Lögberg-Heimskringla - 15.10.1982, Side 3
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982-3
KVEÐJA FRÁ ÍSLANDI
Guðríður Gíslason
f. 17. júní 1886 d. 21. ágúst 1982
Sagt er að þegar ævisólin gangi til
viðar, lýsi stjörnur endurminning-
anna. Og þær stjörnur ljóma skært
þegar hjarta mitt kveður mína kæru
Guðríði frænku — eins og ég oftast
kallaði hana, þó að hún stæði mér
miklu nær en venjuleg frændsemi
verkar, og okkar kynning byrjaði
líka fyrr en mín vitund vaknaði,
þegar hún tók mig tveggja vikna
gamla frá móðurbrjóstinu og flutti
mig um langa og erfiða leið til
móðurforeldra minna. Eg var þriðja
barn foreldra minna á þremur árum
og faðir minn sjúkur er ég fæddist,
svo móðir mín varð að þiggja boð
foreldra sinna að taka mig í fóstur
því neyðin er harður húsbóndi, og
mamma varð að vinna fyrir heimil-
inu, en hjálp eða styrkir þekktust þá
ekki í neinni mynd á Islandi ef
hjónin vildu ekki slíta samvistum
eða missa mannréttindi.
En að flytja ungbarn langa leið á
sjó og landi hér, á fyrsta tug þessarar
aldar þurfti mikla hugdirfð til, og þá
sýndi blessuð Guðríður frænka,
tvíburasystir móður minnar, hvílíku
fádæma þreki hún var gædd, að
takast þá ferð á hendur þegar allra
veðra var von í október, á litlu og
lélegu skipi. í sex sólarhringa
hjúkraði hún mér og hélt í mér lífinu
á kúamjólk sem hún með erfiðis-
munum gat útvegað í smáþorpum
þar sem skipið lagði að landi
á leiðinni.
Og loks sté hún á land, en ekki
voru þó erfiðleikarnir búnir. Þar
mætti hún bróður sínum með hesta
til að flytja okkur síðasta spölinn,
sem reyndar var tíu tíma ferð um
fjöll og byggð sem farin var
hvíldarlítið, og hún hélt mé.r stöðugt
í faðmi sér á hestbaki, vafinni í hlýja
sæng, uns hún að kvöldi sjöunda
dags ferðarinnar lagði mig í út-
breidda arma ömmu minnar og afa,
Iceland may be the land
of Big Salmon, but would
you believe Chicago?
CHICAGO, ILL. — Everyone
knows that Iceland is where you go
for the big salmon. But, would you
ever believe you can catch some in
Chicago? This picture is proof. From
left are: Tom Loughery, Icelandair
Regional Sales Manager in Chicago;
Birgir Thorgilsson, Marketing
sem unnu mér víst meira en eigin
börnum, sem voru þrettán að tölu,
þó ekki kæmust öll til aldurs, en ég
var líka þriðja tökubarnið sem þau
ólu önn fyrir.
Hún Guðríður frænka átti ekki
langt að sækja dugnað sinn, kjark og
fórnfýsi sem hún ávaxtaði með
mikilli sæmd. Þetta ferðalag hennar
þótti frækilegt afrek — og fleira
vann hún af sömu fórnarlund og
dugnaði áður en hún fylgdí fleiri
löndum sínum vestur um haf í leit
að betri lífskjörum en blessað gamla
landið hennar gat þá í té látið.
Hversu sárt heimþráin kvaldi sumt
af þessu fólki vissu fáir og Guðríður
gleymdi aldrei gamla Fróni né fólki
sínu þar, því ættartryggðin var
henni í blóð borin, og í mínum
fýrstu minningum ber hátt elsku-
legu bréfin hennar, skrifuð til
foreldra og systkina, sem bárust
þeim sem bjartir geislar frá tryggð
hennar og kærleika úr fjarlægðinni.
Hennar var líka oft minnst og lof-
aður Guð fyrir að hún lenti í göðum
höndum og eignaðist yndisleg börn
—- sem ég einnig hef orðið svo
lánsöm að njóta yls og örlæfis frá, í
ógleymanlegri ferð okkar hjóna til
þeirra heimkynna.
Engum sem kynntist Guðríði þarf
að segja frá göfgi hennar og gjaf-
mildi sem öllum vildi gott gjöra, sú
hugsun entist henni til æviloka,
ásamt þakklæti til allra sem reynd-
ust henni vel — ekki aðeins börnum
hennar og skyldmennum þeirra,
heldur einnig landi og þjóð sem tók
hana að hjarta sínu svo hún undi hag
sínum ánægð.
Níutíu og sex ár, er hár aldur —
jafnvel þó miðað sé við landa henn-
ar hér, þar sem konur eru nú taldar
ná hæstum aldri allra þjóða — og
sextíu ár af þeim tíma dvaldi hún
fjarri gamla landinu sem hún ávallt
elskaði. En hún gleymdist heldur
ekki, og fjöldamörg skyldmenni,
yngri og eldri senda henni síðustu
kveðjuna, þakka henni og blessa
minningu hennar, og árna öllum
góðs er veittu henni brautargengi
vestra.
Um líf og starf frænku minnar þar
ræði ég ekki, því eru aðrir betur
kunnugir en mig langaði bara með
línum þessum að votta henni látinni
virðingu mína og ást. Hún lifir í
hugum ættfólksins hér heima.
Guð blessi minningu Guðríðar
frænku.
Emilia Biering
Director of Iceland Tourist Board in
Reykjavík, Iceland; and David
Handel of Chicago, who caught this
23 pound King Salmon in the Lin-
coln Park Lagoon, just behind the
famed zoo of the same name in the
city. Fish enter the lagoon from
Lake Michigan.
THEBESTPURT
OFYOUR TRIPTO
EUROPE COIILD BE
ASTOPOVER
INICELAND.
STOPOVER TOURSINCLUDING HOTEL.TRANSFERS.
SIGHTSEEING AND SOME MEALS ATINCREDIDLY
LOWPRICES. FR0MS48.1 DAY;$72.2 DAYS;
S97.3DAYS*
, Now you can take advantage of Icelandair’s inexpensive Stopover
Tours of Iceland while you’re taking advantage of our low fares from
New York to Europe.
/ Iceland is a land of volcanoes, giant waterfalls, Viking museums,
glaciers, geysers, concerts, art shows, duty-free shopping and
hot-springs pools.
You’ll get transfers between airport and Reykjavik, roóm at the
first-class Hotel Loftleidir or Hotel Esja, continental breakfast daily,
city sightseeing tour, and more. All at unbelievably low prices. From
$48,1 day; $72, 2 days; $97, 3 days. Discounts up to 50% on all
Icelandair domestic fares, car rental rates and Reykjavik Excursion
Tours also included.
. So on your next trip to Norway, Sweden, Denmark, Great Britain
or Luxembourg, stop in Iceland for a few days.
For further information see your travel agent or call 800/555-1212 for the toll
free Icelandair number in your area.
*Prices are per person, double occupancy and are in effect October 1 through
March 31,1983 and subject to change.
ICELANDAIR&
NOW MORE THAN EVER YOUR BE5T VALUE TO EUROPE
I