Alþýðublaðið - 27.07.1962, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 27.07.1962, Qupperneq 11
Stofnfundur Kjördæmisráðs Alþýðu- flokksins á Vesffjörðum verður Iialdinn næstk. sunnudag 29. júlí í Skátaheimilinu á ísafirði ogr hefst kl. 4 síðdegis. Fundinn situr ritari Alþýðuflokksins, Gylfl Þ. Gislason menntamálaráðherra. Fulltrúar eru hvattir til að fjöl- menna stundvíslega. JXIÐSTJÓRN ALÞÝÐUFLOKKSINS. Sameiginlegur fundur Alþýðuflokksfélaganna á ísafirði verður haldinn í Skátaheimilinu nk. sunnudag, 29. þ. m. og hefst kl. 8,30 e. h. FUNDAREFNI: Stjórnmálaviðhorfið. Frummælandi: Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra. Alþýðuflokksmenn eru beðnir að fjölmenna stundvíslega. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN. SÍLDAR- FLUTNIN6AR TOGARINN Narfi var væntan legur til Reykjavíkur um átta Icyt ið í gærkvöldi með 6100 mál af síld austan af Seyðisfirði. Um há degið í dag er Geir væntanlegur með fullfermi af síld. Öll þessi síld fer í bræðslu í Síldar- og fiski- mjölsverksmið'juna á Kletti. Tveir togarar eru nú farnir aust ur til viðbótar í síldarflutningana eru það Sigurður, Einars Sigurðs- sonar og Þorsteinn Ingótfsson frá B.Ú.R. Munu þeir eirv.ig flyvja síld frá Seyðisfirði til KJettsverk smiðjunnar. Þannig eru nú fjór ir togarar I flutningum á síld að austan. Löndunarkranarnir á Seyö isfirði anna ekki að lesta síld í fleiri skip, en þeir munu geta haft við að lesta þessa fjóra togara. ÍÞRÖTTIR B Framhald af 10. síðu. að sjá leilcina. Eftirlit var ekkert svo börnin gátu hihdcunarlaust vitnað um uppeldi sitt og haimilis jbrag. — EB ■|i Minnst Kópavogsfundar í tilefni þess, að 300 ár eru liðin frá erfðahylling- unni í Kópavogi, efnir Kópavogskaupstaður til sam- komu við Þinghól í Kópavogstúni laugardaginn 28. júlí 1962 kl. 14,00. Dagskrá : 1. Samkoman sett. 2. Ávarp : Hjálmar Ólafsson bæjarstjóri. 3. Ræða: Einar Laxness sagnfræðingur. 4. Afhjúpun minnisvarða, Brynjúlfur Dagsson héraðslæknir. LÚÐRASVEIT KÓPAVOGS LEIKUR MILLI ATRIÐA. Undirbúningsnefndin. - Félagslíf - FARFUGLADEILD REYKJAVÍKUR. Farfuglar. Ferðafólk. Um helgina í Borgarfjörð. Um verzlunarmannahelgina í Þórs- mörk. Fyrsta ferð föstudag kl. 8 — ferð laugardag kl. 2. Um verzl unarmannahelgina: Sj;ðri Fjalla- baksvegur í Hvanngil. 8. ágúst hefst 12 daga ‘ferð í Öskju, Herðu breið og Snæfell. Upplýsingar á skrifstofunni að Lindargötu 50. Opið í dagf frá 1—10. Sími 15937. Farfuglar. VIÐ gátum ekki annað en brosað, er við sáum það í Stakstein- um Morgunblaðsins í gær, að Alþýðuflokkurinn hefði sérstakan kunn- ugleika á eðli Framsóknarmanna vegna gamallar og langrar sam- vinnu. Þetta er hverju orði sannara, en það búa fleiri yfir slíkrl reynslu. Sjálfstæðismenn hafa verið í stjórnarsamstarfi við Fram- sókn fjórum sinnum, samtals á 13 árum. Þeir þekkja því maddömuna líka, og eru það öllu meiri tíðindi, ef ÞEIM hefur líka þótt hún vera afturhaldssöm í stjórn ! * * * KommúnJistar hafa raunar líka unnið með Framsókn i vinstri stjórninni. Þegar þeir á næsta flokksþingi sínu gerðu upp málin eftir þá síjórn, var ein höfuðniðurstaðan sú, að íhaldssemi Framsóknarflokksins hefði eyðilagt stjórnarstarfið. Þannig er það niðurstaða allra hinna þingflokkanna, að í stjórn sé Framsóknarflokkurinn erfiður og aifturhaldssamur. * * * Þetta er kjarni málsins. Enda þótt Framsókn þykist vera voða- lega mikill vinstri flokkur, þegar hún er ábyrgðarlaus utan stjórn- ar, þá.fellur sú gr.íma á sömu stundu og flokksbroddarnir setjast í ráðuneyti. Þá kemur hið rétta andlit þeirra í ljós. * * * Morgunblaðið gefur þá söguskýringu, að Alþýðuflokkurinn hafi þá fyrst lent í erfiðleikum, er hann hafði verið nokkur ár í stjórn- arsamstarfi við Framsókn fyrir stríð. Þetta er ekki fullnægjandi skýring. Árin 1935—37 gekk yfir heiminn bylgja starfstarfs milli kommúnista og jafnaðarmanna í kjölfar kreppunnar. Þá myndaði Leon Blum til dæmis vinstri stjórn í Frakklandi. En hér á landi var það ógæfa nokkurra Alþýðuflokksleiðtoga, að ganga til samstarfs við komma — og missa tökin á Sameiningarflokknum. Þetta var auð- vitað höfuðástæða þess, að Alþýðuflokkurinn varð ekki eins stór og sams konar flokkar í nágrannalöndunum. * * * Skömmu síðar gerðist annar afdrifaríkur atburður í stjórn málunum, sem stuðlaði að sama marki. Sjálfstæðismenn tóku upp samstarf við kommúnista í verkalýðshreyfingnnni til þess að brjóta niður stöðu Alþýðuflokksins þar. Var þetta eitt mesta ógæfuspor, sem lýðræðisfiokkur hefur stigið hér á landi, allé að því eins þýðingarraikiS og klofningur Héðins. Þennan bleti munu Sjálfstæðismenn seint geta þvegið af sér, enda sköpuðu þeir þarna grundvöll undir öran vöxt kommúnista árin á eftir. Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 1490« M.s. „Reykjafoss" fer frá Reykjavík þriðjudaginn 31. júlí. Viðkomustaðir : ísafjörður Sigluf jörður Akureyri s Húsavík Vörumóttaká á mánudag. Ötsvörin í Hafnarfirði Þar sem fyrirsjáanlegt er, að álagningu útsvaia í Hafnarfirði verður ekki lokið fyrir næstkomancH mánaðamót, 'hefur verið ákveðið, að innheimta einu áttunda 'hluta áætlaðra útsvara 1. ágúst næstk. á sama hátt og fyrri hluta ársins. Ber því atvinnurekendum að halda eftir af kaupl starfsmanna sinna 1- ágúst svo sem að undanfömu. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. \ Eina handknattleiksheimsóknin á árinu Hf. Eimskipafélag Islands. | s s s $ \ s s s FH - Esslingen á Hörðuvöllum í Hafnarfirði kl- 8 í kvöld. Dómari: Frímann Gunnlaugsson. Verð aðgöngumiða 25 kr. fyrir fullorðna og 15 kr. fyrir börn. MOTTOKUNEFNDIN. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 27. júíf 1S62

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.