Alþýðublaðið - 24.12.1961, Side 3
350 ÍSLENZKER
FARMENN
Svona á það
eiginlega
að vera
IIÉR er jólasnjórinn —
sem týndist. Við tókum
myndina þegar hann snjó
aði á dögunum liér
syðra; þótti óvarlegt að
treysta því, að við hefð-
um efni í snjómynd á jól
unum. Veðurstofan bjóst
heldur ekki við snjó í gær;
dag. Hún spáði hægviðri á
aðfangadag, þokulofti við
Reykjavík, hita um frost-
mark.
Áfangi
kominn
Framhald af 16. síðu.
Dísarfell fór 21. þ. m. áleið-
is til Gdynia, og verður því í
hafi á jóladag.
Litlafell verður í Reykja-
vík.
Helgafell verður í Reykja
vík.
Hamrafell fór frá Balumi
í gær, og verður því í hafi um
jólin.
Jöklar hf. eiga þrjú skip, og
verða þau sem hér segir:
Drangjökull, hið nýja skip 1
félagsins verður í Reykjavík.
Vatnajökull verður á leið
frá Englandi til íslands.
Langjökull verður á heim-
leið frá Ventspils.
Laxá, sem er eign Hafskip
hf. kemur til Reykjavíkur. 2.
jóladag.
Öll skip Skipaútgerðar rík-
isins verða í Reykjavík.
Út
ÁFANGI, tímarit Sambands
ungra jafnaðarmanna um þjóð-
félags- og menningarmál, er fyr
ir nokkru komið út á ný. Er það
annað hefti. Af efni liins nýja
heftis má nefna eftirfarandi; —
Hugleiðingar um nýja vinnu-
málalöggjöf, viðtal við Jón Þor-
steinsson alþing'smann, Kenn-
araskorturinn og réttindi Kenn-
araskólans eftir Ágúst Sigurðs-
son, Bogesen í verkfalli, smásaga
eft r Gísla Ástþórsson ritstjóra,
Listkynning, Sigríður Soffía
Sandholt, Hið gamla verður að
víkja fyrir því nýjá, viðtal við
Freystein Gunnarsson og Mað-
urinn er gullið, eft'r dr. Erick
Fromm. Ritstjórar eru Högni
Egilsson og Sigurður Guðmunds
son. Setberg prentaði.
Brúgge (UPI)
NOKKRIR belgískir úlgerð-
armenn eru nú að undirbúa
„fiskistríð“ við Breta. Ætlun
þeirra er að fá Breta til að við
urkenna 300 ára gamalt leyfi
til veiðiréttinda innan brezku
landhelginnar.
Kröfu sína til veiða innan
landhelginnar byggja hinir
belgísku útgerðarmenn á kon
unglegu leyfi Karls II Breta-
konungs, sem hann veitti
þeim árig 1666. Leyfið var
veitt um óákveðinn tíma til
veiða innan brezkrar land-
helgi fyrir 50 fiskibáta frá
Brúgge í Belgíu.
Um miðja síðustu öld féll
þessi samningur í gleymslu,
en síðastliðið ár grófu útgerð
armenn í Brúgge hann upp
aftur. Síðan hafa þeir leitast
við að fá staðfestingu frá
brezkum yfirvöldum um að
þessi gömlu forréttindi Brúg-
ge séu enn I gildi, en ekki tek
izt að fá neitt svar hvorki
neitandi né játandi.
Útgerðarmennirnir hafa því
ákveðið að taka til sinna ráða
til að fá staðfestingu á hinum
fornu réttindum, þannig að
brezk:r dómstólar verði
neyddir til að taka afstöðu til
málsins. í hinu forna leyfi
segir, að all:r eftirmenn Karls
II skuli viðurkenna leyfið,
sem væri það lög. Fiskibátun
um frá Brúgge er aðeins gert i
eitt að skilyrði, að: þeir verða I
að fá eins konar j.hegðunar- j
vottorð“ frá yfirvöldum |
Brúgge. . |
Nú hefur verið stungið upp
á því í borgarráði Brúgge, að j
bátur búinn slíku vottorði
verði sendur inn í brezka land
helgi til veiða. Gert er ráð
fyrir því að brezk herskip
stöðvi skipið við veiðarnar,
það verði sektað, afli og veið-
arfæri gerð upptæk eins og
venja er til við landhelgis
brot. Þeim dómi yrði áfrýjað,
og þá fengist tækifæri til að
fá staðfestingu á hinum fornu
réttindum Brúgge til veiða
innan brezkrar landhelgi.
Sögu þessara réttinda má
rekja til þess, er Karl II var
árin 1656 til 1658 landflótta
og dvaldi þá í Brúgge. Veitti
hann fiskimönnum Brúgge
þessi réttindi í þakklætis-
skyni fyrir gestrisni og vin-
semd borgarbúa í sinn garð
meðan hann dvaldi þar. Um
langt skeið á eftir voru þessi
réttindi töluvert notuð af
Framhald á 15. síðu.
MEST GEISLUN
Framh. af I. síðu
arj en Þjóðverjar og fóru for-
stöðumen tilraunakjarnorku-
stöðvarinnar í Karlsruhe þess
því á leit við félag Norðurlanda
stúdenta að fleiri norrænir stúd-
entar kæmu til mælinga. Reynd-
ust Norðurlandastúdentarn'r all
ir innihalda meira Caesium137
(geislavirkt efni) en Þjóð-
verjar almennt. Meðaltal þeirra
hefur reynzt 50 pico Cur'e/kg.
af Cs137 en annar íslenzki verk-
fræðistúdentinn reyndist hafa
557 og Norðmennirnir allt upp
í 492. Hinn íslendingurinn hafði
1176. En 557 pc/kg. Cs137 mun
þó ekki vera nema 1/1000 af því
| sem skaðlegt er.
j Nokkru eftir að þetta gerðist
fóru enn 7 aðrir íslendingar til
mælinga. Reynd st þá einn
þeirra hafa 450 og kona hans
350, sem er það hæsta, er mælzt
hefur í konu.
Alþýðublaðið spurðist fyrjr
um það í Eðlisfræðistofnun há-
skólans í gær, hvort geislavirkni
í fólk hefði verið mæld hér. En
því var svarað að engar slíkar
mæhngar hefðu farið fram.
Um togarana er erfitt að
segja og ekki mögulegt að fá
nákvæmar upplýsingar um þá,
en nokkur hluti þeirra mun
verða úti um jólin.
Helmingur af varðskipa-
flotanum verður úti um jólin,
en sá helmingur verður svo
aftur inni um nýárið.
Framhald af 1. síðu.
og var Jón Guðmundsson frá
Keflavik hæstur með 644 tunn
ur.
Til Sandgerðis kom einn bát
ur meg aðeins 15 tunnur, en í
fyrradag komu þrír bátar til
Sandgerðis. — Allir Akranes-
bátar voru komnir inn í gær
morgun, en engar heildartölur
lágu fyrir. Á Akranesi var ver
ið að skipa mjöli í útlent skip
í gær.
MWWWWWWWWWMj
Alþýðublaðið — 24. des. 1961 3