Alþýðublaðið - 12.02.1961, Side 3
Ný kjötverzl-
un ,Tómasar'
KJÖTVERZLUN Tómasar i
Jónssonar, sem allt frá árinu
1908 hefur rekið umfangsmkila
V'erzlun með alls konar matvör-
ur, opnaði í gær nýja og vel
búna kjötverzlun að Ásgarði
22 í svokölluðu Bústaðahverfi
í Reykjavík, en mikil fyrirhöfn
hafði það verið sumum íbúum
þessa hverfis að kaupa í mat-
inn, þar sem vöntun var á kjöt-
verzlun.
F.U.J. á
Akranesi
ÞRIÐJA kvöldið í fimm
kvölda spilakeppni FUJ á
Akranesi fer fram í kvöld
að Hótel Akranesi, og
hefst klukkan 8.30. Af-
hent verða lokaverðlaun.
Löndun
TOGARINN Marz landaði í
Reykjavík á fimmtudaginn 156
tonnum og Skúli Magnússon á
föstudaginn 89 tonnum.
Hin nýja verzlun er búin öll
um þeim tækjum og útbúnaði,
sem ströngustu kröfur heimta.
I verzluninni munu verða
seldar allar tegundir kjöts og
kjötvinnsluvara, álegg, græn-
meti, ávexti, krydd og niður-
suða hvers konar.
Innréttingar skipulag'c5i
Sveinn Kjarval. arkitekt, tré-
verk annaðist Össur Sigurðs-
son, raflagnir allar fram-
kvæmdi B. Finnbogason, upp-
setningu kæli- og frystiklefa og
tækja sá Björgvin Sigurjóns-
son um, en Fritz Berndsen mál
aði.
Með tilkomu þessarar nýju
kjötbúðar rekur kjötverzlun
Tómasar Jónssonar 3 verzlanir,
hinar tvær eru að Laugavegi 2
og 32. Kjötverzlun Tómasar
Jónsosnar er önnur af elztu
kjötverzlunum bæjarins, stofn-
uð 1908 eins og áður er getið.
Eigandi kjötverzlana Tómasar
Jónssonar er nú Garðar Svav-
arsson og er hann framkvæmda
stjóri þeirra.
Hin nýja kjötverzlun er öll
hin smekklegasta, og eru allar
i innréttingar mjög hagkvæmar.
Undir sjálfri verzluninni er
vinnsluherbergi, en þar er
einnig stór kælir. Öll matvara
verður flutt úr þessu vinnslu-
he-bergi með lyftu upp í verzl-
unina.
Það er ugglaust fagnaðarefni
íbúum Bústaðahverfis að fá
þessa verzlun, þar sem vörur
frá „Tómasi“, hafa verið annál-
aðar fyrir gæði um langan ald-
ur.
Ungbarnafatnaður
í fjölbreyttu úrvali
Ungbarnabolir
Verð frfá kr. 17.—
Bleyjubuxur
verð frá kr. 12.—
Bleyjur, tvíofnar
Náttserkur
verð kr. 43,50.
Samfestingar
Sokkábuxur
Peysur, verð frlájcr. . ,
22,60, og margfwil
sængurgjafa.
Johnson's vörurnar:
barnapúður
barnasápa
Barnaolía
barnakrem
og slhampoo.
VERZLUNIN
©
Laugavegi 70.
Sími 14625.
Þeir fara í
pylsurnar
SJÖ íslenzkir fulltrúar fara í
þessari viku til Kaupmanna-
hafnar til að sitja þar fund
Norðurlandaráðs, Hér er um að
ræða sams konar fund og hald
inn var í Reykjavík í sumar,
en hann sóttu allir forsætis-
ráðherrar Norðurlanda, fjöl-
margir aðrir ráðherrar, for-
menn flokka og fleiri ráða-
menn.
Héðan fara nú Ólafur Thors
forsætisráðherra og Guðmund
iur í . Guðmundsson utanrík-
í DAG verður annar fyrir-
lesturinn í háskólanum um svif
flug. Talar próf. Þorbjörn Sig-
urgeirsson í dag kl. 2 í 1.
kennslustofu háskólans. Fyrir-
lestrar þessir eru haldnir á veg
um Svifflugfélags íslands. —
Allir eru velkomnir meðan hús
rúm leyfir.
isráðherra. Alþingi kýs árlega
fimm manna sendinefnd, og er
Gísli Jónsson formaður henn-
ar, en hinir nefndarmenn eru
Sigurður Ingimundarson, Ein-
ar Olgeirsson, Magnús Jóns-
son og Ásgeir Bjarnason.
Þessi fyrirhugaði fundur
hefur þegar vakið athygli á
Norðurlöndum sökum þess, að
danska þingið hefur ákveðið
að draga mjög úr þeim veizlu-
höldum, sem jafnan hafa ein-
kennt þessa fundi og voru sér
staklega gagnrýnd eftir
Reykjavíkurfundinn í sumar.
Mun danska þingið aðeins
bjóða til einnar samkomu, en
það verður pylsuát í veitinga-
sal þinghússins (sem raunar
gengur undir nafninu „snapse-
tinget“). Hins vegar mun
danska stjórnin bjóða til eins
kvöldverðar og sýning verður
fyrir fulltrúa í Konunglega
leikhúsinu.
Æskulýðs
samkom-
ur KFUM
ogK
I DAG hefst hin árlega æsku-
lýðsvíka KFUM og KFUK aS
Amtmannsstíg 2B í Reykjavík.
Verður samkoma í húsi- félag-
anna í kvöld kl. 8,30 og síðai*
á sama tírna á hverju kvöldi
alla vikuna.
Ræðumenn eru margir, bæði
úr hópi presta og leikmanna,
og mikil áherzla lögð á almenn-
an söng. Ungar stúlkur leika
undir sönginn á gítara. í>á er
einnig einsöngur, tvísöngur og
kórsöngur. — Á fyrstu samkom
unni, nú í kvöld, tala þeir Birg-
ir Albertsson, kennari, og Gunn
ar Sigurjónsson, cand. theol. —■
Meðal annarra ræðumanna vik
unnar má nefna Felix Ólafs-
son, kristniboða, sr. Bjarni
Jónsson, vígslubiskup, Ástráð
Sigurteindórsson, skólastjóra,
og Norðmennina Erling Moe
og Thorvald Fröytland, semi
verið hafa hér á landi undan-
farnar vikur og talað á fjöl-
mennum samkomum. — Sam-
komur æskulýðsvikunnar eru
einkum ætlaðar ungu fólki, en
allir eru velkomnir, meðan hús
rúm leyfir.
FUNDUR verður haldinn í
Alþýðuflokksfélagi Hafnar
fjarðar næstkomandi mánu-
dag 13. febrúar í Alþýðuhús-
inu við Strandgötu. Hefst
hann kl. 8,30 e. h. Umræðnefn
ið er Bæjarútgerð Hafnarfjarð
ar og frummælandi er Krist-
inn Gunnarsson, forstjóri.
FIokksmenn í Hafnarfirði eru
hvattir til að fjölmenna og
koma stundvíslega.
TrrrrrrrrrrrTrrrrrrríYTYT^^ rTrrrTrrrTrrrTrrrrrTrrrrrrrr^
Bútasalan heldur áfram alla virka daga S nýju búðinni okkar, Axminsterbúðinni að Skipíholti
21, horni Nóatúns. Við höfum tekið upp mikið magn af nýjum bútum og renningum af öllum
stærðum og litum allt fhá 50 cm. upp í 32 metra. Einnig mörg heii teppi. Allt að 50% afsláttur
frá raunverulegu söluverði. Nú er tækifærið til að gera góðu kaupin á góðu Axminstes-teppun-
um, bútunum, renningunum. — Lítið í gluggann um helgina. — Verzlunin Axminster, Skip-
holti 21.
Alþýðublaðið — 12. febr. 1961 J