Alþýðublaðið - 03.10.1962, Page 16
eftir gildandi reglugerð þaraðlút-
I andi, þannig að hann skoðaði a'5
jminnsta kosti tíunda hvern poka,
— væri um að ræða 50 poka eða
fleiri af sömu tegund. Þegar kart-
öflurnar koma frá framleiðanda
eru þær greinilega merktar, bæði
tegund og nafn framleiðanda.
Kári tók það fram, að hann
teldi að kartöflurnar, sem komu á
markað eftir að matið tók til starfa
í haust, hefðu ekki verið flokkun-
arhæfar eftir ströngustu reglum.
Kvaðst hann hafa bent forstjóra
Grænmetisverzlunarinnar á þetta.
Hefði hann talið Kára hafa á réttu
að standa, en við þessu væri ekk-
ert að gera, því annars yrði land-
ið að vera kártöflulaust.
Kári benti á, að meðferð kart-
aflnanna væri, eins og á eftir segir,
áður en þær koma í hans hendur
O
'0 O
OC
c J
o
k i&rj. /51) f.fi'Tfk ÁNNÁN
♦RANNSÓKN kartöflumálsins,
svokallaða, er nú að mestu lokið. í
gærdag mætti fyrir Sjó- og Verzl-
unardómi Reykjavíkur, Kári Sig-
urbjörnsson, yfirmatsmaður kart-
aflna. Kom margt athyglisvert
fram í vitnisburði hans. Meðal ann
ars sagði hann, án þess þó að það
væri bókað í réttarhaldinu, að
kartöflur, sem fluttar væru hing-
að frá útlöndum, væru aldrei metn
ar, heldur þyrfti um þær aðeins
lieilbrigðisvottorð frá Atvinnu-
deild Háskólans. Sagðist Kári
sjaldan hafa séð jafn smáar og lé-
legar kartöflur og þær, sem fluttar
voru hingað til Iands í sumar.
í réttarhaldinu lét Kári þess
gétið, að hann hefði bent forstjóra
grænmetisverzlunarinnar á, að sér
þættu kartöflurnar ekki vera mats-
hæfar snemma í haust. Forstjór-
inn hefði talið hann hafa á réttu
að standa, en við því væri ekkert
að gera, landið yrði annars kart-
öflulaust.
Sjó- og verzlunardóminn skip-
uðu Valgarður Kristjánsson, dóms-
forseti og meðdómendur, Hafliði
Jónsson og Jóliann Ólafsson.
MAT OG MEÐFERÐ
Kári Sigurbjörnsson hefur ver-
ið yfirmatsmaður kartaflna um
18—19 ára skeið, en hætti störf-
um nú um síðastliðin mánaðamót.
Aðspurður í réttinum sagði
hann, að starf sitt væri alveg óháð
Grænmetisverzlun landbúnaðar-
ins, og væri flokkun og mat kart-
aflnanna algerlega utan við henn-
ar verksvið.
Aðspurður um hvernig hann hag
i aöi staiíi sínu, kvaöst Kári fara
þær á flokkunarvélar. Eru þær
síðan settar í poka og fluttar til
Reykjavíkur til Grænmetisverzl-
unarinnar og þar er þeim staflað
upp í geymsluhúsi, sem þó ekki er
sérstök kartöflugeymsla.
Þaðan fara pokarnir svo á færi-
bandi upp á loft og á flokkunar-
vél, síðan er þeim pakkað í sölu-
umbúðir, 5 kg. bréfpoka, sem eru
alveg loftþéttir. Taldi Kári, að slík
pökkun gæti valdið skemmdum,
þ. e. a. s. að pakka þeim þannig
meðan á uppskerutímanum stend-
ur, því þá og þá fyrst á eftir sé út-
gufun úr kartöflunum mjög mikil.
Pokarnir gætu þannig orðið gróðr-
arstía allskyns skemmda, einkum
þar sem oft væru þeir geymdir í
verzlunum á heitum stöðum jafn-
vel, og gæti þessi meðferð því
valdið mjög örum skemmdum. —
Hinsvegar sagði hann, að kartöfl-
urnar hefðu ekki verið í því ásig-
komulagi, þegar hann flokkaði
þær, að hann hefði talið sig geta
neitað að framkvæma matið.
Hann tók það fram, að reglu-
gerðin um mat garðávaxta greini
ekki hve lengi hvert mat fyrir sig
eigi að gilda, og hafi honum
hvergi tekizt að fá úr því skorið.
UMBÚÐIR
Varðandi skýrsluna frá Atvinnu
deild Háskólans kvað Kári það
hafa komið sér mest á óvart hve
mikið var um smælki í rannsökuð-
um sýnishornum; annað í niður-
stöðu rannsóknarinnar kvaðst
til mats: Fyrst eru þær teknar upp, hann e£tir atvikum telja eðlilegt,
oftast með stórvirkum vélum, sið- eftir þeirri meðferð, sem kartöfl-
an eru þær fluttar af kartöfluökr-1 -g
unum og í geymslu. Þaðan fara FramH. á 3. síðu
EFRI MYNDIN: Valgarður Kristjánsson, dómsforseti, til
vinstri við hann, Haf!iði Jóns, og' til hægri Jóhann Ólafsson,
meffdómendur. NEDRI j MYND: Kári Sigurbjörnsson, yfir-
matsmaður.
\
43. árg. — Miðvikudagur 3. október 1962 — 217. tbl.