Alþýðublaðið - 27.07.1962, Side 13

Alþýðublaðið - 27.07.1962, Side 13
Jewgenij Jewtuschenko, skáld ið rússneska, var nýlega á ferð í Englandi. Jewtuschenko er það rússneskt skáld, sem æskan aust ur þar dáir einna mest og hann hefur ef til vill meira vald yfir hugum æskumanna í Rússlandi, en nokkur annar ráðandi andans manna í Rússlandi. Við komuná til Englands var honum tekið með kostum og kynj um enda vildu margir sjá í komu hans fyrirboöa þess, að æsku menn Rússiands væru að rífa sig undan oki valdstjórnarinnar austur þar og framundan væru vaxandi samskipti og hugarfars breyting í áti vii vestrænna hátta og mennin;, Fréttir, sem'borizt hafa af veru skáldsins i Engiandi eru engan !veginn samhijóða og hver mót mælir öðrum. Vestlendingar hafa að sjálfsögðu viljað umfram allt reyna að nota Jewtuschenko til áróðurs enda maðurinn vel íil áróðurs fallinn, en á móti hafa mælt kommúnistablöðin og hvort, sem mönnum líkar betur eða verr hann sjálfur að nokkru leyti. Sjálfsagt mun það og sannast mála, að Jewtuschenko er komm únisti og dvöl hans á Vesturlönd um gerð í þeim tilgangi einum að kynnast fleiri hliðum heims- menningarinnar og sýna allri heimsbyggðinni, að „svona eiga sýslumenn að vera.“ Þar með er ekki sagt. að Jewt uschenko sé sammála rússnesku valdastjórninni í öllu, það hefur hann ekki heldur hikað við að viðurkenna. En fyrst og fremst er hann góður fulltrúi rússneskra skáldbókmennta og góður full trúi hins bezta í fari rússnesku þjóðarinnar og þess vegna er það engin furða þó að honum sé hleypt til Vesturlanda. Því áður en lýkur má það vera öllum Ijóst að skáldið Jewtuschenko er ætt- jarðarvinur, sem metur land sitt og þjóð það mikið, að hann verð ur ekki til áróðurs nýttur á Vest urlöndum. þar eð vera f jölskyldunnar í ,pí- beffiPvar afleiðing af brottrekstri langafa Jewtuschenkos úr Úkra- níu í útlegð til Síberíu Afi Jewtsc henkos í móðurætt hvarf í hreins ununum miklu árið 1937 og eftir það yfirgaf faðir hans fjöl- skyldu sína, þar eð hann vildi ekk-i vera í tengslum við konu, sem átt hafði flokksvikara að. Skáldið Jewtuschenko er ekki aldinn maður, hann er íæddur Síberíu árið 1933, sonur land- fræðings og konzertsöngkonu. Skömmu eftir fæðingu íluttu for eldrar hans frá Síberíu — settust að í Moskvuborg. Þar.varð fjöl- skyldan fyrir pólitískum afsókn um og var það ekki í fyrsta sinn ALÞYÐUBLAÐ1D - 27. júlí 1962 13 -i iá 'C I

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.