Alþýðublaðið - 12.02.1961, Blaðsíða 1
42. árg. — Sunnudagur 12. febrúar 1961 — 36. tbl.
tMUMMUUMVMHtMMMMmMMUMMIUMWiHWMIMHHMMVMMHMIMMMMMUMMHIUt
SVONA lítur Verzlunarskólapiltur út þegar hann sýn-
ir klærnar. Foreldrar hans eiga eflaust erfitt nieð að trúa
því, en þetta er blessaður drengurinn þeirra, hann Páll
Stefánsson.. — Alþýðublaðsmyndin var tekin á Nemenda-
nióti Verzlunarskólans í Sjálfstæðishúsinu. Við það tæki-
færi var sýndur síðasti þátturinn úr Gullna hliðinu Davíðs.
Og Páll lék þann vonda.
HJÁL.PI
———a—ra— I I II..
MÍR!
í þriggja mánaða varðhald, skilorðsbundið
í GÆR var í sakadómi Reykja
víkur kveðinn upp dómur í
máli, sem ákæruvaldrð liöfðaði
liinn 8. okt. sl. gegn Magnúsi
Guðmundssyni fyrrv. lögreglu
þjóni, Vesturgötu 27.
Niðurstöður dómsins eru
sem hér segir:
1) Talið er sannað, að ákærð
ur hafi í janúarmánuði 1960
sent Sigurjóni Sigurðssyni lög
reglustjóra tvö hótunarbréf,
þar sem honum var hótað líf-
láti. Brot þetta er talið varða
við 233. gr. alm. hegningar-
laga, en hins vegar ekki við
138. eða 139. gr. sömu laga
(brot í opinberu starfi), svo
sem krafizt hafði verið í á-
kæru.
2) Ákærður átti skamm-
byssu og skotfæri, án þess að
hafa fengið leyfi lögreglustjóra
til þess að eiga slíka hluti.
Með því var ákærður talinn
hafa brotið gegn 3. gr. reglu-
gerðar nr. 105/1936 sbr. 1. 69/
1936.
3) Á dómþingi 4. apríl 1960
bar ákærður fimm lögreglu-
menn þeim sökum, að þeir
hefðu verið ölvaðir við skyldu
störf. Einnig bar hann það á
einn lögreglumann, að hann
hefði komið ölvaður akandi í
bíl til vinnu, og að varðstjór-
inn hefði látið hann fara af
vaktinni akandi í því ástandi,
að Erlingur Pálsson yfiriög-
Framhald á 2. síðu
SEX drukknuðu í bjór í
London. Hann hefur ef-
laust vfirið STERKUR
Kristbjörg og Jón eru
að æfa nýtt leikrrt í Þjóð-
leikhúsinu. Það heitir Á
SALTINU.
EKKI liafði fyrr náðst sam-
komulag í deilunni um kjör há-
seta á bátunum en fréttir bár-
ust um að verkfall vofði yfir
vegna kröfu yfirmanna um stór.
felldar kjarabætur. Alnvenning
ur er forviða á þvi, að skip-
stjórar og aðrir yfirmcnn á bát-
um skuli gera verkfall til þess
að knýja fram rniklar kaup-
hækkanir, þar eð þeir hafa haft
hin ágætustu kjör. En auk þess
ber að liafa það í huga, að um )
leið og samninganefnd sjó- j
manna samdi um liækkun á
aflaprósentu fyrir háseta var j
nefndin í rauninni einnig að;
semja um slíka hækkun fyrir)
skipstjórana — en að vísu hélm
ingi meiri hækkun — þar eð
FJÁRÖFLUNAR-nefnd AI-
þýðusambands ísalnds hafa nú
borist um 100.000.00 kr. Und-
irtektir á vinnustöðum hafa
verið mjög góðar og skrifstof-
um verkalýðsfélaganna hafa
einnig borist álitlegar fjárupp-
hæðir. — Verkalýðsfélögin í
Vestmannaeyjum hafa þegar
fengið 50 þús. kr. frá söfnun-
inni.
skipstjórar fá tvo hásetahluti.
Vélstjórar hafa VA hásetahlut
og stýrimenn 114.
Þegar hásetar hafa 40 þús.
kr. lvlut yfir vertíð hafa skip-
stjórar sem sagt 80 þús. kr. —
Mun það vera algengt að skip-
stjórar h'afi 200 þús. kr. á ári.
Alþýðublaðið er að vísu þeirr
ar Skoðunar, að hásetar og skip
stjórar eigi að hafa góð laun,
en blaðið telur, að liæpið sé fyr
ir skipstjóra, að gera verkfall
til þess að knýja fram enn
hærri kjör en þeir þegar liafa.
Krölfur yfínnannanna und-
anfarið munu cinkum hafa ver-
ið þær að trygging þeirra yrði
hækkuð. Sjálfsagt er fyrir
skipstjóra og aðra að reyna að
semja um hlunnindi fyrir sig,
einkum ef atvinnureksturinn
getur tekið slikt á sig en það er
of langt gengið að stöðva bát-
ana í því skyni að knýja fram
slíkar kröfur.
/
Islenzk
þurrmjólk
tilKongó
í GÆR barst Rauða Krossi
fslands eitt tonn af þurrnvjólk
til Kongó-söfnunarinnar. Það
var Mjólkursan-ísalan, sem gaf
þurrmjólkina. Þegar hafa 15
tonn af skreið verið send til
Kongó.
Rauði Krossinn sendi fyrir
skömmu blöðum bæjarins til
birtingar lista yfir peninga þá,
sem gefnir hafa verið til Kongó
söfnunarinnar, sem nemur nú
425 þús. kr„ en vegna þess, hve
listinn var langur, hafa blöðin
ekki séð sér fært að birta hann.
Mun listinn liggja frammi í
skrifstofu RKÍ í Thorvaldssen-
stræti 6 næstu daga fyrir þá,
sem kynnu að vilja líta á hann.