Lögberg-Heimskringla - 30.01.1981, Page 3

Lögberg-Heimskringla - 30.01.1981, Page 3
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981-3 Ferðaskrifstofan Farandi í Reykjavík Nú í lok janúar eru margir farnir að hugsa til sumarsins og sumarfrísins. Þegar við fréttum að ný ferðaskrifstofa hefði hafið starf- semi sína á Islandi datt okkur í hug að ekki væri úr vegi að segja svolítið frá starfsemi hennar ef verða mætti einhverjum vestanhafsins að gagni sem hugsar til Islandsferðar í sumar. Stofnandi og forstjóri ferðaskrif- stofunnar er Haraldur Jóhannsson. Nafn Haraldar er vel þekkt meðal framámanna í ferðamálum á Is- landi. Hann starfaði lengi fyrir Flug- félag Islands og síðan fyrir Loft- leiðir. Þessi tvö félög rugluðu svo saman reitunum og ber það félag nafnið Flugleiðir eins og flestum mun kunnugt. Eftir að Haraldur hætti störfum hjá Flugleiðum vann hann um tíma við móttöku Svissneskra ferðalanga á vegum þarlendrar ferðaskrifstofu á íslandi. Hann hefur og á löngum starfsferli sínum við ferðamál ferð- ast vítt og breitt um heiminn og notið þeirra ferðalaga í ríkum mæli. Hann er því vel kunnugur óskum og kröfum ferðamannsins. Haraldur segir að ferðaskrifstofan Farandi muni annast móttöku erlendra ferðamanna á Islandi og einnig útvegun ferða og fyrir- greiðslu fyiir íslendska ferðamenn erlendis. Hann segir: "En ljúfast lætur mér að vísa veginn og sýna ókunnugum mitt undurfagra land, sem ekkert á sér líkt undir sólunni og í rauninni er í mótun, jarðfræðilega eitt það yngsta á jarðkúlunni". Skrifstofan hefur á boðstólum styttri ferðir daglega. Ymist hálfs- eða heilsdags ferðir út úr Reykjavík til ýmissa staða, sem athyglisverðir eru vegna sögunnar eða vegna nátt- úrufegurðar og/eða hvort tveggja. Má þar til nefna Þingvelli, Gullfoss Geysi, Hveragerði, Hvalfjörð, Grindavík (dæmigert útgerðarþorp), Krisuvík (heitir hverir og laugar), fram með Eyjafjallajökli og fossprýddum Eyjafjöllum til Víkur í Mýrdal. Einnig ferðir í Þjórsárdal og Reykholt (þar sem Snorri bjó) og víðar. Eins dags ferðir með flugi, báðar leiðir, svo sem til Heimaeyjar í Vestmannaeyjum þar sem gaus árið 1973, til Egilsstaða, Akureyrar og Mývatns. Tveggja og þriggja daga ferðir til Hornafjarðar og til Vest- fjarða. Minna má á ferð sem kallast "Highland Experience”. í þá ferð er brottför tvisvar í viku frá Reykjavík. Ekið norður Sprengisand og gist að Hótel Eddu, Stóru Tjörnum. Næsta dag farið að Mývatni og skoðaðar Dimmuborgir, Námaskarð o.fl. Ekið til Akureyrar og gist. Á þriðja degi ekið um Kjalveg til Reykjavíkur. Enskumælandi leiðsögumaður að sjálfsögðu með allan tímann. Lengja má dvölina, ef óskað er, við Mývatn eða á Akureyri. Einnig er boðið upp á vikuferð á hestum undir leiðsögn um Skagafjörð og nágrenni. Þarna er á boðstólum einstök ferð sem hefst 6. júlí n.k. Við erum í góðri samvinnu við Ferðaskrifstofu Ríkisins (Iceland Tourist Bureau), segir Haraldur, og höfum til sölu flestar þeirra stærri ferðir, en þær eru mismunandi að lengd um minni eða stærri svæði landsins, í byggð eða utan. Gistingar á hótelum. Umboðssölu hefur ferðaskrifstof- an FARANDI fyrir allar ferðir Ice- land Safari - Úlfars Jacobsen, fjalla- ferðir, sem hafa orðið vinsælli með hverju árinu,sóttar af öllum stéttum fólks hvaðanæfa úr heiminum. Ferðast er á fjallabílum, gist í tjöldum en sérhannaður eldhúsbíll með eldabusku fylgir eftir. Einnig hefur Haraldur til sölu ferðir Útivistar. Þær ferðir eru að því leyti frábrugðnar þeim fyrrnefndu að hér er aðallega um að ræða gönguferðir og stundum fjallagöngur. Mælir Haraldur sér- staklega með 3 lengri ferðum á vegum Útivistar á komandi sumri, þegar farið verður á vit Oræfanna. Segir hann þessar ferðir ætlaðar þeim sem unna óspilltri og hrika- legri náttúru. Einnig sér ferðaskrifstofan um að Árið 1980 er liðið og alls ekki úr vegi að rifja upp í stórum dráttum veðurfarið á íslandi á því herrans ári, sem sjálfsagt verður lengi minnst á Suðurlandi fyrir sólríkt og bjart sumar. Veðráttan var Islendingum hag- stæð 1980 að frátöldum nokkrum hretum í vetrarmánuðum. Meðal- hiti var heldur lægri en í meðalár- ferði en sólskinsstundir þó miklu fleiri en í meðalári. Vetrarmánuðirnir janúar, febrúar og mars voru mildir og snjóléttir. Mars þó nokkuð næðingssamur og gerði ofviðri mikið um vestan og norðvestanvert landið. Haraldur Jóhannsson, stofn- andi og forstjóri ferðaskrifstof- unnar FARANDI í Reykjavík. skipuleggja ferðir fyrir hópa jafnt sem einstaklinga, jafnvel með lúxus þjónustu ef óskað er. Vormánuðirnir apríl og maí voru mjög mildir, einkum á Norður-og Austurlandi. Sumarið júní - september - var í heild sinni gott alls staðar á landi. Haustmánuðirnir október-nóvem- ber voru fremur kaldir og þurrir og er þetta kaldasta haust í Reykjavík síðan 1930. Desember var kaldur. Aðafaranótt þess 1. des. gerði fárviðri á Norð- austurlandi og miðunum þar undan. Slæm færð var um og eftir miðjan mánuð og lokuðust fjallvegir víða. Þann 18. desember var hiti 10 gr. undir meðallagi í Reykjavík. En þó desember væri kaldur, Haraldur segir ennfremur að ef fyrirvari sé nægur geti hann útvegað laxveiðileyfi en þau eru dýr á ís- landi, enda þar einhverjar vinsælustu laxveiðiár í heimi. Silungsveiði er hinsvegar oftast hægt að útvega með skömmum fyrirvara við afbraðgs aðstæður. Nýlega hefur einnig verið komið upp sjóstangarveiðiútgerð á Húsavík sem hægt er að fá aðgang að. Enn eitt af því sem Ferðaskrif- stofan Farandi býður upp á er dvalartími á góðum sveitaheimilum, sem vel eru í sveit sett á íslandi. Sumum þessara bæja fylgja silungs- veiðileyfi og hestar til reiðferða eru söðlaðir ef þess er óskað. Að lokum lét ferðalangurinn og forstjórinn Haraldur Jóhannsson þess getið að öllum væri velkomið að senda honum línu ef óskað væri upplýsinga um ferðir þær sem hann hefur upp á að bjóða á íslandi, til FARANDI TRAVEL SERVICE AND TOURS LÆKJARGATA 6 A, Reykjavík, Iceland. M. verður þessa árs, eins og fyrr sagði, vafalaust fyrst of fremmst minnst vegna góða veðursins. ísland hinn 9. júni 1980 kl. 10.17 að morgni. Myndin var tekin úr gervihnetti. Varla sást skýhnoðri á himni; dæmigerð mynd fyrir sumarið góða 1980. BUYING OR SELLING REAL ESTATE IN WINNIPEG AND IN THE INTERLAKE CALL Interlake Agencies Ltd. Winnipeg..... 284-1490 Gimli........ 642-8859 Arborg ...... 376-5509 Selkirk...... 482-6944 Stonewall ... 467-8930 Síðbúin Arthur K. Swainson liðsforingi og dómari lést langt um aldur fram í Ottawa fyrir rúmu hálfu öðru ári síðan, þ.e. 27. ágúst 1978. Arthur var fæddur í Glenboro, Manitoba þann 8. ágúst 1931, sonur þeirra hjóna Líneyjar og Ingólfs Swainson. Arthur var hámenntaður maður. Árið 1955 lauk hann almennu lögfræðiprófi frá Manitobaháskóla og hóf þá störf á lögfræðiskrifstofu kanadíska hersins. Næstum því ára- kveðja tug síðar hélt hann lögfræðináminu áfram og lauk meistaragráðu í lögum frá Manitobaháskóla árið 1976. Hann starfaði á ýmsum stöðum, bæði hér í Kanada og í Evrópu og var skipaður dómari (Judge in the Judges' Advocates Of- fice) skömmu fyrir andlát sitt. Arthur var kvæntur Marion Ol- son, og eignuðust þau þrjár dætur. Arthur heitinn hlaut ýmiss konar heiður í lifanda lífi. Má rétt nefna heiðurspening hennar hátignar Elísabetar drottingar sem honum var veittur árið 1977., Eftir lát Arthurs var efnt til sér- stakrar gróðursetningar til minn- ingar um hann í honum svonefnda kanadíska lystigarði í ísrael. Þess skal að lokum getið að af hreinni vangá en ekki yfirlögðu ráði hefur það dregist miklu lengur en góðu hófi gegnir að minnast Arihurs K. Swainson hér í blaðnu. H.B. Sólskinsárið 1980

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.