Alþýðublaðið - 09.11.1960, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 09.11.1960, Qupperneq 15
komdu hingað til mín... taktu í hönd mína... ag ég skyldi nokkru sinni vera svo heimsk að álíta... Svona, svona, þetta er gott Jenny, þykir þig vænt um mig?“ Jenny hugsaði með sjálfri sér, he oft skyldi Felicia hafa spurt mig þessa? „Já“, sagði Jenny og fór hjá sér, • „Þú hefur gert svo mikið fyrir mig. Það sem ég bað þig um að gera fyrir mig hefur tekizt svo óendanlega vel. A- dam hefur aldrei grunað að ég fékk þig hingað hans vegna, og þú varst einmitt rétta kon- an fyrir. hann. Já, Jenny. —- Adam er aftur eins og hann á að sér. Hann er hættur við þessa fáránlegu fyrirætlun sína. Hann var hjá mér allan daginn í gær. Hann talaði við mig, trúði mér fyrir ýmsu . .. Ýmsu — viðvíkjandi þér, Jenny“. „Mér?“ Undrun hennar leyndi þeirri tilfinningu henn- ar að hún hefði brugðist þeim. „Ertu svo undrandi, Jenny? Ég þarfnast þín ekki lengur aði. „Þú ætlar að giftast Roger Dean!“ Svo leiftruðu augu hennar. „Það skaltu EKKI! — Það skaltu EKKI! Það getur engin kona gifst Roger Dean! Og hann veit það! Hafi hanri eltst við þig ... og ég held að hann hafi gert það. . . ég hef séð það og ég þekki hann, þá þýðir það ekki neitt. Treystu honum ekki og láttu ekki blekkjast af honum!“ „Uss! uss! ég sagðist alls ■ekki ætla að giftast Roger Dean!“ Felicia féll saman. Svitinn perlaði á enni hennar. „Hef- ur hann ekki...“ „Jú, hann hefur beðið mín en ég ætla ekki að segja já“. „Guð minn!“ stundi Felicia með lokuð augun“. Roger, Roger! Veslings sárþjáði Ro- ger! Þeir fordæmdu í helvíti hrópa á vatn Jenny! Það er hluti hegningar þeirra!“ Svo opnaði hún augun aftur. „En hvað um veslings Adam minn? Hversvegna geturðu ekki — hversvegna viltu ekki elska hann?“ „Reynið þér að vera róleg, ... ég get ekki leyft mér þann munað að hafa hjúkrunarkonu hér, þó að ég muni sakna þín. En ef þið Adam.., aha, nú roðnar þú! Þú veizt hvað Adam sagði mér!“ „Ef Adam hefur sagt eitt- hvað slíkt... þá hefur það verið vanhugsað hjá honum ... „Ef hún vissi hver ég er og hvað ég hef gert hér, hugsaði Jenny skelfd. „Nei, Jenny. Hann sagði mér að hann elskaði þig og að hann vildi giftast þér“. „Hann hefur ekki sagt það við mig frú Grise“, sagði Jenny titrandi. „Þér varð skyndilega kalt, Jenny, og þú þorir ekki að horfast í augu við mig. Hvað er að?“ , „Það er vegna þess, að hvað sem Adam finnst get ég aldrei gifst syni yðar!“ Felicia dró hönd sína að sér og náfölnaði. „Þú gætir aldrei gifst syni m í n u m! Finnst þér, að sonur minn sé eilíflega brennimerktur vegna þess sem skeði...“ „Nei, nei, frú Grise“, kall- aði Jenny. ,Það er ekki þann- ig! Þér megið ekki halda það! Ég átti alls ekki við það. „Hún gekk að glugganum og leit yfir ána. „Frú Grise“, sagði hún og orðin ollu henni sárs- auka. „Ég ætla að giftast öðr- úm!“ Það varð dauðaþögn, svo skelfileg þögn að hún leit við. Felicia sat kyrr föl sem marm- arálíkneski. „Frú Grise!“ Varir hennar voru gráar og hreyfðust varla þegar hún tal- frú Grise! Ég er hrædd um yður, tilfinningar yðar eru svo ofsalegar! Hvað get ég sagt...“ „Ég skal vera róleg, Jenny. Sjáðu bara, ég er róleg núna! segðu mér allt Jenny! En það verður að vera SATT!“ „Ég held að þér ættuð að vita sannleikann“, hvíslaði Jenny. „Bíðið! Leyfið mér að hugsa mig um. Ég verð að fara út og hugsa!“ Hún skalf af löngun til að játa allt. Hún dirfðist ekki að vera einni mínútu lengur þarna inni. Hún bað ekki leyf- is að mega fara, hún opnaði dyrnar og hljóp út. 18. Jenny veitti því enga eftir- tekt hve fagur garðuinn var þennan morgun. Hún heyrði ekki fuglasönginn, fann ekki blómailminn og sem í blindni gekk hún fram á klettabrún- ina, gekk eftir braut hamingj- unnar eins og móðir hennar kallaði stíginn. Hún varð að segja Feliciu allt. Hún skuldaði henni það. Felicia hafði þegar liðið nægi- lega mikið. Elskaði hún Roger Dean eða vorkenndi hún honum? Eða óttaðist hún hann? Áttu þau ef til vill saman leyndarmál . .. leyndarmál um þessa Carrol... leyndarmál, sem Enid vissi. En hvernig átti hún að spyrja um nafn, sem aldrei hafði verið nefna við hana. Hún heyrði hófatak og jafn- aði sig eilítið. Það var Adam, sem kom ríðandi í áttina til hennar. Hann hafði séð hana og varpaði sér af bakj og gekk til hennar. Hann sagði ekki orð og hún ekki heldur. Rólegt augnaráð hans olli því að öll hennar ó- vissa, öll hennar vandamál hurfu. Hún var ekki lengur Jenny Thorne, ekki heldur dóttir Enid Ambrose Sheila, hún var fyrsta kona heimsins við hlið fyrsta mannsins, — Adam! Hann breiddi út faðm- inn og Jenny hljóp til hans. Og þau stóðu þarna í faðm- lögum og kysstust eins og ekkert gæti lengur aðskilið þau. Jenny var svo glöð, svo ánægð, hún fyrirleit sjálfa sig fyrir þá hégómagirnd sína að hafa haft gaman af hrifningu Rogers Reans og Nicks. — í fyrsta skipti skildi hún hvað það var að finna frið í örmum karlmanns. Þessir armar, — þessi líkami, þessar varir voru heimili hennar. En tilhugsunin um Nick kom henni til að slíta sig af honum. Hann sleppti henm og hún gekk fáein skref frá honum. „Adam!“ „Já, ástin mín“. Hann sagði ekki meira, hann leit aðeins í augu hennar. „Þetta er svo erfitt“. „Hvað er erfitt vina mín?“ „'Vig megum ekki...“ „Hvað megum við ekki, Jenny?“ „Vegna þess að ...“ „Reyndu ekki að segia mér að þú elskir mig ekki“, rödd hans var í senn blíðleg og stríðnisleg11. Ég veit að það er ekki satt“. Ég elska þig, Adam“. „Og ég elska þig, Eva“. „En ég get ekki gifst þér . .“ „Hversvegna ekki? Ertu gift? þá skiljum við við hann!“ „Nei ekki gift... trúlofuð“. „En sú vitleysa! hvar er hringurinn? Ég skal senda hann til baka.“ „Adam, þetta er ekkert grín. Mér ... mér líður svo illa!“ „Ég er alls ekki að grínast, ég get verið jafn alvarlegur og þú. Viltu að ég myrði hann fyrir þig?“ ■• Hún skalf og hann náföln- aði, þegar hann sá svipinn á andliti hennar. „Þú ert að hugsa um það. . ..“ Nú var hann alvarlegur. 'Viltu ekki giftast mér vegna þess, sem skeði... einu sinni?“ Ef hann aðeins héldi það! „Ég get það ekki Adam“. „í guðanna bænum, hvers- vegna verð ég að deyja vegna þess að faðir minn dó?“ „Þú deyrð ekki, Adam“. „Hér eða annars staðar . ..“ „Það er ekki vegna föður þíns Adam“, sagði Jenny ör- væntingarfull. „Þá .... þá er það vegna þess að þú hefur komizt að einhverju hér — einnhvað sem fær þig til að gruna . .“ rödd hans varð að hásu hvísli .... „móður mína!“ „Nei, Adam! — Því segirðu þetta • • • ■ þeíta er ekki satt.“ „Eg hef haldið það! Það hefur því sem næst gert út af við mig. Ef hún elskar Dean, • • ef hann .... þau ...“ „Uss, Adam, ef þau hefðu elskað hvort annað í tuttugu ár, hefðu þau gifst.“ „Nei ....“ rödd hans var hljómlaus. „Ekki, ef þau voru hraedd. Það hefðu svo margir talað um það. Spurt • • gizkað á ■ • • • Minnstu þess, að mál- ið var aldrei leyst. Nýtt sönn- 'uriargagn, Jenny .... ástæða fyrir glæpum .... einhver sem vildi og gat • •.. kannske veshngs Enid Ambrose • • • • eða barn hennar!“ Orð Jennyjar hljómuðu eins og skammbyssuskot í þögninni. „Já, eða hann henn ar!“ Og með þeim orðum, með hljómblæ raddar hennar hurfu þau bæði niður í hyl- dýpið. Adam starði lengi á hana. „Jenny Thorne,“ sagði hann loks dræmt. „Nei, ég hélt það, þangað til fyrir fáeinum mánuðum síðan. Stattu kyrr . . þar sem þú ert og hlustaðu á mig!“ „Bíddu, nei annars, segðu frá!“ „í apríl tók ég lokapróf við sjúkrahúsið í Bennetsville Caroline,“ hóf hún mál sitt, og sagði honum allt, frá Nick, hvers vegna hún hefði komið til Barent og hvað hún hefði gert hér á Castaniu. „Eg vann ekki fyrir Dean lækni, Adam,“ sagði hún loks.. „Eg vann fyrir móður mína til að sanna sakleysi hennar. Vertu heiðarlegur gagnvarf sjálfum þér, Adam, vertu rétt látur. Getur þú sem sonur Feliciu og Philips Grise ásák- að mig, dóttur Enidar Amb- rose?“ Hann svaraði ekki, hann lagði spurningu fyrir hana.“ Og að hverju hafið þér kom- ist hér, ungfrú Ambrose? — Eða þorið þér ekki að segja mér það? .Henni fannst sem hann hefði verið stungið í hjarta sitt og hún átti erfitt um and- ardrátt. „Eg kom hingað í á- kveðnum tilgangi og ég fer ekki héðan fyrr en þeim til- gangi mínum er náð. Eg get ekki hætt á það. . ... “ „Svo þér haldið að þér get- ið verið hér • • • ■ á heimili móður minnar, á heimili mínu eins og ekkert hafi í skorizt, ungfrú Ambrose? Þér hafið sannarlega ríkt ímyndunarafl ungfrú góð, en ég verð að við- urkenna að allar aðstæður eru einkennilegar . . Hér sitj um við, sonur Philips og dótt- ir Enidar. . ... “ Þegar hér var komið, kom Anna hlaupandi eftir gras- fletinum og kallaði; „Komið þá fljótt, ungfrú Thome. — Ungfrú Felicia er veik!“ 19. Adam gekk til hliðar og Jenny hljóp fram hjá Önnu og inn til Feliciu, sem lá og það hrygldi í henni, þegar hún dró andann. Augu hennar voru hálflukt og hún virtist meðvitundarlaus. En þegar Jenny tók á púlsnum stmhdi’ - Félagslíf - Knattspyrnufélagið Valur, Aðalfundur félagsihs verður í félagsheimilinu að Hííðarenda rni ðvikudaginn 16. nóv. n.k. kl. 8,30 e. h. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin. Gerum við bilaða Krana og klósett-kassa Valnsveifa Reykjavíknr Símar 13134 og 35122 Guðlaugur Einarsson Málflutningsstofa Aðalstræti 18. Símar 19740 — 16573. Framhaldssaga eftir KATHRINE N. BURT AÍþýðuiiaðiÖ — 9.^nóv. ÍÖÖO '

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.