Lögberg-Heimskringla - 01.08.1981, Blaðsíða 6

Lögberg-Heimskringla - 01.08.1981, Blaðsíða 6
6-WINNIPEG, HÁTÍÐARBLAÐ 1981 17. júní hátíðahöldin í Reykjavík Hátíðahöld í tilefni 17. júní í Reykjavík fóru fram með miklum hátíðarbrag. Hófust þau með því að forseti borgarstjórnar, Sigurjón Pétursson lagði blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Hátíðahöld á Austurvelli fóru fram með hefðbundnum hætti. Flutt voru ávörp og forseti fslands, Vigdís Finnbogadóttir, lagði blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Athöfninni lauk með ávarpi fjallkonunnar, er Helga Stephensen leikkona flutti. Mikill mannfjöldi var samankominn í miðbænum af þessu tilefni. Síðar um daginn voru skrúðgöngur fyrir börnin og hina fullorðnari og skemmtiatriði í miðborginni. Um kvöldið léku hljómsveitir fyrir dansi í Laugardalshöll, og voru táningarnir í meirihluta á þeirri samkomu. Rekstur Lord Selkirk II gengur mun betur en á s.l. ári Blaðið hafði samband við David Einarson, einn af eigendum Lord Selkirk og innti hann eftir hvernig rekstur skipsins gengi á þessu sumri. David á heima í Dallas, Texas, en var í heimsókn í Winnipeg m.a. til að leysa bróður sinn Harald, aðalframkvæmdastjóra fyrirtæksins af í nokkra daga, en Haraldur er á ferðalagi í Noregi. David kvað rekstur Lord Selkirk ganga vel. Eins og mörgum mun kunnugt er hér um að ræða stærstu skemmtisnekkju á vötnum Norður Ameríku. Skipið hóf ferðir sínar á Win- nipegvatni þann 24. maí. Áætlun þess er með þeim hætti að farþegar geta valið á milli 5 daga siglingar, þ.e. frá mánudegi til föstudags, helgarferðir, frá föstudegi til sunnu- dags, og stuttra ferða á sunnu- dagskvöldum. Farþegarými er næstum fullbókað þessa stundina, en allmikið vantar á fulinægjandi nýtingu í ágúst. Nýting farþegarýmis er nú um 60%, en þeim bræðrum telst svo til að 75% nýting sé hæfilegt markmið og raunar sú hlutfallstala sem tryggi öruggan rekstur. Naumast þarf orðum að því að eyða að rekstur skemmtiferðaskips á Winnipegvatni er ýmsum takmörkunumháður. Þarf ekki á ann- að benda en að ísa leysir ekki af vatninu fyrr en í maí og í október er allra veðra von. Á sínum tíma lét Manitóbastjórn byggja Lord Selkirk II. Var þá í mikið ráðist og ný leið opnuð um einn áhugaverðasta hluta Manitóbafylkis. Því miður varð svo mikill halli á útgerð stjórnarinnar að þar kom að hún afréð að selja hið ágæta skip Lord Selkirk II. Hlupu þeir Haraldur og David Einarson þá í skarðið með öðrum bjart- sýnismönnum, og má með sanni segja að hugvitsemi þeirra hafi vel dugað því fyrirtæki sem hlýtur að vera stolt allra íbúa fylkisins. - Z I Compliments of... z Z to Our Friends and Customers : = ☆ : = LUNDAR BAKERY : Z Mr.andMrs.ERIC JOHNSON, Proprietors ; Z PHONE LUNDAR 762-5341 - mm 3 "Home of the Bread that made Mother Quit Baking" Z 3 And Home Made Vinarterta Z n1111111 iii 111111111111111 ii 11 iiii11111ii■•i■11iru11■ii■11■■11■iii■ip HUGHEILAR ÁRNAÐARÓSKIR DR. GESTUR KRISTJANSSON DR. HERMANN JOHNSON DR. GUDMUNDUR LAMBERTSEN DR. OSKAR OLSON Phone 633-7281 Winnipeg Logan and Keewatin WESTBROOK MEDICAL CENTRE THE VIKING MOTOR HOTEL AND THE NORSEMAN MOTEL 37 Rooms, Dining Room Cocktail Lounge, Banquet Room, Beverage Room, Vendor, Swimming Pool. Gimli, Manitoba (204) 642-5181 RESTAURANT Authentic Danish Cooking at Very Reasonable Prices Dinner-Srn0rrebr0d-Danish Pastries served daily Monday to Thursday -11:30 a.m. - 8: 30 p.m. Friday & Saturday -11:30 a.m. -11:00 p.m. 1875 Pembina Highway “WINE LICENSE” Phon« 261-1446 Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi FORSETI: JOHANN S. SIGURDSON Lundar, Manitoba Styrkið félagið og deildir þess, með þvi að gerast meðlimir. Ársgjald: EINSTAKLINGAR S3.00-HJÓN $5.00 Sendið ársgjöld til gjaldkera ykkar eigin deilda, eða til Lilju Arnason, 1057 Dominion St.( Winnipeg, Manitoba

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.