Alþýðublaðið - 31.05.1962, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.05.1962, Blaðsíða 1
SEGIR DUNGAL í YFIRLITI, sem samiS hefur ver- ið yfir krabbameinsskráningu á s. !. 5 árum, sést að 1773 krabbameinstil felli hafa verið skráð, 885 í karimönn um og 888 í konuni. Lungna- og maga krabbi hefur færst mjög í vöxt á s. I. árum, og í því sambandi má benda á, að fyrir 30 árum voru skráð 1-2 lungnakrabbatilfelli á ári, en s. I. ár voru þau 24. Þessar upplýsingar fengu blaða- menn á fundi í gær me3 próf. Ní- els Dungal og fleirum úr stjórn Krabbameinsfélags íslands. Dun- gal sagði, að nú mætti búast við mikilli bylgju af lungnakrabba á SÝNINGUM á My Fair Lady lýkur í New York 7. júlí næst komandi. Söngleikurinn bef- ur þá sett allskyns heimsmet. Dæmi: Sýningarnar verða orðnar 2.621 talsins, sýning- argestir verða orðnir hálf fjórða milljón og tekjur af söngleiknum munu nema ná- lega 800 milljónum króna! næstu árum, þar eð nú væru lið- inn sá tími, sem krabbinnufæri að segja til sín eftir að reykingar fóru að hefjast hér fyrir alvöru á árunum 1940—’45. Sagði Dungal jafnframt, að nú þyrfti að gera róttækar ráðstaf- anir til að koma á almennri fræðslu um skaðsemi reykinga, og þá sér- staklega meðal barna og unglinga. Þá þyrfti að leggja meira fé til lækninga á þessum ægilega sjúk- dómi, en reiknað er með að aðeins 25% krabbameinssjúklinga fái varanlega lækningu með uppskurð um. Af fyrrnefndum 1773 krabba- meinstilfellum er næstum helm- ingurinn í meltingarfærum eða 730. Karlmenn eru þar í miklum meirihluta, með 447 á móti 283 hjá konum. Ræður magakrabba- meinið þar mestu um. Hins vegar er krabbamein í brjóstum og kyn færum miklu algengara hjá kon- um: 338 á móti 88 hjá karlmönn- um. Það kemur fram að maga- krabbamein er algengara í sveit- um en í kaupstöðum. Framh. á 5. síðu Somtöl v/ð Stalín ALÞÝÐUBLAÐIÐ byrjar í dag a9 birta greinaflokk um bók Milovans Djilasar, fyrrum varaforseta Júgóslavíu: SAMTÖL VID STALÍN. Eins og kunnugt er af fréttum, var Djilas hnepptur í fangelsi fyrir þessa bók sína. Á9ur höfffu flokksbræöur hans og félagar reyndar dæmt hann í níu ára fangelsi fyrir a9ra bók: HIN NÝJA STÉTT. Alþý9ublað i9 hvetur lesendur sína til að lesa greinaflokkinn um Djilas og sam töl hans viö einræðisherrann. FYRSTA GREIN ER Á 4. SÍÐU. ALÞYÐU BLAÐIÐ KREFST. FRAMKVÆMDASTJÓRI Al- þýðublaðsins sagði ritstjórunum þau tíðindi í gær, að lijá sér lægju 35 umsóknir um sendi- sveinastöður og um 80 umsóknir um störf barna við að bera út blöð. Viff höfum oft skrifað um at- vinnuvandamál unglinga á þessu vori, þar á meðal nokkrar greinar í kosningaliríðinni. En úr því að ásóknin í störf er svona mikil hjá tiltölulega litlu fyrirtæki, eins og blaðinu okk- ar, hvernig skyldi þá vera hjá stærri fyrirtækjum, sem hafa meiri fjölda í starfi? Fjölgun hefur verið ör og barnadauði lítill á íslandi síð- ustu áratugi, svo að íiinir upp- vaxandi árgangar eru fiölmenn- ir. Þannig eru ungiingar í Reykjavík einni á aldrinum 12 —15 ára fleiri en allir íbúar Keflavíkur, og 14 ára börnin ein fleiri en allir íbúar Sauð- árkróks, svo annað iæmi sé nefnt. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk I gær, var fjöldi unglinga í skólunum i Reykja- vík í nóvember síðastliðnun. sem hér segir-: 12 ára ... 1394 13 ára . . . 1381 14 ára . . . 1344 15 ára . . . 1036 Samtals 5155 (Framhald í leiðara).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.