Alþýðublaðið - 07.03.1961, Side 9
frá Róm
LENGST inni í frum-
skógum Norður-Malaya
réðist gríðarstór kobra-
slanga úr launsátri á flokk
ástralskra hermanna. At-
burður þessi gerðist ekki
alls fyrir löngu.
eiturnaðra veraldar. Þær
lifa venjulega á öðrum
skriðkvikindum. Bit þeirra
eru lífshættuleg mönnum.
Stærsta tegundin, sem sög
ur fara af, var ríflegir 500
m á lengd.
ÍC HAUSINN
SKOPPAÐI
Kobraslangan kom mjög
óvænt í Ijós á stígnum
fyrir framan hermennina.
En áður en hún gat gert
nokkuð illt af sér tókst öðr
um leiðsögumanninum, —
Stan Arnold liðþjálfa, að
hæfa hana með skamm-
byssu sinni. Hann hitti
höfuð ferlíkisins og fauk
hann af ferlíkinu og skopp
aði eftir stígnum.
Kobraslanga þessi reynd
ist vera fremur sjaldgæf
tegund, svokölluð ,,King“-
kobra. Þær eru stórar með
afbrigðum, enda reyndist
slanga sú, er um ræðir
hvorki meira né minna en
400 m. á lengd.
Svo undarlega vildi til
þegar hermennirnir færðu
sig nær ófreskjunni fannst
þeim þeir heyra ólæti
innan í henni. Þeir voru
öldungis hlessa og veltu
því fyrir sér hver fjandinn
þetta gæti eiginlega verið.
* SLANGA
INNAN Í!
Þegar ólætin mögnuðust
skipaði foringi hermann-
anna að kviðrista skyldi
gerð á kobraslöngunni. —
Það var gert — en þá skeði
það óvænta. Tveggja metra
slanga geystist sprellif-
andi út úr maga ófreskj-
unnar — rétt eins og Pallas
Aþena út úr höfði Seifs
forðum. Hermennirnir forð
uðu sér þið bráðasta og
áttu svo sannarlega fótum
sínum fjör að launa.
„King“ kobra er stærsta
SAMTÍNINGUR
TÓLF ára gömul stúlka
í Fíladelfíu eignaðist ný-
lega fallegt sveinbarn. Fað
irinn var 13 ára skólabróð-
rr hennar. Höfðu þau dag
nokkurn orðið að sitja eft-
ir — og kennarinn verið
of önnum kafinn til þess
að hafa eftirlrt með þeim.
ENSKI' skilnaðarmála-
dómarinn R. H. Taylor dró
sig í hlé nýlega að eigin
ósk eftir 15 ára giftudrjúgt
starf. Hann sagði ástæð-
una fyrir afsögninni vera
þá, „að vinnan væri orðin
svo leiðinlsg, rifrildin allt
af þau sömu“.
GEORG nokkur Neu-
wirth var einn þeirra sem
urðu illilega fyrir barðinu
á flugverkfallrnu í Banda-
ríkjunum. Hann var á
vesturströndinni og þurfti
að’ komast í viðskiptaer-
indum til New York. Það
tók allt of langan tíma að
fara þetta í járnbrautar-
lest. Þá sparaði það merri
tíma að fara með SAS-vél
yfir Norðurpólinn til Kaup
mannahafnar og þaðan yfir
Atlantshaf til New York.
Þetta var talsverður krók
ur og kostaði hann 700
dollara. Hrns vegar kostar
farið frá Los Angeles til
New York 142 dollara. En
hann sparaði sem sé tíma
og tíminn kostar peninga
stendur víst skrifað ein-
hvers staðar.
II LÍFI KENNEDYS
&rið ó-
r ástr-
, Regin
ni, sem
haldari
lautin-
s hafði
klakk-
pálma
kókos-
u þakk
ftur til
„menningarinnar“ — —
stríðsins.
Kennedy páraði hjálpar
beiðni á blaðmiða, stakk
honum síðan innan í kókos
hnotina og fékk hana í
hendur nokkrum vinveitt-
um eyjarskeggjum, sem
tóku það að sér að koma
skilaboðunum áleiðis til
annarrar eyjar. Þeim tókst
að komast heilu og höldnu
á áfangastað eftir mikla
svaðilför. Dvöldust þeir
nætursakir með mönnum
Evans lautinants og héldu
síðan aftur til Kennedys
og félaga hans með miða
frá Evans þar sem sagði,
að hjálpin væri á leiðinni.
Kennedy varðveitti mið
ann með loforðinu um
hjálpina, en hver skrifaði
undir hann var honum hul-
in ráðgáta í rúm 17 ár.
En þá gerðist það, að von
vár á Menzies forsætisráð-
herra í heimsókn og þá lét
Kennedy sérfræðinga taka
til óspilltra málanna og
þýða undirskriftina, sem
var á dulmáli. Fimm sér-
fræðingum kom saman um
það, að undirskriftin væri
R. R. Evans. Eftir nánari
rannsókn var gátan leyst
og sýndi Kennedy Menzies
miðann frá Evans sigri
hrósandi, er þeir hittust.
1
Hverfigluggar
m e ð OPNUNARÖRYGGI
— NÆTUROPNUN
— FÚAVARNAREFNI
Trésmiðja
Gissurar Símortarsonar
við Miklatorg — Sími 14380.
Alumíníum
í fjórum litum 10 m. í rúllu.
Hentugt til geymslu á matvælum í nestispakka og
í ísskápum.
Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar
Bankastræti 3.
Musica Nova
Tónleikar að HÓTEL BORG miðvikudaginn 8 marz
kl. 8,30.
Viðfangsefni: Schönberg, Strawinsky og
Shostakovitch.
Flytjendur Sigurður Örn Steingrímsson, Kristin
Gestsson, Pétur Þorvaldsson.
Þetta er í fyrsta skipti sem Reykvíkingum géfst tæki
færi til að hlýða á þessa ungu listamenn. Auk þeirra
Gísli Magnússon píanóleikari.
Aðgöngumiðar eftir kl. 2 miðvikud. að Hótel Borg
(suðurdyr). Verð kr. 20.
JámuniSir - Reitnismiðir
Góður rennismiður óskast nú þegar á vélaverkstæði
Vegagerðar ríkisins í Reykjavík.
Upplýsingar gefa Kristján Guðmundsscn og Valdimar
Leonhardsson, Boi-gartúni 5, sími 22492.
Létt rennur
GsieSoi
Auglýsingasími blaðslns er 1490*
Alþýðublaðið ■— 7. marz 1961 0