem þú varst að
verki. Svo með líðandi árum
voru mér ávalt kærar leið-
beiningar þínar þar sem þekk-
ing mín var af skornum
skamti hér, þá nýkominn að
heiman. Með aukinni kynn-
ingu lágu leiðir okkar saman,
sem leiddi til þess, að við kom-
um okkur saman um að sækja
hvorn annan heim einu sinni
í viku hverri til gleðistunda í
leikum og oft skemtilegum
samræðum. Úr þessum heim-
sóknum teigðist svo vel, að
þær stóðu yfir milli heimila
okkar í tuttugu og fim til
þrjátíu ár. En í sambandi við
það mátti engin hindrun
standa í vegi fyrir öðru sem
fyrir kunni að koma og varð
að sinna. Og þessar heimsókn-
ir entust næstum því til þinn-
ar hinnstu stundar. Eftir svo
langa samveru og skemti
stundir, er margs að minnast
og margt að þakka. Og mynd-
irnar geymast og aldrei gleym-
ast. Þó eg minnist þannig
samveru stunda okkar, þá er
það alls ekki ætlun mín að
rekja æviferil þinn. Það læt
eg öðrum í té. En með þess-
um línum langar mig aðeins
til að þakka þér fyrir liðna
tíð, a'l'lar körgu ánægju stund-
irnar sem við hjónin áttum í
húsi ykkar hjónanna á marg-
an veg. Þar var íslenzk risna,
góðhugur og alúð til allra sem
að garði þínum komu. Greið-
vikni og tryggð héldust* þar
ávalt í hendur. Eg þakka þér
einnig góðar leiðbeiningar
þegar eg gékk inn í bræðra-
félagið, þú reistir mig og
nærðir mig af veigum þekk-
ingar þinnar. — Það er margt
sem mig langar að færa í let-
ur, en þó er það aðallega eitt
atriði af mörgum sem mér er
kærast og vermir bezt, sem
mig langar til að leiða inn í
dagsljósið og þakka. Það hafði
sérstaklega . elskulegar sam-
ræður í för með sér og varð
að sönnum veruleika sem okk-
ur hjónum hefði að líkindum
aldrei hlotnast ef þú hefðir
ekki fært góð rök að því hvað
það yrði okkur til mikillar á-
nægju eftir á. Og þar sem þú
hefur nú flutt yfir móðuna
miklu, vil eg festa þetta á
blað, því hefði eg beðið ári
lengur með það sem við rædd-
um um, var lokað fyrir það.
Svo ekki þar um saga sögð.
Umræðumar stóðu í sam-
bandi við ferð heim til íslands
árið 1968. Eitt kvöld er við
vorum í húsi þínu, færðir þú
það í tal hvort við ætluðum
ekki í ferð til Islands með
þessari ferð. Gafst þú í skin
að það væri kominn tími til
fyrir okkur hjónin að skreppa
heim. Eg tók því vel en þó
ekki ákveðið, því hugmynd
okkar hjónanna var sú, að
vera lengur heima en einn
mánuð þegar við færum á
annað borð, því við þyrftum
svo víða við að koma og
dvelja um stund, að við sáum
okkur ekki fært að geta notið
þess á einum mánuði. Við
ræddum þetta oft og mörgum
sinnum þegar leiðr lágu sam-
an. Tíminn leið óðfluga og
stundin sem flugvélin átti að
fara nálgaðist óðum án þess
að ákvörðun væri tekin.
Svo var það einn sunnudag,
eg vaknaði alhress af værum
blundi eins og vanalega. Það
var yndislegt út að líta, ekki
skýhnoðri til á lofti hugsana
vitundar minnar. Eg lá vak-
andi um stund og hugsaði.
Heyri eg þá að konan segir.
„Ertu búinn að vaka lengi?“
Sagði eg henni þá að eg hefði
verið að hugsa um heimferð-
ina. Við ræddumst við um
málið aðeins lítið eitt, því við
vorum ákveðin í hvað við ætl-
uðum að gera.
Hvernig væri að við förum
á fætur og bregðum okkur til
vina okkar, KaKbba og Steinu
til þess að segja þeim ákvörð-
un okkar. Konan tók þessu
með svo miklum fögnuði, að
þá vissi eg fyrst hvað hana
langaði mikið til að fara heim.
En það sem réði úrshtunum
fyrir mér, voru hinar vinsam-
legu lýsingar þínar, vinur
Kobbi af fólkinu og öllum
þeim unaði sem fellur þeim
í fang sem leggur leið sína
heim til að kynnast og skemta
sér með vinum og vandafólki
heima, að sjá gamlar æsku-
stöðvar og breytingar allar til
betrunar hvar sem komið er.
Þegar við svo komum heim til
þín, stóðst þú í dyrunum bros-
andi alveg eins og þú hefðir
átt von á okkur. Við gengum
inn með þér, og næstum því
áður en við gátum sezt niður,
varð mér að orði. „Það var
svo fagurt út að líta í morg-
un, himininn heiður, sólskin-
ið svo glatt, að við urðum að
fara út í daginn og drekka
í okkur fergurðina og angan
jarðar, með því að renna út
til þín í þeim tilganigi að
gleðja þig með því að við
höfum ákveðið að verða ykk-
ur hjónunum samferða til ís-
lands. Eg hafði sérstaklega
mikla ánægju af að sjá hvað
andlifc þitt ljómaði þegar eg
sagði þetta. Þú reist úr sæti
þínu með augun glampandi af
fögnuði um leið og þú kall-
aðir til konu þinnar og sagðir.
„Steina. S t e i n a ! Komdu
hingað snöggvast. í sama bili
birtist Steina brosandi í dyr-
unum og segir. „Hvað er um
að vera?“ Þá sögðu þau bæði
í sameiningu. „Davíð og Rose
ætla að verða okkur samferða'
heim.“
í gegnum allt þetta og
margt annað sá eg þig eins og
þú varst ávalt þegar talað var
um eitthvað í sambandi við
ísland og íslenzku þjóðina.
Svona voru viðtökurnar vana-
lega. Hjálpsemi þín og greið-
semi og dugnaður, héldust í
hendur. Það virtist ávalt vera
nægur tími til að leggja öðrum
lið, hvað mikið sem var til
að gera. Og nú ert þú farinn
vinur. Við söknum þín. Allir
safcna þín. Það var ávinning-
ur að fylgjast með þér á
langri leið í gleði, söng og
starfi. — Líf aldrei deyr. —
Runólfur Marteinsson
ÆVISAGA
SÉRA JÓNS BJARNARSONAR
Bókaútgáfan Edda,
Akureyri.
VERÐ — TÓLF DOLLARA
Fáanllegt frá
JÓN L. MARTEINSSON
Box 238 Keewatin, Ont.
B. T. H. MARTEINSSON
Ste. 8-7184 Neal Sl., Vancouver 14, B.C.
M.
— DO NOT DETACH —
Your Subscription to the Lögberg-Heimskringla
from............19.... to...........19.... $........
Kindly co-operale with the publishers by paying
your subscription in advance.
Date...................19....
Enclosed find.............................in payment
of Lögberg-Heimskringla
subscription $6.00 per year.
All cheques should be made payable to
Lögberg-Heimskringla
303 KENNEDY STREET,
WINNIPEG, MAN., CANADA
R3B 2M7 TELEPHONE 943-9931
Davíð Björnsson.
'What kind of gift can I get them this year?" is
a question ycu may be asking yourself right now.
Why not consider these, or one of the many practical
electrical gifts available at Winnipeg Hydro Show-
rooms?
ÍD-SPEED BLENDERS
CARVING KNIVES
CAN OPENERS
CORN POPPERS
FOOD MIXERS
FRY PANS & DEEP FRYERS
KNIFE SHARPENERS
HAIR DRYERS & SETTERS
wmm
YDRO
405 Portage Ave.
Phone 946-0201