Alþýðublaðið - 09.11.1960, Side 3

Alþýðublaðið - 09.11.1960, Side 3
ÞEGAR blað’ÍV fór í pressuna hafði Kermefly forustuna í Connecticut, s«m kýs 8 kjör- menn, Massachusetts, 116 kjör menn. Sömuleiðis hafði hann meitihluta í Alabama, Geoigia, Arkansas, Norður- og Suður- Carolina, Texas, Ohio og Penn- sylvania. Nixon hafði meirihluta í New Jersey, Indiana, Michi- gan, Wisconsin, Kentucky og Ténnessee. Auk þess í Maine, Vermont og New Hampshire. Úrslitin voru þá enn mjög > óviss, enda þótt rafmagnsheilar nokkurra útvarpsstöðva spáðu Kennedy sigri. Bob Kennedy, bróðir John Kennedy, sagði um þetta leyti að útlitið fyrir bróð j ur sinn væri mjög gott. Talið er að kaþólskir menn í Norðurríkjunum hafi almennt kosið Kennedy. en Eisenhower hlaut flest atkvæði þeirra síð- ast. Ekki er enn vifað hvernig trú máiin hafa haft áhrif á mótmæl endur í Suðurríkjunum, en saxn kvæmt fyrstu tölum virðast þeir hafa kosio Demókrata eins og oftast áður Ljóst er að Demókratar har'a uimið mikinn sigur í þingkosn- ingunum. Þeir hafa tryggt sér 72 þingsæti í fulltrúadeildinni, en Repriblíkanar aðeins 2,1 öld- ungadeildarkosuingunum bafa Demókratar einnig örugga for- ustu. Vinstri stjórnin bauð samninga Utanríkisráðherra hóf mál sitt á því, að drepa á mál- flutning stjórnarandstæðinga við umræðurnar. Kvað hann mikið af ræðum þeirra hafa farið í að gagnrýna það, að rík- isstjórnin hafi tekið upp við- ræður við Breta og með því hafi hún brotið a.m.k. 10 ára gamla hefð. Afsannaði ráð- herra þessa kenningu rækilega meg því að rekja í stórum dráttum gang þessara mála undanfarinn rúman áratug. G. í. G. las upp bókun úr fundargerð utanríkismála- nefndar frá 9. marz 1948, þar sem fulltrúi kommúnista í nefndinni, Einar Olgeirsson, lýsir yfir samþykki sínu við landgrunnslögin á þeim for- sendum, að leitað yrði sam- stöðu við aðrar þjóðir og ís- lendingar ráðfæri sig við aðra, áður en ráðist sé í útfærslu fiskveiðilandhelginnar. Ráðherrann rakti að nýju útgáfu hvítu bókarinnar frá 1954, þar sem fram kémur, að Ólafur Thors, forsætisráðherra 1952, hafi þá farið til. Lund- úna til viðræðna og kynning- ar á afstöðu íslands áður en reglugerðin um 4 mílurnar var gefin út. Kvað ráðherrann þannig skjallega sannað, ótví- rætt, að stefnunni frá 1948 hafi verig fylgt. Sama hafi gerzt 1958, nema í miklu ríkari mæli. Þá fóru fram viðræður innan Atlantshafsbandalagsins frá því í maí og fram í sept- ember og allt gert til að reyna að fá bandalagsþj óðir okkar til að fallast á útfærsluna. Utan- ríkisráðherra kvað þær við- ræður hafa leitt til þess, að einungis Bretar hefðu haldið áfram veiðum innan 12 míln- anna, en áðrar NATO-þjóðir virt þær í verki. En það gerðist meira en yið ræður, sagði ráðherrann. Rík- isstjórnin sendi 8. maí 1958 tillögur til NATO, þar sem, — ef bandalagsríkin viður- kenndu 12 mílurnar og vissar grunnlínubreytingar gegn því að fá að veiða um tak- markaðan tíma á ytri 6 míl- unum, — ríkisstjórnin tjáði sig reiðubúa til að endurskoða afstöðu sína varðandi útgáfu 12 mílna reglugerðarinnar án tafar. Kvað ráðherrann Al- þýðuflokkinn og Framsóknar flokkinn hafa staðið að þess- ari tillögu og Sjálfstæðisflokk urinn mundi hafa verið sam- þykkur þeim líka. Sagði G. f. G. að það væri furðulegt að heyra nú Hermann Jónasson halda því fram, að viðræður væru brot á hefð eftir það, sem á undan hefði gengið. Tilboðinu var hafnað, sagði utanríkisráðherra, en málinu var ckki lokið innan NATO. Reglugerðin var gefin út 30. júní 1958, en viðræðurnar héldu áfram. 13. ágúst var svo frá NATO uppástunga um við ræðugrundvöll til lausnar málsins og óskað gagntilboðs frá íslendingum. Því var hafn að, sagði ráðherrann, og 22. ágúst sendu Alþýðuflokkur- inn, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn svar, þar sem minnt var á fyrra til- boð íslendinga í málinu og þar við sat. Kvað ráðherrann undarlegt að hlýða á mál- flutning Hérmanns nú, þar FramhaUl á 14. siðu. New York, 8. nóv. (NTB). Þátttaka í forsetakosningun- um í Bandaríkjunum hefur ald rei verið eins mikil og í dag. Þegar síðast fréttist var jafnvel húizt við, að 70 milljónir manna hefðu neytt atkvæðis- réttar af þeim 83 milljónum, er látið höfðu skrá sig. Kjörstöð- um var lokað klukkan 11 eftir ísl. tíma á austurströndinni, en þremur tímum síðar á vestur- ströndinni. Talsmenn beggja flokkanna töldu, að hin mikla kosningaþátttaka hefði orðið sínum flokki til framdráttar. Demókratar segja, að þeir vinni vegna þess, að kosningaþátt- takan í borgunum hafj verið meiri en búizt var við, en públikanar benda á, að ekki hafi verið síðri þátttaka í sveitum landsins, en þar eiga Repúblikanar mikið fylgi. Allar skoðanakannanir í gær nema ein gera ráð fyrir sigri Kennedy, ein telur, að Nixon sigri með litlum mun. Daily News í New York, sem styður Nixon, telur að Kennedy fái 415 kjörmenn, en Nixon 122. Popkornframleiðandi. sem und anfarnar vikur hefur gefið fólki kost á að velja milli með mynd af Kennedy og Nix- on segir, að 54 prósent hafi keypt pakka með Kennedy 46 prósent með Nixon. Eina verkalýðssambandið, sem stvður Nixon, er sambani hafnarverkamanna. Ráðmenn þess segja, að Nixon sé eins slæmur og Kennedy og skora því á hafnarverkamenn að kjósa hann. Samt sem áður er búizt við, að meirihluti hafn arverkamanna hafi greitt Ken- nedy atkvæði. Hið stóra verka lýðssamband AFL-CIO styður hann 0g er formaður þess, Walt her Reuther, einn skeleggasti stuðningsmaður hans. í dag var kært yfir því, að tveir útvarpshringar höfðu í undirbúningi að senda kosn- ingafréttir jafnóðum t'l vestur strandarinnar frá ríkjunum á austurströndinni en kjörfundi lýkur þrem tímum seinna ann- ars staðar í landinu. ÞÁTTTAKA í forsetakosn ingum í Bandaríkjunum hefur aldrei orðið meiri en nú. Það hjálpaði að á- gætisveður var um land allt, kalt en stillt. Þegar blaðið fór í prentun á öðr- um tím'anum, var áætlað að um sjötíu milljónir manna hefðu greitt at- kvæði. Sextíu og tvær milljónir kusu í siðustu kosningum. WWWWMWWWHMWWWWW — 9. nóv. 1960 3 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.