Alþýðublaðið - 22.05.1962, Qupperneq 3
SÍAM?
BANGKOK, 21. maí.
(NTB-Reuter).
Sendiherrar Ástralíu og Nýja
Sjálands í Bangkok neituðu I dag:
að afsanna eða staðfcsta frétt, er
liöfð er eftir heimild, sem venju-
lega er áreiðanleg, að Thailend-
ingar hafi tekið við tilboðum frá
þessum tvcimur ríkjum þess
efnis, að senda hersveitir til
landsins.
Heimildir, sem venjulega eru
áreiðanlegar, herma þó, að menn
SOUVANNA PHOUMA
Thanat Khoman utanríkisráð-
herra muni skýra opinberlega frá
málinu á blaðamannafundi í fyrra
málið.
Sömu heimildir herma, að
brezku stjórninni liafi enn ekki
borizt svar við tilboði sínu um að
séu sammála um tilboð þessara
tveggja ríkja, og 'búizt er við, að
senda sveit orrustuflugvéla frá
Singapore, en gefið er í skyn, að
einnig verði fallizt á þetta til-
boð í fyrramálið.
Ekki hafa borizt neinar fregn-
ir frá Laos þess efnis, að her-
menn Pathet Lao, sem hlynntir
eru kommúnistum, hafi haldið
sókn sinni áfram eftir landsetn-
ingu bandarískra hermanna í Thai
landi. Samkvæmt frétt fréttastof-
unnár í Norður Vietnam er
Souphanouvong prins foringi
Pathet Lao, fús til þess að ræða
við hina prinsana tvo um myndun
samsteypustjórnar, er bundið gæti
enda á borgarastríðið, en um
myndun slíkrar stjórnar hefur ver
ið rætt mánuðum saman.
í London er sagt, að Home lá-
varður, utanríkisráðherra Breta,
liafi alls ekki gefið Souvanna
Phouma tryggingu fyrir því, að
Bretar muni ekki senda hersveit-
ir til Laos, þegar utanríkisráðherr
ann ræddi við Laosleiðtogann á
laugardag. Souvanna Phouma
hafði skýrt blaðamönnúm í Ran-
goon svo frá, að Bretar mundu
ekki senda hermenn til Thailands.
Bretar hafa boðið Thailandi að-1
stoð, en annars leggja Bretar |
megináherzlu á pólitíska lausn,
sagði brezkur talsmaður.
Formaður skipulagsnefndar
bandaríska utanríkisráðuneytisins
Walter Rostow, sagði í dag, að á-
standið í Vietnam liti miklu bet-
ur út nú en fyrir hálfu ári.
í Rangoon sagði Souvanna
Phouma á sunnudaginn, að fljót-
lega mætti vænta góðra tíðinda
um ástandið í Laos. Hann kvað
sennilegt, að hann, foringi Pat-
het Lao, Souphanouvong prins, og
foringi hægri sinna, Boun Oum
prins, mundu lialda fund bráð-
lega. Auk þess sem hann kvað
Home lávarð hafa lofað sér því,
að engar brezkar hersveitir yrðu
sendar til Thailands, sagði hann,
að bandaríska stjórnin hefði heit-
ið honum því, að bandarískar her
sveitir yrðu ekki sendar til Laos.
Sendiherra USA í Vietnam neit-
aði því á sunnudag, að bandaríski
herinn hefði lialdið inn í Laos,
þ. e. landgönguliðar.
mwwwwwwwwww.
Dalvík, 21. maí.
EINHVER sýki virðist hafa
komið upp í kindum hér, svipuð
þeirri og sagði frá í blöðum, að
herjaði á fénað í Hrunamanna-
hreppi. Ærnar láta Iömbunum án
þess að bændur viti nokkra sér-
staka ástæðu til þessa, en dýra-
læknar hafa ekki getað hjálpað.
Sauðfjárveiki þessi hefur náð
sér illa niðri á ýmsum bæjum hér
inni í sveit.
Línubátarnir, sem héðan róa,
hafa aflað dável að undanförnu
og nóg er um vinnu. Unga fólk-
ið hefur að mestu dvalizt lieima
í vetur, því að annars staðar er
ekki um að ræða betri kjör en
það hefur hér.
Fram til þessa hefur verið kalt
og hryssingslegt veður, en í dag
virðist ætla að breyta til batnað-
ar og sólin skín. — K. J.
V. STOCHL, Tékkinn, sem í
dag heldur frá íslandi eftir
misheppnaða tilraun til að
stofna til skipulagðra njósna
hér á landi, neitaði með öllu
að svara spurningum blaöa-
manna, þegar Alþýðublaðið
reyndi í gærkvöldi að hafa sam
band við hann. Hann lét bera
Alþýðublaðsmönnum þau skila
boð úr herbergi sínu nr. 404
á Hótel Borg, að hann vildi
ekki taka við blaðamönnum og
mundi livorki svara munnleg-
um né skriflegum spurningum
frá þeim.
Árni Sigurjónsson, starfs-
maður hjá útlendingaeftirlit-
inu, sem gætti Stochl, hafði
milligöngu um að koma skila-
boðum til hans. En Árni gætti
þess vandlega, að blaðamenn-
irnir gætu ekki héð inn í licr-
bergið, þar sem Tékkinn beið
morguns — og brottferðar. —
Myndin er af Árna í dyragætt-
inni á herberginu, og er hún
tekin uin miðnætti í gær.
Vlastimail Stochl er fæddur
.VsðR.l
29. nóvember 1923 í bænum
Zajecon í Tékkóslóvakíu. Hann
á að baki fimm ára starfsferil
á vegum tékkneska sendiráðs-
ins í Reykjavík. Hann er gift-
ur og á tvö börn og mun ann-
að þeirra fætt á íslandi.
íslenzkur maður, sem kynnt-
ist Stochl, tjáði Alþýðublaðinu
I gærkvöldi, að hann kæmi vel
fyrir. Lítið eða ekkert virtist
hann hafa lært af íslenzku
meðán hann dvaldist hér, og
notaði hann ensku í viðskipt-
um sínum við íslendinga.
WWWWWWWWW%%WWWW*WW wswwtwwwtwwwwwwwww*
Neyðaróp upp
um alla veggi
djarftækir til þeirra al-
menningsfyrirtækja, sem þeir
ráða, og fara með þau alveg
eins og hrein flokksfyrirtæki
væru. Þannig hringdi einn af
lesendum blaSsins í gær og
benti á, aS búiS væri aS klína
framsóknaráróSri um alla
Bændahöll. Sömu sögu er aS ;
segja um byggingar SÍS viS
Kirkjustræti og hús Samvinnu-'
trygginga í Bankastræti.
FRAMSÓKNARMENN gerast
WWVWVWWWVWWWWWWWWWtVWMWWWHWWWWVMWWWVWWM
ALÞÝÐUBLABIÐ - 22. maí 1962 13