Lögberg-Heimskringla - 18.12.1981, Blaðsíða 4

Lögberg-Heimskringla - 18.12.1981, Blaðsíða 4
4-WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981 Hugleiðingar um jólin Frá sjónarmiði sagnfræðinnar er jólahátíðin yngst af stórhátíðum kristninnar. Fyrst er páskahátíðin, sigurhátíð litsn.s, þá hvítasunnan, afmælisdagur kirkjunnar, þegar andi Guðs kom lifandi af himnanna hæð til að kalla, upplýsa og helga þá sem hafa eyru til að heyra og sam- visku til að svara. En jólahátíðin með sinn fögnuð og friðarboðskap hlaut ekki opinbera viðurkenning kirkjunnar fyrr en löngu síðar. I ár- daga urðu menn ekki uppnæmir þótt fátækum hjónum fæddist barn undir beru lofti, í hellisskúta eða heytóft. Engum datt í hug að leggja slíkt á minnið, eða festa á bókfell. Þó bar það við ef menn urðu frægir, að grafist var fyrir um uppruna þeirra og æskuskeið. En þá var sú vitneskja oft horfin inní móðu gleymskunnar, og enginn á lífi sem kunni frá slíku að segja. Þannig var ástatt er menn tóku fyrst að reyna að staðfesta afmælisdag og fæðingarár Jesú Krists. Það eina sem var ótvírætt í þessu efni, var að Kristur var uppi á tímabili sem var af- markað í sögunni af vissum valdamönnum. Voru því stjórnarár þeirra höfð til viðmiðunar í þessari rannsókn. Svo sem kunnugt er, liggja frumheimildirnar um fæðing Jesú, -hin fyrstu jól - fyrir í öðrum kapítula Lúkasarguðspjalls, og einnig í öðrum kapítulanum í Matt- eusarguðspjalli. Báðir hnýta þeir viðburðinn, hvor á sinn hátt, við nafnkennda rómverska stjórn- málamenn. Lúkas nefnir Agústus keisara, og Kýreníus landstjóra á Sýrlandi, en Matteus dregur Heródes hinn illræmda barna- morðingja inná sviðið, en um hann vita menn að hann dó árið 4. f.K., en þá var Jesús ungbarn að aldri. Aug- ljóst er að Lúkas var ekki að reýna að semja sagnfræðilegt vísindarit er hann færði frásögu sína í letur. Hann er að bera vitni og boða trú, og notar því tilvitnanir og talshætti sem voru í almennri notkun og allir skildu. Umræddur Rómarkeisari hét t.d. réttu nafni Gajus Julíus Cæsar Octavianus, en "ágústus” (hinn upphafni) var eins konar heiðurstitill sem "senatið" gaf honum eftir að hann hafði verið keisari í nokkur ár. Kýreníus var landstjóri Rómverja á Sýrlandi á árunum 7-2 f.K. og á þeim árum fór sú skrásetning fram sem varð til þess að uppfylla spádóminn um Premier's Message the New Year with hope and con- fidence. History has shown that our pro- vince is adaptable. We have’ suc- cessfully met challenges in the past, and can do so again. Our real strength lies in our people, and add- ed to this is a province with basic economic strength, with a richness of natural and agricultural resources, and with opportunities for growth and development. With this positive and underlying strength, and with a sense of pur- pose we can, together, reach new heights of social economic achieve- ment, and make our tomorrow even brighter. It is in this atmosphere of hope and expectation that I wish each of you happiness and success in the days that lie ahead. Happy New Year! Howard R. Pawley Lögberg - Heimskringla Published every Friday by LÖGBERG- HEIMSKRINGLA INCORPORATED 1400 Union Tower Building, 191 Lombard Avenue, Winnipeg, Manitoba R3B 0X1 — Telephone 943-9945 EDITOR: Jónas Þór ADVERTISING AND SUBSCRIPTIONS: Cecilia Ferguson REPRESENTATIVE IN ICELAND: Magnús Sigurjónsson Umboðsmaður blaðsins á íslandi Skólagerði 69 Kópavogi, Sími 40455 Pösthólf 135 Reykjavík Typesetting, Proofreading and Printing — Typart Ltd. Subscription $15.00 per year - PAYABLE IN ADVANCE $20.00 in Icelánd — Second class mailing registration number 1667 — All donations to Lögberg-Heimskringla Inc. are tax deductible under Canadian laws. As we enter 1982, Manitoba and the rest of the nation face some serious challenges but we can face Howard R. Pawley Premier of Manitoba fæðingu Jesú í Betlehem. Ótilkvödd hefðu foreldrarnir ekki tekist slíka langferð á hendur, eins og ástatt var. Fundið hefir verið að losaralegu orðalagi Lúkasar þar sem hann talar um skrásetningu sem á að ná yfir "alla heimsbyggðina.” Samkvæmt hugsunarhætti þeirra tíma var heimsbyggðin takmörkuð við röndina umhverfis Miðjarðarhafið. Að vísu höfðu menn fregnir af einhverjum mannverum fyrir norðan Alpafjöll og yfirleitt ekki umtalsvert fólk. Þjóðadrambið er svo sem ekki nýtt fyrirbrigði, það gægist jafnvel fram á bak við orðin í sjálfu jólaguðspjallinu. En það var ekki aðeins gleymska manna, og skortur á nákvæmum heimildum sem torveldaði jólahald kristinna manna í fornöld. Það, að minnast afmælis Jesú Krists, var hvorki meira né minna en land- ráðasök. Hér var sem sagt um árekstur að ræða við hefðbundna keisaradýrkun, sem var hin lögboðna ríkistrú. Yfirleitt voru Rómverjar frjálslyndir í trúmálum, létu sig litlu skipta trúarbrögð þegnanna, svo framarlega sem þeir sýndu keisaranum tilhlýðilega lotn- ingu á tilsettum tíma. í því efni var engin frávikning, eða samkeppni leyfð eða liðin. Er það kom í ljós að kristnir menn voru teknir að halda samkomur og tilbiðja einhvern útlendan Guð, þá hófust hinar grimmilegust ofsóknir á hendur þeim. Undir slíkum kringum- stæðum gat almennt og opinbert jólahald ekki komið til greina. Löngu áður en venjulegt jólahald kom til sögunnar héldu menn svo nefnda epífaníuhátíð, en það orð þýðir opinberun, eða birting. Var áherzlan þá helst á skírn Jesú, og frásögunni um stjörnuna í austri og vitringana frá austurlöndum. Var þá trúboði ráðstafað, og menn hvattir til að láta skírast, að dæmi Jesú. Síðar, er dagsetning jólanna hafði verið ákveðin var epifaníuhátíðin færð yfir á næstu sunnudaga eftir jól. (þrettándann.) Þá fyrst er kristna trúin hafði hlotið viðurkenningu ríkisvaldsins kemur jólahátðin, sem fæðingarhátíð Krists til sögunnar. En það er næsta merkilegt hvernig 25. desember varð fyrir valinu sem afmælisdagur. Sennilegt er að þar hafi nokkur málamiðlun komið til greina, og aðlögunarhæfni kristinna leiðtoga. Rómverjar höfðu er hér var komið lengi hallast að svo nefndri Mithra trú, sem var samsteypa úr persneskum trúarbrögðum og heimspeki, að viðbættri keisaradýrkun þeirra sjálfra. Að Framh. á bls. 9 New Year's message The New Year gives us all an op- portunity to pause from the hectic pace of our lives. It is also a time to reflect on the achievements of past > years and to look forward to the New Year with its many challenges and opportunities. As 1982 marks our first New Year in Government House, it is a very special occasion for my husband and I. It is a time of warmth, friendliness, enthusiasm, and hope for the future. May I take this opportunity to ex- tend my sincere best wishes to each of you for a New Year filled with personal achievement and satisfac- tion. Pearl McGonigal Pearl McGonigal Lieutenant-Governor of Manitoba Jólakveðja frá Birgi Brynjólfssyni, ræðismanni * Islands í Winnipeg Á undanförnum árum hefur sam- band Vestur-Islendinga við ísland eflst og er ánægjulegt til þess að vita. Fjöldi Vestur íslendinga vitjar lands forfeðranna ár hvert og straumur íslendinga til Vesturheims þyngist stöðugt. Megi farsælt áframhald verða á þessum gagnkvæmu heimsóknum. Þá heldur Lögberg-Heimskringla velli og þótt stuðningur áskrifenda sé mikill má gera betur. Fátt tengir betur þjóðarbrotið í Norður Ameríku saman en nærri aldagamalt dagblað. Stuðningur ok- kar er því nauðsynlegur. Ég óska öllum Vestur- Islendingum, nær og fjær, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Birgir Brynjólfsson

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.