Alþýðublaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 1
RIOSKVA, 13. ág. (NTB/REUTER). Rússuesku „geimtvíburarnir" Popovitsj og Nikolajev voru í kvöld enn á hraðaferð umhverfis hnöttinn í geimförum sínum Vostok 3. og 4.. Ekki er enn vitað hvenær hug- myndin er að láta þá félaga lenda, en birt hefur verið fregn um, að Krústjov hafi spurzt fyrir um það. Kl. 19 eftir ísl. tíma tilkynnti TASS, að Vostok 3. væri búinn að fara 40 hringferðir og 1.650.000 kíló- inetra. en Vostok 4. 24 ferðir og nálægt eina milljón kílómetra. Bar það ekki alveg saman við fyrri fregn, on su síðari sjálfsagt réttari. Allmög hafði dregið úr þeini orðrómi í Moskvu í dag, að þess væri að vænta að þriðja geimfarinu yi'ði skotið á loft, en eftirvænting hafði verið mikil í allan dag. ■Krústjov, forsætisráðherra, átti í dag samtal við geimfarana tvo, og óskaði þeim til hamingju með góðrar lendingar. Síðustu fregnir frá gcimförunum eru þær, að þeim líði báðum vel og hafi lokið skyldu störfum sínum í dag. í dag hafa útvarpshlustendur hvað eftir annað getað heyrt samtöl frá geimförunum og í sjónvarpi hafa sézt myndir úr báðum förunum. Af viðtölum þeim, sem endurvarpað var í Rússlandi í dag heyrð- ist, að Popovitsj ber nafnið „Gullni örn“, en Nikolajev kallast „Fálki“. STRANDAÐI í GÆRDAG 4»egar þeir félagar fóru yfir Skandinavíu og Vestur-Evrópu sendu þeir kVeðjur til þjóðanna, sem þar búa, með ósk um frið og hamingju. Á það er bent, að enn hefur ekki verið látið uppi hve stór geimförin séu. Fyrstu tvö Vostok- förin vógu 4,5 tonn en ýmislegt þykir benda til, að þessi kunni að vera stærri, séu ef til vill tveggja manna för. Talsmaður sjónvarpsfélaganna, sem komið hafa sér saman um að samræma sjónvarpssendingar yfir Atlantshaf, segir, að sovétstjómin hafi neitað ákveðið, að taka þátt í tilraun til að senda sjónvarps- myndir frá geimförunum beint til Bandarikjanna um Telstar. HELQI ÁTTI frábæran leik i marki íslands á sunnu- daginn. Hér bjargar hann skoti frá Fogarty, vinstri innherja íra. Sveinn og Árni fylgjast spenntir með. Fleiri myndir á Íþróttasíðu. ÞEGAR varðskipið Ægir var að fara fró Akureyri í gærdag tók; það niðri og sat fast í rúmar þrjár klukkustundir. Skipið losn- aði þó af eigin rammleik. Atburður þessi skcði um klukk- an 13 í gærdag, er varðskipið Ægir var að fara frá Akureyri. Skipið hafði legið við bryggju en þegar það lagði frá tók það niðri að framan. Þegar í stað var hafizt handa um að losa skipið. Tókst það að lokum. Höfðu þá vírar verið settir í land og keyrt á fullu aftur á bak. Einnig liafði ballest verið dælt úr skipinu að framan verðu til þess að létta það. Strand þetta vakti mikla furðu Framnata a i j. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.