Alþýðublaðið - 15.03.1962, Page 4

Alþýðublaðið - 15.03.1962, Page 4
mmwtW iwwwwwwwwwwwwwwwmwwwwwwwwiwimwwh Frétfabréf Kaup sjómanua á Vestfjörð um iiækkar Isafirði í marz. NOKKUR stéttarfélög á Vest- fjörðum höfðu sagrt upp samning- um bátasjómanna frá s. 1. ára- mótum. Áformað var ogr ákveðið að hafa samstöðu um aðild að hcildarsamningi samkvæmt sam- þykkt sjómannaráðstefnu ASÍ er haldin var á s. 1. hausti, og' var samninganefnd ASÍ falið umboð vestfirzku félaganna, þó með þeim fyrirvara, að væntanlegar breytingar yrðu felldar inn í Vestfjarðasamninginn, og yrðu háðar samþykki viðkomandi stétt arfélaga. Eftir að slitnaði upp úr við- ræðum milli nefndar ASÍ og LÍÚ voru málin rædd innan ASV, og með tilvísun til þess, að upp- sagnir vestfirzku félaganna var fyrst og fremst byggð á því, að^ tryggja hlutdeild sjómannasam- takanna að ákvörðunum um fisk- verð til útvegsmanna og sjó- manná, svo ög því, að meirihluti félaganna innan ASV hafði ekki láusa samninga, var talið, að ekki væri að svo stöddu grund- völlur fyrir þvx að hefja samn- ingaviðræður um heildarsamxi- ing fyrir Vestfirði. Þá var lagt til við þau félög, sem sagt höfðu upp samningum, að heimila róðra eftir fyrri samningi, og sam- þykktu viðkomandi félög að heimila það þar til annar yrði ákveðið. Hinn 17. febrúar s. 1. skrifaði stjórn ASV þeim útvegsmönnum á VestfjörSum, sem aðild eiga að bátakjarasamninginum, og óskaði eftir því, að þeir samþykktu þær breytingar á samninginum, að hlutatrygging og aðrar greiðslur til sjómanna samkvæmt ákvæð- um samningsins, þó ekki orlof, — hækki um 13% En geta má þess, að önnur þau atriði, sem einstaka félög hafa fengið inn í samninga sína nú í vetur, svo sem ákvæði varðandi ábyrgðartryggingar, slysatrygg- ingar, dánarbætur, tryggingar vegna eignatjóns, veikindabætnr, aukagreiðslu til háseta o. m. fl. er í samningum ASV Svör útgerðarmanna eru nú að berast við þessu erindi ASV, og eru þau jákvæð, t. d. hefur bor- izt svar frá helzta útvegsmanna- félaginu í sambandssvæðmu, Út- vegsmannafélagi ísfirðinga, sem samþykki umrædda kauphækk- un, að öðru leyti en því, að a- kvæðisvinnukaup við beitingu hækki ekki, svo og greiðsla fyrir einstaka róðra. Hækkun þessi, — 13% — gúd- ir frá 1. febrúar s. 1. Aðalfundur múr- arameisfara í Reykjavík AÐALFUNDUR Múrarameist- arafélags Reykjavíkur var hald- inn þriðjudaginn 27. febrúar. — í stjórn voru jkosnir: Guðmundur St. Gíslason form. Jón Bergsteinsson, varaform. Þórður Þórðarson, ritari. Ólafur Þ. Pálsson, gjaldkeri. Sigurður Helgason meðstj. Fulltrúi félagsins í Meistara- samband byggingamanna var kosinn Sigurður Helgason, full- trúi til Vinnuveitendasambands- ins, Jón Bergsteinsson og fulltrúi á Iðnþing Magnús Árnason. á Ítalíu orðin að veruleika i Simea hefur sent frá sér nýjan Ibíl, Simca 1000, i hinum nýja / „vinsæla flokki“, sem í eru að j eins stærri og sterkari bílar en hinir venjulegu fjögurra manna bílar. Af þessari stærð hafa áður verið gerðir bílar eins og Hill man 'Minx og Volkswegen 1500 1 Hinn nýi Simca 1000 fær mjög ‘ góða' 'dóma í Noregi. Hann er ’ með mótorinn í skottinu, 45 hest ' afla, "og lítill hávaði af vélinni. 1 Gírkassinn er sérlega góður og '' hraðaáukningin óaðfinnanleg. '"Hámarkshraði er gefinn upp á •115 km. á klst., en við góðar að 1 1 stæðxlr er sennilegt að fá megi ' úr hoíxum enn meiri hraða. Hanii ■’ er mjög góður á vondum vegum. • ‘Ekker’t hlaup í stýrinu. I útliti r T 4 15. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ líkist hann dálítið Chevrolet Cor vair og plássið í vagninum er sérlega vel nýtt. Hægt er að hafa hatt á höfði við stýrið, ef maður er ekki óvenjulega langur. fíjólin eru lítil. ★ Einn maður lézt og 24 særðust af umferðarslysum á hverri ein ustu klukkustund ársins 1961 á Ítjjlíu segir í skýrslu, sem ítalska hagstofan hefur látið frá sér fara. Alls voru skrásett 299.841 umferðarslys. 8263 létust og 211. 023 særðust. Hin nýja gerð af Simca 1000. ÞÁ ER hin margumtalaða „opnun til vinstri“ orðin að veruleika á ítalíu og kristilegir demókratar búnir að mynda stjörn, sem hefur það að eiiju meginmarkmiði sínu, að koma á alls konar umbótum á því ári, sem eftir er til kosninga. Eitt höfuðmarkmiðið er að draga eftir mætti úr því mikla djúpi, sem staðfest er milli ríkra og - fátækra í landinu. Eins og áður hefur verið getið, hefur Pietro Nenni og sósíalistaflokkur hans fallizt á að styðja stjórnina, venjulega með hlutleysi, en með atkvæðum þegar um er að ræða ákveðnar umbótatillögur. Þetta er einhver merkasta til- raun, sem gerð hefur verið í stjórnmálum Ítalíu á síðustu ár- um og ber sannarlega að vona að hún takist. A. m. k. verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig til tekst. Pietro Nenni flutti mjög at- hyglísverða ræðu við umræð- una um hina nýju stjórn. Hann sannfærði kristilega demókrata um, |að réttara væri, að flokk- ur hans verði stjórnina með hjásetu við atkvæðagreiðslur, heldur en með beinum stuðn- ingi. Að öðrum kosti væri hætta á, að menn héldu, að enginn munur væri á sósíalistum og kristilegum demókrötum, og hann bætti við: „En það er (munur). Ilins vegar munu só- síalistar greiða atkvæði með umbótaáætlun stjórnarinnar ef til kemur, um hvert atriði og skilyrðislaust, svo framarlega sem stjórnin heldur loforð sín og fer eftir hinni samþykktu áætlun“. Nenni kvað Ítalíu ekki þurfa á neinni „alþýðufylkingu“ að halda. Ástandið á ítalíu væri allt öðru vísi en verið hefði í Frakklandi. Hann lýsti því yfir, að hið gamla form samvinnu sinnar við kommúnista væri úr sögunni. „Sósialistar munu styðja sameiginlega hagsmuni verkamanna hverju sinni, en aldrei taka þátt í valdastreitu, sem miðar að nokkru formi flokkseinræðis. Því að sósíal- isminn er óhugsandi án frelsis“. Afstaða 'Nennis til NATO og annarra alþjóðlegra stofnana koxn og mjög skýrt fram. í ræð- unni sagði, hann um þetta atr- iði og um Fanfani forsætisráð- herra: „Hann vantar dál.ítið — nefnilega hæfileikann til að sjá hlutina í nýju ljósi. Eins og þetta með NATO, sem fyrir okkur sósíalistum þarf ekki að þýða „með eða móti“. Það, sem við kref jumst í dag er ekki ítal- ía, sem verði að fara úr NATO, heldur Ítalía, sem getur sýnt framtak INNAN NATO, eins og Ítalíu ber að gera í Sameig- inlega markaðnum, Sameinuðu þjóðunum, Evrópuþinginu í Strassborg og yfirleitt í öllu alþjóðlegu samstarfi“. Nenni og sósíalistar hans eru staðráðnir í að hjálpa stjórn Fanfanis til að koma fram þeirri umbótaáætlun, sem hún liefur á stefnuskrá sinni og komið skal fram á því ári, sem eftir er fram til kosninga. Mun ætlunin vera, að stjórn þesG skilji svo skýr spor eftir sig, að úrslit kosninganna geri það kleift að halda þeirri samvinnu, sem nú hefur tekizt eftir þær kosningar. Helztu umbætur, sem Fanfani hyggst koma á nú, eru í skólamálum og alme int bættum kjörum hinna verst settu. Þá hefur hann lýst yfir, að stjórnin hafi í hyggju að auka völd sín yfir orkulindum þjóðarinnar, bæði raforku og kjarnorku. Hefur hann liaft við orð að beita þjóðnýtingu til þessa, ef með þurfi. T. d. munu engir einkaaðilar fá leyfi til rafmagnsframleiðslu, er þrír mánuðir eru liðnir frá valda- töku stjórnarinnar. Það jvckur enga furðu, að Nenni skuli geta stutt þessar fyrirætlanir Fanfanis í innan- ríkismálum. Hitt hefur mörgum fundizt einkennilegra, að hann skuli ekkert hafa að athuga við þá yfirlýsingu Fanfanis, að ut- anríkispólitík Iandsins verði ó- breytt. En það er ánægjuleg staðreynd, að hinn gamli stal- ínverðlaunamaður, Nenni, hef- ur liæfileika til að sjá hlutina í nýju ljósi. Hann lítur nú á NATO sem óumbreytanlega staðre.vnd og aðild Ítalíu að samtökunum sömuleiðis. Hann telur kleift að vinna að friði og minnkandi spennu innan tak marka NATO. Hann er ennfrem ur þeirrar skoðunar, að utan- ríkisstefna ítala eigi að líkjast meir stefnu Kennedys en Gulles. Allt þetta virðist lofa góðu um framtíöina. Þetta þýð- ir náttúrlega ekki, að orðinn heitur NATO-sinni, en hann sér gagnsleysi þess að berja hausnum við steininn og vill reyna nýjar leiðir. ERLEND ÍIÐINDI

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.