Lögberg-Heimskringla - 11.02.1994, Blaðsíða 8

Lögberg-Heimskringla - 11.02.1994, Blaðsíða 8
8 • Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 11. febrúar 1994 Helgi Tómasson Sleeping Beauty The famous Icelandic ballet dancer, recently choreographed the ballet Cinderella in Copenhagen. His work has received much praise. _____________ A number oflcelandic ballet enthusiasts hosted a luncheon in honor ofHelgi and his wife Marlene the day after opening night. where they received gifts and greetings from Iceland. Helgi’s first steps on the ballet fíoor were in Iceland in the ballet Dimmalimm in 1954. BALLETT Helgi Tómasson með íslenskum ballettunnendum Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davídsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Hópur íslenskra áhugakvenna um ballett bauð Helga Tóm- assyni og Marlene konu hans í hádegismat daginn eftir frumsýn- ingu á ballettinum Þyrnirós, sem Helgi færði upp í Konunglega leik- húsinu. Þar voru honum færðar gjafir og rifjuð upp fyrstu skref hans á ballettsviðinu í Þjóðleikhús- inu í Dimmalimm 1954. Viðstadd- ar voru meðal annarra Sigríður Ármann, sem var fyrsti ballett- kennari Helga á sínum tíma, Lilja Hallgrímsdóttir, sem skrifaði um ballett í Morgunblaðið áður fyrr, María Gísladóttir listdansstjóri Þjóðleikhússins, Salvör Nordal framkvæmdastjóri íslenska dans- flokksins, auk sonar Helga og Guðjóns bróður Helga. Lilja Hallgrímsdóttir færði Helga kveðjur að heiman, frá bal- lettkennurunum Sif Þórs, Ingi- björgu Bjömsdóttur og Eddu Scheving, ásamt gjöf frá hópnum, silfurbókahníf með laxi. Um leið og Helgi tók við gjöfinni sagði hann að þetta þýddi að hann yrði að koma sem fyrst til ísland og renna fyrir lax. Guðbjörg Skúla- dóttir færði Heiga bók með ís- lenskum landslagsmyndum og Ingunn Jensdóttir gaf honum veggplatta með mynd úr Dimma- limm sem hún hafði málað, en Ingunn var ein af þeim sem var með í Dimmalimm. Helgi þakkaði gjafirnar og sagði það sjaldgæft að íslendingar kæmu á sýningar sínar og fáir landar hefðu séð hann dansa eða þau verkefni, sem hann fengist við. Því hefði verið sérstök tilfinn- ing að vita af stórum hópi Islend- inga í salnum. Um verkefnin fram- undan sagði hann að um þessar mundir væri verið að frumsýna hefðbundna jólasýningu ballett- flokksins í San Fransisco, Hnetur- bijótinn við tónlist Tjaikovskíjs. Væri þetta í fyrsta sinn sem hann væri ekki viðstaddur hana. Fyrir utan venjulegan rekstur væru framundan sýningarferðir til Hawaii og Washington og í júlí yrði haldið til Parísar. Þar verða ~—“ Morgunblaðið/SD Helgi Tómasson og Marlene í hópi íslenskra ballettunnenda. á dagskrá ballettar eftir Helga, annars vegar við Árstíðir Vivaldis og hins vegar við tónlist Kurts Weils, en sá ballett þótti einstakur og mikill sigur fýrir Helga þegar hann var frumsýndur á sínum tíma. í vor verður frumsýndur nýr ballett eftir Helga um Rómeó og Júlíu sem Jens-Jacob Waarsae hefur gert búninga og sviðsmynd við. F.v. María Gísladóttir list- dansstjóri, Guðjón Tómas- son sonur Helga, Marlene, Helgi Tómasson og Sigríður Ármann ballettkennari.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.