Alþýðublaðið - 07.10.1962, Síða 1
s
Lög um lágmarkslaun?
Sjá: Um helgina, bls. 5
Alþýðublaðsmaður i ævintýrum:
LÉT SMYGLA SÉR
TIL UPPREIS
43. árg. — Sunnudagur 7. október 1962 — 221- tbl.
REMBING5K0SS
STÚLKUTETRIÐ er útlend sem betur fer, og strákurinn
heitir Adam Faith. Hann er einhvers konar mjálmari, sem ger-
ir krakkana bandvitlausa eins og sjá má. En myndin er tekin á
söngskemmtun kappans. Þá rauk ein 14 ára stúlka á söngvar-
ann og rak honum rembingskoss fyrir framan augu þúsund-
anna, en strákurinn Iét þetta ekki trufla sig og hélt áfram aff
væla dægurlögin sín eins og ekkert hefffi í skorizt.
ERLENDUR HARALDSSON, sem um
tíraa var blað'amaður hjá Alþýðublað
inu, hefur seinni partinn í sumar ver
ið á verðalagi um náhegari Austur-
iönd. Meðal annars kom hann tH
Irak og rataði þar í það ævtntýri að
lieimsækja hina kúrdönsku uppretsn
armenn í norðurhluta landsins. Sú
heimsókn er í sjálfu sér mikið afrek,
því að til þeirra hafa aðeins tveir
/estrænir blaðmenn komizt áður, mun
?nnar þeirra vera frá stórblaðinu
New York Times. Erlendur mun
skrifa greinar fyrir Alþýðublaðið úr
hessari ævintýraför til Kúrdaima.
Erlendur hafði kynnst kúrdönsk
um námsmönnum í Evrópu og er
hann var kominn til Bagdad, höfðu
vinir þeirra samband við hann, og
smygluðu honum í kúrdönskum
þjóðbúningi gegijum hervörð
Kassims yfir á yfirráðasvæði upp-
reisnarmanna. Með þeim dvaldist
hann um tíma og-ræddi við for-
ingja þeirra, en þama voru þeir
í bækistöðvum í klettagili með
nokkrum skógi og hellum. Hvert
sem hann fór, var með honum
hervörður.
Hér fara á eftir þættir úr bréf
um Erlends:
Bagdad 11. sept.: „Hér er hið
mesta liervaldseinræði, sem ég hef
nokkru sinni kynnzt. Það þarf ekki
einasta að fá árltun á vegabréf
inn í landið heldur einnig út úr
því og á milli héraða.í
Það er aldrei minnst á stríðið
hér, þótt oft sé barizfc af mikilli
hörku. Yfir 500 sveitaþorp Kúrda
hafa að þeirra sögn vorið brennd
til ösku með eldsprengjum frá
Mig-flugvélum, sem fara þrjár
ferðir á degi hverjum í því skyni.
Manntjón í þorpunum ’hefur ekki
verið mikið vegna góðrar leyni
þjónustu Kúrda.Á morgun verður
mér smyglað upp í fjoliin, klædd
ur í kúrdanskan þjóðbúning. Fyrst
fer ég á trukk, en síðan settur á
hestbak og fer ríðandi til aðal-
stöðva uppreisnarhersins."
Bagdad 12. sept: „Þeir komu í
gær vinir mínir að norðan og
sögðust hafa fengið skeyti um að
þeir skyldu leggja af stað með
mig fyrst seinnihlutann á morgun.
Erlendur Haraldsson.
Sagði hann mér að harðir bardagar
væru nú á milli stjórnarhersins og
og úppreisnarmanna og mikið
mannfall í liði þeirra fyrmefndu,
sem eru sléttubúar og geta ekki
notað sín þungu vopn upp í fjcill-
unum þar sem norðanmenn ráðást
fyrirvaralaust á þá, eru saman í
smá hópum, og taka iðulega mikið
af vistum og hergögnum, Hingað
kom þjóðverji ofan frá Mósúl í
morgun, en þar eru aðalstöðvar
stjómarhersins í borgarastyrjöld
ínni. í Mósúl búa nú aðeins 3 evr-
ópskar fjölskyldur. Hinar eru allar
famar á brott. Sagði hann að þar
væri nú stöðugur straumur her-
manna í gegnum borgina ,til og
frá. Oft væri komið með um og yf
ir hundrað særðra heimapna 'til
borgarinnar á dag. Stundum: kæmi
ekki nema fjórðungur lierflokka
þeirra til baka sem upp f fjöllin
væru sendir. Þarna er lika stærsti
flugvöllur á þessu svæði og hafast
þar við um 30 þotur Kasshns .af
rússneskri gerð. Fara þær aíllar á
hverjum einasta degi í árásjrferð
ir nokkxum sinnum á dag og txúi
ég því þá betur, sem Kúrdinn
Þjóðvilja-
lygi svarað
ÞJÓÐVILJINN lýgur því enn einu sinni upp í gær, aff Jón
Sigurðsson formaffur Sjómannasambands íslands hafi veriff
fylgjandi gerffardómnum. Alþýðublaöið hefnr birt sérálit Jóns,
þar sem hann hélt fram sjónarmiðum samninganefndar sjó-
manna og ef þau hefðu náff fram aff ganga hefðu síldveiffisjó-
menn búið viff óbreytt kjör. Þetta veit Þjóðviljinn en samt lýg-
ur blaðiff því hreinlega upp, aff Jón hafi stutt gerðardóminn. —
Sjómenn! Sýnið kommúnistum, að þiff látið ekki blekkja ykkur.
Sýnið kommúnistum að þið kærið ykur ekki um forsjá þeirra.
Fylkið ykkur um A-Iistann og gerið sigur hans sem stærstan.
HAB-happdrættiö í dag!
DREGIÐ í kvöld
0 í> C>
Afgreiöslan á Hverfisgötu 4 opin li! kl- 8 í kvöld.