Alþýðublaðið - 15.03.1962, Síða 5

Alþýðublaðið - 15.03.1962, Síða 5
FJOR i sp arútvegsnefnd; MIKIÐ FJÖR hefur færzt í þingstörfin síöustu daga og sjást þess nú ýmis merki, að þinginu taki brátt að ljúka. Mörg stórmál hafa verið lögð fyrir þingið síð- ustu daga, svo sem togaramálið, búnaðarsjóðsmálið, frumvarpið j um almannavarnirnr og útsvars- frumvarpið. Á mánudag fylgdi Emil Jóns- son sjávarútvegsmálaráðherra úr hlaði frumvarpinu um aflatrygg- ingasjóðs sjáv- arútvegsins, en það frumvarp gerir róð fyrir bótagreiðslum til togaranna. — í fyrradag fylgdi Emil síðan úr hlaði frumvarpi um breytingu á lögunum um síld Er í því frum- varpi gert ráð fyrir, að fjölgað verði um tvo fulltrúa í nefnd- inni og verði þeir skipaðir af fé- lögum síldarsaltenda. Höfðu áð- ur verið gefin út bráðabirgðalög um þetta efni, svo að um stJð- festingu ó þeim verður að ræða. Emil sagði á þingi í fýrradag, er hann fylgdi frumvarpinu úr hlaði, að menn væru sammála um það, að fyrirkomulag það, er verið hefði á síldarsölunni hér á landi, hefði gefizt vel. — Sagði ráðherrann, að síldarútvegs nefnd hefði unnið mjög gott starf. Eysteinn Jónsson (F) fagnaði því ákvæði frumvarpsins, að sala á síld í neytendá- pakkningum væri frjáls. Hins vegar kvaðst hann þeirr- ar skoðunar, að síldarútvegsnefnd ætti áfram að hafa með sölu á annarri síld að gera. Bjarni Benediktsson dómsmála ráðherra fylgdi úr hlaði frum- varpinu um almannavarnir. Al- þýðublaðið skýrði nokkuð frá því máli hér í fyrradag, en þó skulu hér nefnd nokkur atriði til viðbótar: Samkvæmt frv. skal það verða borgara leg skylda þeirra, sem eru á aldrinum 18— 65 ára að gegna án end- urgjalds starfi í þágu al- mannavarna í umdæmi, þar sem þeir dvelj ast. Atvinnu- fyrirtækjum, sem hafa yfir 100 manns við störf á sama stað er skylt samkvæmt fyrirmælum almannavarnarnefnd- ar, að gera öryggisráðstafanir á vinnustað í því skyni, að draga úr afleiðingum tjóns vegna hernaðar aðgerða. Húseigendum ér skylt að hafa í húsum sínum nauðsynleg björgunar og eldvarnartæki, eftir því sem almannavarnarnefnd á- kveður nánar. Ákvæði eru í frv. um flutning fólks af hættusvæði og margt fieira. Ingólfur Jónsson landbúnaðar- ráðherra fylgdi úr hlaði í efri deild frv. um stofnlánadeilfd land búnaðarins. Hann sagði, að gjald það, sem leggja ætti samkvæmt frumvarpinu á búvörur bænda yrði ekki nema ¥2%, ef gjaldið sem lagt hefði verið á búvör- urnar vegna bændahallar- hallarinnar félli niður á þessu ári, en heimildin fyr- ir bændahall- argjaldið renn- ur út á þessu ári og hefur ekki verið ósk- að framlenging ar á Iienni. Verði gjaldið á bú- vörurnar ¥2%, m u n það samsvara ¥s hluta þeirra tekna, sem getr er ráð fyrir að deildin fái árlega. En verði það 1%, mun það samsvara 1/4 hluta tekna deildarinnar. — Sagði Ingólfur að þetta gjald væri minna en sjávarútvegurinn yrði að greiða til þess að standa undir sínum sjóðum. ■MtMMtMMMMIMMHMMHM 1 Kiljan varaf. evrópska rithöf- undasamb. ★ SAMKVÆMT frétt danska blaðsins „B.T.“, hefur Hall- dór Kiljan Laxness verið kos- inn einn af þremur varafor- setum evrópska rithöfunda- sambandsins. Hinir varafor- setarnir, sem kosnir hafa verið, eru rússneski rithöf- undurinn Bajan og Jean- Paul Sartre frá Frakklandi, en formaður varð ítalinn Ungaretti. „Fín staða“ segir B.T. í fyrirsögn. MMMMMMMMMMtMMMtWV A5 gefnu tilefni AF gejnu tilefni vill þjóð- leikhússtjóri geta þess, að starfs- fólki Þjóðleikhússins, öðrum en þeim, sem vinna í aðgöngumiða- sölu, er ekki heimilt að taka á móti pöntunum á aðgöngumið- um á sýningar Þjóðleikhússins. Aðgöngumiðasala leikhússins annast ein um pantanir og sölu aðgöngumiða og er hún opin alla daga kl. 13,15—20. Sími aðgöngu- miðasölu er 11200, þrjár línur. Forstöðumaður aðgöngumiða- sölu er Guðmundur Stefánsson. Hássland og ísl. þjóðsögur ÚT ERU komnar hjá -Almenna bókafélaginu bækur mánaðarins fyrir febrúar og marz. Febrúar- bókin er bók um Rússland, — en marzbókin Þjóðsögur og sagnir Torfhildar Þ. Ilólm. i Febrúarbókin er önnur bókin, sem út kemur í flokknum Lönd og þjóðir, — en áður er komin út bókin Frakkland, í þeim þeim flokki. Rússlandsbókin er eftir bandaríska rithöfundinn C. W. Thaeyer, en þýðendur eru Gunnar Ragnarsson og Thorplf Smith. Bókin er 175 bls. á stærð í stóru broti, en myndirnar eru hátt á annað hundrað, bæði litmyndir og svartar og hvítar myndir. Prentsmiðja suður í Ve- róna á Ítalíu hefur annazt prent- un myndanna, en allan texta hef- ur prentsmiðjan ODDI annazt. Þjóðsögur og sagnir eru skráð- ar .og safnaðar af Torfhildi Þ Hólm, en útgáfuna hefur annazt dr. Finnur Sigmundsson. Ritar SKÖLAFÓLK BERSI GEGN IÚBAKINU BÁTUR Framhald af 2. síðu. byggði báturinn, sem smíðaður hefur verið hér á landi. Það er Skipaviðgerðir í Eyj- um, sem smíðar bátinn, og sagði Bárður Auðunsson hjá Skipavið- gerðinni blaðinu í gær, að bátur- inn væri teiknaður af Ágústi G. Sigurðssyni eftir líkani Bárðar heitins Tómassonar. hann jafnframt formála um Torf- hildi, þar sem hann rekur ævi- feril hennar og ritstörf eftir gögnum, sem nýlega eru komin fram. Þjóðsögurnar eru um 240 talsins og hafa þær ekki verið prentaðar áður, að örfáum und- anteknum, sem skáldkonan birti í tímaritum sínum Draupni og Dvöl. Sögnum þessum safnaði frá Torfhildur Vestanhafs meðal íslendinga, sem þangað voru komnir frá ýmsum héruðum á ís- landi. Fjalla sögurnar um marg- víslegt efni svo sem drauga, álfa og annan huldulýð, en einn- ig um skringileg atvik, kveðskap og sannlega viðburði. Þarna eru m. a. sögur af Hallgrími Péturs- syni, Jónasi Hallgrímssyni, Jóni biskupi Vídalin og fleiri merkis- mönnum. Bókin er 232 bls. að stærð og inngangurinn að auki, 24 bls. Prentun hefur annazt Steindórs- prent h.f. Ýmsar merkar bækur munu koma út hjá Almenna bókafélag- inu á næstunni, svo sem þriðja bindi skáldsagna fGunnars Gunn- arssonar, bók um fugla, Trúar- brögð mannkyns, þýðandi Sigur- björn Einarsson biskup. Sjálfs- ævisaga Hannesar Þorsteinssonar, bókmenntasaga Einars Ólafs Sveinsson próf svo nokkrar séu nefndar. Loks er þess að geta að Almenna bókafélagið hefur fengið útgáfuréttinn á verðlauna- bók Eyvind Johnson, Hans nád- ens tid. Bindindissamtök skólanemenda hafa ákveðið að hefja herferð gegn tóbaksneyzlu jafnhliða, sem samtökin beita sér gegn áfengis- neyzlu, en það hefur hingað til verið aðalbaráttumálið. Á morgun 16. marz eru 30 ár iiðin frá stofn- un samtakanna. Núverandi formaður samtak- anna, Róbert Jónsson úr Verzlun- arskólanum, sagði á blaðamanna fundi í gær, að afmælisins hefði verið minnzt á baráttudegi sam- takanna, 1. febrúar og yrði ekki nú um sérstakar afmælishátíðir. Hins vegar vildu samtökin á þess- um tímamótum leggja á það á- herzlu, að ötullega yrði áfram haldið, að vinna gegn áfengis- neyzlu ungs fólks. Sagði hann, að samtökin hefðu á síðastliðnu þingi samþykkt tillögu þess efn- is að skora á alþingi, að beita sér fyrir því, að stofnað yrði sér- stakt embætti manns, sem hefði laun frá ríkinu til að annast bindindisfræðslu í skólum. Enn- fremur hafa bindindissamtök skól anna ákveðið að beita sér fyrir því, að meira verði um fjölbreytt- ar skemmtanir ungs fólks í góð- um húsakynnum, þar sem áfengi er ekki haft um hönd. Enn sagði Róbert frá því, að ákveðið hefði verið á þessu þingi að hefja kröftuga herferð gegn tóbaks- neyzlu ungs fólks, — en enn væri ekki tímabært að skýra frá því, hvernig þeirri baráttu yrði hagað. Róbert rakti nokkuð sögu sam- takanna, sem stofnuð voru 16. marz fyrir þrjátíu árum á Sal í Menntaskólanum í Reykjavík. — Sagði hann, að samtökin hefðu í fyrstunni átt erfitt uppdráttar og hatrammlega gegnt þeim barizt af andstæðingum bindindis í skól unum, en þau stóðu af sér allar árásir og þakkaði hann það eink- Hannessonar, rektors, en án að stoðar og styrks þess mæta mann sagði hann, að samtökin heíðu efalítið aldrei haldið velli. í fyrstu stjórn bindindissam takanna voru þessir menn: Helgi Scheving, forseti Þórarinn Þórarinsson, ritari Klemens Tryggvason gsjaldk Friðrik Á. Brekkan og Sigurður Ólafsson meðstjórrt- endur ásamt Hauki Þorsteinssyni og Hermanni Guðmundssyni úr Hafnarfirði. í núverandi stjórn eru: Róbert Jónsson, form. Verzlun-' arskólanum, Ólafur Hallgrímsson, varaform. Kennaraskólanum, Jcr- hanna Guðnadóttir, ritari, Kvenná skólanum, Sveinn Skúlason gjalrj- keri, Verzlunarskólanum, GerðUr Ólafsdóttir bréfritari, Kennará- um einarðlegan stuðning Pálmá skólanum. Tillaga Eggerts samþykkt í gær í I GÆR var sam- þykkt í sameimjðw þingi tillaga Egg- erts G. Þorsteins- sonar um nám- skeið til undir- búnings tækni- fræðimenntun. —. Gerir tillagan ráð fyrir að námsbeið verði haidin fyrir þá, er vilja- leggja stund á tæknifræðinám hév eða ytra. Er mikill skortur á tækjik fræðingum hér á landi og því bv þingsáylktun þessi hin tímabær- asta. V . ‘■Á ÖRYGGI MÁBÁTA ÞAÐ ÞARF að kanna möguleika á bættri aðstöðu til rekstrar opn- um vélbátum og auknu öryggi sjó- manna á slíkum bátum, sagði Bene dikt Gröndal í sameinuðu þingi í gær, er hann lýsti áliti allsherj- arnefndar deildarinnar um tillögu er fjallar um þetta mál. Flutningsmenn tillögunnar eru auk Benedikts Eggert G. Þorsteins osn og Hjörtur Hjálmarsson. .— Gerir tillagan ráð fyrir því að rík- isstjórnin athugi möguleika á að bæta öryggi smábáta. I greinargerð með tillögunni seg ir, að eftir útfærzlu landhelginnar hafi færzt nýtt líf í útgerð ppinna vélbáta og hefði vélbátum fjölgað mjög mikið hin síðustu ái;. Er nú talið að til séu í landinu allt að 1500 slíkir bátar. Samkvæmt skýrslum Fiskifélags íslands nam afli þessara báta 12 þús. lcstunv árið 1957 og 14,000 lestum árið 1958. Er stundum um 100Q manns samtímis á sjó á þessum .smábát- um. Sagði Benedikt að nauðsynlegt væri að auka öryggi þessara ópnu báta. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. marz 1962 §

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.