Alþýðublaðið - 07.07.1962, Qupperneq 14
DAGBÓK laugardagur
Laugardagrur
7. júlí:
12,00 Hádeg-
isútvarp. —
12,55 Óskalög sjúklinga. 14,30
Laugardagslögin. 16,30 Vfr. •—■
Fjör kringum fóninn: Úlfar
Sveinbjörnsson kynnir nýjustu
dans- og dægurlögin. 17,00 Frétt
ir. — Þetta vil ég heyra: Elisa-
bet Jónsdóttir velur sér hljóm-
plötur. 18,00 Söngvar í léttum
tón. 18,55 Tilkynningar. 19,30
Fréttir. 20,00 Upplestur: „Hólm
gangan“, smásaga eftir Púskin
(Jón Aðils leikari). 20,30 Frá
Grikklandi : Sigurður A. Magn-
ússon rithöf. kynnir gamla tón-
lis og nýja. 21,15 Leikrit: „Mað-
urinn, sem ekki vildi fara til
himna“ eftir Francis Sladen-
Smith, í þýðingu.Árna Guðna-
sonar. Leikstjóri: Lárus Páls-
son. Leikendur: Indriði Waage,
Margrét Guðmundsdóttir, Ró-
bert Arnfinnsson, Ævar R. Kvar
an, Emilía Jónasdóttir, Helga
Valtýsdóttir, Arndís Björnsdótt
ir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Valur Gíslason, Þorsteinn Ö.
Stephensen og Gísli Alfreðsson.
22,00 Fréttir. 22,10 Danslög. _
24,00 Dagskrárlok.
1
Skipaútgerð
rikisins:
Hekla fer frá Rvk
kl. 18 í kvöld til
Kirkja Ólpíða safnaðarins: Mess
að kl. 11 árd. Séra Emil Bjönrs
son.
Norðurlanda. Esja fer frá Rvk
kl. 19 í kvöld til Keflavíkur og
Vestmannaeyja. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum í dag til
Þorlákshafnar. Þyrill er á Aust-
fjörðum. Skjaldbreið er á Norð-
urlandshöfnum. Herðubreið fer
frá Rvk á hádegi í dag austur
um land í hringferð.
MESSUR
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Þorsteini Björns-
syni, ungfrú Petrína Ólöf Þor-
steinsdóttir, Flókagötu 60 og
Gunnar Viðar Guðmundsson,
Baldursgötu 26. Heimili ungu
hjónanna verður á Flókagötu
60.
Gefin verða saman í Borgar-
nesi í dag Ragnhildur Björns-
son (Áma Björnssonar, kaup-
manns í Borgamesi) og Arn-
björn Kristinsson, prent-
smiðjustjóri og bókaútgef-
andi. Séra Leo Júlíusson gef-
ur þau saman.
Kvenfélag Háteigssóknar: Sum-
arferð félagsins verður farin
fimmtudag 12. júlí. Þátttaka
tilkynnist í síma: 11813 og
19272.
Samband ísl kristniboðsfélaga
heldur kveðjusamkomu fyrir
Björgu og Harald Ólafsson,
kristniboða í Fríkirkjunni í
kvöld kl. 8,30. Steingrímur
Benediktsson, skólastj., Felix
Ólafsson, kristniboða og Dahl-
Goli.Stórþingsmaður, flytja
stutt ávörp. Gjöfum til krist-
niboðsins móttaka í lok sam-
komunnar. Samband ísl krist-
niboðsfélaga.
Kvöld- og
læturvörð-
ur L. R. í
dag: Kvöld-
vakt kl. 18.00—00.30. Nætur-
vakt: Andrés Ásmundsson. Næt-
urvakt: Halldór Arinbjarnar.
Læknavarðstofan: Sími 15030,
VEYÐARVAKT Læknafélags
Reykjavíkur og Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur er kl. 13-17
alla daga frá mánudagl J1
'östudags. Síml 18331.
Fríkirkjan: Messað kl. 2 e. h.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Laugarneskirkja: Messað kl. 11
f.h. Séra Garðar Svavarsson.
Háteigsprestakall: Ekki messað
næstu sunnudaga vegna sum-
arleyfa. Séra Jón Þorvarðs-
son.
EHiheimilið: Guðsþjónusta kl.
10 f.h. Séra Magnús Runólfs-
son prédikar. Heimilisprest-
urinn.
Hallgrímskirkja: Messað kl. 11
f.h. Séra Sigurjón Þ. Árnason.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Mess-
að kl. 11 árd. Séra Emil Björns
Stefánsson.
Neskirkja: Messað kl. 10,30. .—.
Séra Jón Thorarensen.
Kvenfélag Hallgrímskirkju fer.
sína árlegu skemmtiferð,
þriðjudaginn 10. júlí. Úpplýs-
ingar í símum: 14442, 13593
og 15969.
lópavogsapótek er opið alla
trka daga frá kl. 9.15-8 laugar
aga frá kl. 9.15-4 og sunnudaga
-á kL 1-4
BBæjarbókasafn
leykjavíkur: -
Símt: 12308. AB-
alsafnið Þing-
noltsstræti 29 A: Útlánsdeild
2-10 alla virka daga nema laug
ardaga 1-4. Lokað á sunnudög
um. Lesstofa: 10-10 alla virka
laga, nema laugardaga 10-4.
Lokað á sunnudögum. Útibúið
Hólmgarði 34: Opið 5-7 alla
/irka daga, nema laugardaga
Útibúið Hofsvallagötu 16: Op
ð 5.30-7.30 alla virka dags
lema laugardaga
vióðmlBjasafnlð og Ustasa t
ríkislns er opið daglega ti‘i
kL 1,30 til 4,00 e. h.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
fer stutta skemmtiferð n. k.
mánudag kl. 8,30 síðd. Skoð-
að verður Árbæjarsafnið og
að því loknu verður ekið um
Heiðmörk. Á heimleið stoppað
við Kirkjubæ og drukkið
kvöldkaffi. Lagt verður af
stað frá Búnaðarfélagshúsinu
við Laekjargötu.
istasafn Elnars Jónssonar er
ipið daglega frá 1,30 til 3,30.
‘Vsgrímssafn, Bergstaðastræti 74
Opið: sunnudaga, þriðjudaga
ug fimmudagd frá kl 1.30—4.00
Árbæjarsafn er opið alla daga
frá kl. 2—6 nema mánudaga.
Opið á sunnudögum frá kl,
2—7.
Ritvillur og
málvillur
OLÍAN..
Framhald af 1. síðu.
Þó að menn vildu ná honum, til ða
reyna að þvo hann, er hann svo
styggur að ekki er möguleiki að
komast að honum.
Sigurður sagði, að ef olían héldi
áfram að berast að landi, væri allt
varpið í stór-hættu, og myndi líða
langur tími þar til fuglinn kæmi
aftur.
Olían heldur áfram að streyma
úr prammanum, og mun ekki vera
nokkur möguleiki að stöðva lek-
ann. í bátnum voru 200 tonn, og
geta menn ímyndað sér hvaða af-
leiðingar það getur haft þegar öll
olían hefur flætt út.
í flæðarmálinu kringum hval-
stöðina í Hvalfirði, mátti sjá æðar-
fuglinn í gær, allan svartan af olíu,
og svo þungan á sundi að rétt höf-
uðið stóð upp úr. Kúrði fuglinn
upp í fjörunni, og reyndi að finna
skjól fyrir kuldanum. Þegar hann
varð var mannaferða, skreiddist
hann undan og út í sjó. Bændurn-
ir fundu a. m. k. 20 dauða unga
og fugla í gær.
Af þessu sést að gífurlegt tjón
getur hlotist af þessari 'olíu, og
ekki ólíklegt að málaferli spinnist
af. Það hefur nú vitnast að olíu-
pramminn lenti upp á skeri, en þá
var hann fjarri venjulegri sigl-
ingarleið. Stóð hann þar fastur,
og þegar fjaraði undan honum
sprungu skilrúmin vegna þunga
olíunnar. Síðar komst hann á flot,
meðfíóðina en sökk þá skömmu
seinna.
NÚ vaða uppi alls konar mál-
villur, — eins og raunar alls
staðar og á öllum tímum. Böm
læra málið vitlaust í upphafi og
eru ekki leiðrétt eða taka ekki
leiðréttingum. Skólar landsins
eiga vafalaust mikinn og góðan
þátt í því, að íslenzkt mál hefur
ekki hrapað til meiri niðurlæg-
ingar nú síðustu áratugina en
orðið er, og undanhald flámælis-
ins er þeim vafalaust mikið að
þakka. Ríkisútvarpið hefur und-
beittan leiðbeinanda, bar sem
Bjarni Einarsson magister er, og
er vonandi, að fólk á öllum aldri
og öllum stéttum hafi fært sér
leiðbeiningar hans og fræðslu í
nyt. En útvarpið gæti gert og
á að gera meira. Það ætti að
hafa sérstakan ráðunaut, sem
sæi um vandað mál á fréttum,
auglýsingum og útvarpserindum
hvers konar. Það er t. d. mjög
leiðinlegt, að heyra setningu
eins 'og þessa í útvarpinu: „Það
er hendi.” „Dómarinn dæmir
hendi á N. N.” (18. júní). Þó er
hægt að afsaka þetta nokkuð, því
þessi þágufallsvilla er mjög al-
geng og þulurinn hefur ekki gætt
sín nógu vel i hita 'frásagnar-
innar. Hitt er öllu ver”a, þegar
alls konar vitleysur eru lesnar
upp af blöðum á segulband, án
þess að nokkur gagnrýni hafi
1
átt sér stað eða leiðréttingar, og
síðan bornar á borð fyrir ai-
þjóð. Hvimleiðast er þó að hlusta
á útvarpsþuli misþyrma tung-
unni með málvillum eins og
þeim, að bera fram kv þar sem
á að vera hv, en sá framburður
breiðist nú illu heilli út um land
-ið eins og logi í sinu. Því mið-
ur eru skólarnir ekki enn farn-
ir að láta neitt að sér kveða í
þessum efnum. Og fólk er orðið
svo ruglað í ríminu — eins og
áður með e og i — að víða sést
nú á prenti hv þar sem á að
vera kv.
Ég rita þessi fáu orð í tilefni
þess, að í Alþbl. 28. f. m. kom
grein eftir mig með fyrirsögn-
inni: Vanhirða í Árbæjarsafni.
Þegar greinin fór frá mér, stóð
í henni þessi setning: „Annars
kvað Reykjavíkurbær standa að
baki Árbæiarsafni.” Þegar hún
birtist í blaðinu stóð: „Annars
Avað Reykjavíkurbær” o.s.frv.
— eins og til væri sögnin að
hveða. Oft er talað um kunir-
áttuleysi blaðamanna í íslenzku
máli og þeir bornir sökum um
margs konar villur þessum líkar,
þar sem hv og kv er blandað
saman í ritmáli. En í þessu til-
felli hefur prentara eða próf-
arkalesara verið um að kenna,
og er ekki ósennilegt, að svo só
í fleiri tilfellum. E. M. J.
Baldur Pálmason skrifar okkur um útvarpsskákina
í PISTLI um útvarpsskákina, í
Alþýðublaðinu í gær er heldur
hnjóðað í keppendur, Inga R. Jó-
hannsson og Svein Johannessen,
fyrir að hafa teflt upp skák, er
Bobby Fischer og Viktor Kortsnoj
þreyttu með sér á millisvæðamót-
inu í Stokkhólmi. Segja má, að ó-
vanalegt sé að 38 leikir haldist í
einhverju eldra fari, og næsta ótrú
legt er að það gæti gerzt við skák-
borð, en í útvarpsskák, bréfskák o.
þ. h. gegnir allt öðru máli. Þar hafa
þeir góða trú á taflmennskunni hjá
Vilja stöðva...
Framliald af 16. síðu.
grein fyrir þeim virkjunarrann-
sóknum, sem framkvæmdar hafa
verið við Jökulsá undan farinn
áratug, — og kostnaðarhlið við
mögulega virkjun yrði einmg
tekin til umræðu á fundinum. —
Hann sagði, að ekki kæmi til
greina að virkja Jökulsá nema
með tilliti til stóriðju, án þess
mundi virkjunin ekki geta borið
sig. Loks sagði raforkumálastjóri,
að ef til þess kæmi, að virkja Jök
ulsá, yrði ekki um stærri virkj-
un að ræða en Búrfellsvirkjun-
ina, því að stærri virkjun væri
ekki möguleg á íslandi.
fyrirrennurum sínum og telja hana
þá beztu fram að vissu marki, er
ekki óeðlilegt að þeir fylgi henni.
Útvarpsskákin hófst með
spænskri opnun, sem hefur afar
lengi verið hvað algengust allra
skákbyrjana, og eftir nokkra fyrstu
leikina, sem nær ætið eru eins,
komu þeir (liklega af hendingu) inn
á leið Fischers og Kortsnojs. Þá
hafa hinir snjöllu' norrænu meist-
arar, Ingi og Svein, sjálfsagt farið
að hafa hliðsjón af hinni eldri.
Ingi stýrir hvíta liðinu, sem sigr-
aði áður fyrir atbeina Fischers, og
þess vegna er ekki við því að bú-
ast að hann verði fyrri til að bregða
verulega út af (hann breytti reynd
ar um leikjaröð á einum stað
snemma tafls). Og Svein virðist
liafa öðlast traust á uppbyggin-
Kortsnojs og ekki talið hana þurfa
betrumbótar við fyrr en í 39. leik.
Við verðum að hafa í huga, að
þetta er kappskák, og vilja báðir
keppendur sigra. Ingi telur leið
Fischers vænlega að því marki,
enda ekki í neinar grafgötur að
fara um það, meðan svartur bre*
ir ekki um. Og Svein ^amsinnir
Kortsnoj lengi fram eftir, en síð-
an sveigir hann af leið og ætlar
"r þar með að rétta hlut svarts.
Vera má að hann sjái glitta í sig-
urfánann álengdar.
Engin ástæða er til að halda að
skákin teflist í lokin með líkum
hætti og hin fyrri. Hún er þegar
komin inn á allt aðrar brautir og
verður áreiðanlega fjörlega tefld
til enda. Til þess bendir staðan ó-
tvírætt, og mun margur hafa á-
nægju af að fylgjast með lokahrin-
unni.
Að sumu leyti hefði verið
skemmtilegra að skákin hefði tekið
á sig frumlegri blæ framan af, en
að sumu leyti ekki. Með þessu móti
fást allt önnur — og líklega miklu
tilþrifameiri — tafllok á áður
Framh. á 12. síðu
Svart: Svein Johannessen.
Hvítt: Ingl R. Jóhannsson.
38. Hcl-c6 Hb8-e8
39. Hc6xd6 g6-g5
40. Hd6-d7t Kg7-h6
14 7. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐÍD