Alþýðublaðið - 26.05.1962, Síða 2
f 1
Hitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
HJörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
10. — Áskriftargjald Kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andí: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhaniiesson.
ÞEIR SEGJA EITT,
EN GERA ANNAÐ!
ÞAÐ ER MERKILEGT, hvernig Sjálfstæðis-
fíokkurinn tekur upp baráttu gegn þjóðnýtingu og
reynir að festa þjóðnýtingarstimpil á aðra stétt fyr-
ir kosningar. Þessi barátta er algerlegá í ósamræmi
við þá stefnu, sem Sjálfstæðismenn reka á milli
ikosninga, þegar þeir stand andspænis staðreynd-
um lífsins og eru ekki í áróðurshug. Athugum til
dæmis þetta:
1) Hvergi á landinu eru eins mikið af bæjarfyrir
tækjum eins og undir verndarvæng meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þar eru til
hvers konar bæjarrekin fyrirtæki, allt frá bæj
arútgerð, bæjarfrystihúsi, hitaveitu, rafmagns
veitu, bæjarþvottahúsi og til mikils fjölda af
þjónustufyrirtækjum. Þessi listi sýnir, hvílík
hræsni það er af Sjálfstæðismönnum að láta
svo fyrir kosningar, sem þeir hafi aldrei nálægt
opinberum rekstri komið.
2) Sjálfstæðismenn hafa sýnt það í verki, að þeir
hafi meiri áhuga á einokunarhringum en sönnu
einkaframtaki. Þeir hafa staðið dyggan vörð
um Sölumiðstöðina, SÍF og fleiri slíka hringa,
og ætla að ærast, ef nefnt er frjálsræði í sam
bandi við þá. Hins vegar hafa Alþýðuflokks
menn flutt á þingi tillögu um löggöf til að
tryggja almenningi, að starfsemi þessara sam
taka sé í samræmi við þjóðarhag, og í vetur
veitti Ernil Jónsson þriðja aðila leyfi til að
flytja út frystan fisk til að veita hinum staðn
aða hring SH dálitla samkeppni.
Af þessu verður ljóst, að Sjálfstæðismenn breyta
eftir ,allt öðnxm lífsregluin en þeir prédika fyrir
kosningar. KjóSé1dátííí/“ sjfa, að Alþyðufiokkurinn
hefur í þessum efnum viðurkennt staðreyndir, en
reynir ekki að villa á sér heimildir eins og Sjálf-
stæðismenn. Alþýðuflokkurinn vill, að opinber
rekstur, samvinnurekstur og einkarekstur starfi
hlið við hlið, hafi fullt frjálsræði og gegni hver
þeim verkefnum, sem þjóðin velur honum hverju
sinni. Alþýðuflokkurinn hefur eins og aðrir jafnað-
armannaflokkar horfið frá því að vilja þjóðnýta
allt. En sjónarmið hans í þessum efnum eru raun
hæf — hann þarf ekki að reyna að villa á sér heim
ildir.
xAxAxAxA
TILLÖGUR Páls Sigurðssonar
læknis um bætta heilbrigðisþjón-
ustu og skiptingu Reykjavíkur í
læknishcruð ná áreiðanlega fram
að ganga. Læknirinn hefur gert
ljósa grein fyrir tiUögum sínum,
sem eru í fullu samræmi við stefnu
og skoðanir Alþýðuflokksins og til-
lögur hans um bætta félagslega
þjónustu. Baráttan fyrir þeim er
aðeins á byrjunarstigi, en allir, sém
nokkuð hugsa um opinber mál,
þekkja söguna af baráttunni fyrir
góðum málum.
. , •. ... * f
ENGIR hinna flokkanna hafa
minnst á tilögur læknisins. Þannig
hefur alltaf verið tekið á móti nýj-
um hugmyndum, sem Alþýðuflokk-
urinn hefur komið með, en hanu
hefur ekki látið það aftra sér. Hann
hefur túlkað þær ár eftir ár, jafn-
vel í áratugi. Afturhald og tóm-
læti hefur smátt og smátt látið und
an síga og loks hefur verið svo
komið, að andstæðingarnir hafa
eignað sér hugmyndirnar og að síð-
ustu haldið því fram, að þeir hafi
fyrstir hafið máls á þeim og borið
þær fram til sigurs.
/ UNDAN ÞESSU er ég alls ekki
að kvarta, því að málefnið er aðal-
atriðið, ekki það hver hafi unnið
því fylgi og hrint því í fram-
kvæmd. Þannig er saga allra stórra
mála, og þannig verður og saga
þessa máls. Almenníngur á að
hafa augun opin fyrir þessari þró-
un. Hann á að vera farinn að
þekkja það hvernig barist er fyrir
málum, hvernig þau þróast stig af
stigi, hvað það kostar að koma mál
um fram — og hvernig andstæðing-
arnir setja upp spariandlitin þegar
þeir loks hafa léð hönd að verki.
ÞAÐ ER hins vegar aumt hlut-
skipti að þykjast alltaf hafa léð
góðu máli lið, eftir á. Það er að
minnsta kosti ekki stórmannlegt.
Það liggur mikið eftir Alþýðuflokk
inn í félagslegum málefnum. Hann
hefur gjörbreytt þjóðfélagslegri að
stöðu láglaunafólks, ellimóðra,
sjúkra manna og örkumla. Hann
hefur gjörbreytt aðstöðu ungs
fólks til þess að geta stofnað heim-
ili.
að Sjálfstæðisflokkurinn sveigði til
og nú þykist hann alltaf hafa bar-
ist fyrir þessum málum, jafnvel
betur en nokkur annar flokkur.
Hvar sem leitað er hefur útkomán
orðið þessi.
ÉG SAGÐI, að þetta væri ekki
stórmannleg saga, að minnsta kosti
ekki hetjusaga fyrir Sjálfstæðis
menn. Lúðulatahátturinn hefur ver
ið helsta einkenni hans allt frá
byrjun í öllum helstu hagsmuna-
málum heimilanna. Ég gæti nefnt
sjá það að þannig verður og af-
fjölda annarra dæma. Við munum
staða hans gagnvart hinum stór-
merku tillögum Páls Sigurðssonar.
Hann mun sýna þeim tómlæti,
stundum fulla andstöðu, en sveigja
til smátt og smátt — og að lokum
halda því fram, að hann hafi allt-
af barist fyrir þeim og hrundið
þeim í framkvæmd.
ÞAÐ ER NAUÐSYNLEGT að
efla Alþýðuflokkinn og drapra úr
afli Sjálfstæðisflokksins. Þar með
mun ganga bctu rað sveigja Sjálf-
stæðisflokkinn til þjónustu við
hinn nýja tíma, góð mál og hags-
mun ganga betur að sveigja Sjálf-
lynt fólk, sem stutt hefur Sjálfstæð
isflokkinn, á að vinna að þessu n^ð
atkvæði sínu.
Hannes á horninu.
Stúlka
óskar eftir kvöldvinnu, má
vera barnagæzla.
Upplýsingar Shellvegi 4.
Geymið auglýsinguna.
LAUGARDALSVÖLLUR
Islandsmótið
hefst í dag kl. 4. Þá leika
Fram - Akureyri
Dómari: Einar H. Hjartarson.
Sjötugur í dag:
Eggert B. Kristjánsson
FRAMÁMENN Sjálfstæðisflokks
ins börðust hatrammlega á móti
verkamannabústöðunum og gegn
allri annarri aðstoð við láglauna-
fólk 1 íbúðabyggingum. Alþýðu-
flokknum tókst með áratuga starfi
að vinna málunum svo mikið fylgi,
MUNIÐ
25 KRÓNU
VELTUNA
SJÖTUGUR er í dag Eggert
Bjarni Kristjánsson frá Bíldu-
dal. Eggert stundaði sjómennsku
lengst af. Hann lauk prófi frá
Sjómannaskólanum 1917 og var
lengi stýrimaður á skipum. Var
hann m. a. stýrimaður á linu-
veiðaranum Bjarka með Jóni
Magnússyni skipstjóra frá Bíldu
dal. Eggert var með duglegustu
sjósóknurum hér meðan honum
entist heilsa til þess að stunda
sjómennsku. Er hann hætti sjó-
mennsku sökum heilsubrests lióf
hann störf í landi unz hann missti
heilsuna alveg 1951. Síðustu ár-
in hefur Eggert verið á sjúkra-
húsum.
Eggert er giftur ísafold Helga-
dóttur og eignuðust þau tíu börn.
8 þeirra eru á lífi og eru þau öll
mikið myndarfólk. Eggert hefur
verið félagi í Sjómannafélagi
Reykjavíkur frá unga aldri og
auk þcss hefur hann ætíð verið
eindreginn jafnaðarmaður. Segja
má, að hugur Eggerts sé ætíð
á sjónum og hjá verkafólkinu,
enda þótt heilsan sé þrotin. Al-
þýðublaðið óskar Eggcrt til ham-
ingju með afmæliS.
2 26. mai 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ