Alþýðublaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 13
island i Framhald aí 7. síðu. ingshafta á grundvelli sáttmála Alþj óðaiollmálastofnunarinnar Efnahagsband f.agiS hefur átt viðræður við aðrar þjóðir innan Alþjóðatollmálastofnunarinnar um lækkun sameiginlega tolisíns. Voru þar í fyrsta lagi viðræður vegna þeirra tollalækkunar, sem sameig inlegi tollurinn felur í sér fyrir lönd utan bandalagsins, og hafa þessar viðræður verið nefndar „compensations“-viðræðurnar. Lít- ill árangur varð af þeim. Á þessu ári var hins vegar undirritaður samningur milii Efnahagsbanda- lagsins og Bandaríkjanna og Efna hagsbandalagsins og nokkurra annarra þjóða um 20% lækkun sameiginlega tollsins á nokkrum iðnaðarvörum gegn sams konar tollalækkunum gagnaðilans. Þessir samningar voru árangur viðræðna sem fram höfðu farið innan A1 þjóðatollmálastofnunarinnar að frumkvæði Bandaríkjanna, og hafa yfirleitt verið kenndar við núver- andi fjármálaráðþerra Bandarikj- anna, Mr. Dillon, og nefndar „Dill on-viðræðurnar.“ Bandaríkjastjóm er mjög fram um að halda áfram á þeirri braut að lækka tolla í við skiptum milli Bandaríkjanna og ríkja Efnahagsbandalagsins. Hefur bandaríska þjóðþingið nú nýlega heimilað forsetunum all víðtækar tollalækkanir. Samkvæmt lögum þeim, sem þingið samþykkti og bera nafnið „Trade Expension Act“ getur Bandaríkjaforseti samið um allt að 50% lækkun tolla og algert afnám tolls af þeim fáu vöruteg- undum, sem Bandaríkin og Efna- hagsbandalagsríkin verzla svo til pinvörðungu sín á milli. Búast ma Við, að viðræður um tollalækkanir samkvæmt þessum lögum hefjist innan Alþjóðatollmálastofnunarinn ar á næsta ári. Samkvæmt reglum stofnunarinnar verða auðvitað öll aðildarríki hennar aðnjótandi þess ara lækkana samkvæmt beztu-kjara ákvæðum milliríkjasamninga. Þessar viðræður Bandaríkjanna pg Efnahagsbandalagsins munu þó engan veginn leysa vandamál ís- lands, því að þær taka ekki til sjáv arafurða, en Bandaríkin og Efna hagsbandalagsríkin verzla sárlítið með jsjávrafurðir sín í milli. Þessar umræður munu liklega ekki heldur snúast um aðrar vörur sem okkur skiptir máli. Það er mikilvægt, að menn geri sér þessa staöreynd Ijósa, þ.e.a.s. að væntan Íegar tollaviðræður Efnahagsbanda lagsins og annarra ríkja innan Al- þjóðatollamálastofnunarlnnar munu ekki leiða til lækkunar tolla á þeim .vörum, sem við höfum á- buga fyrir. Það er ennfremur nauðsynlegt, að menn geri sér Jjóst, nð engin önnur þjóð en við hefur verulegan áhuga á lækkun tolla á sjávarafurðum, nema Norð menn og Danir. Búast má hins vegar við, að áhugi þeirra á lækk un tolla á sjávarafurðum hverfi úr sögunnj, þegar þeir eru orðnir að- ilar að Efnahagsbandalaginu og liáir tollar þess á sjávarafurðum eru orðnir verndartollar fyrir þá. íslendingar yrðu því sjálfir að hafa forgöngu um samninga um tolla- lækkanir. Ef íslendingar velja þann .kostinn að standa algjörlega utan Efnahagsbandalagsins, tel ég senni legt, að þeir gætu með samningum við bandalggið komið fram ein liverri lækkun sameiginlega tolls ins á sjávarafurðum gegn samsvar andi lækkun tolla á þeim iðnaðar vörum, sem íslendingar flytja inn. Fari svo, að aðrar fiskútflutnings þjóðir í Evrópu gerist aðilar að bandalaginu, mundu ekki aðrar Evrópuþjóðir en íslendingar njóta góðs af þessum lækkunum í verulegum mæli fyrst um sinn, og ætti það að auðvelda samninga. Slíkir samningar um tollalækk- anir gætu að sjálfsögðu dregið veru lega úr því fjárhagstjóni, sem ís- lendingar að öðrum kosti yrðu fyr ir, ef þeir stæðu utan Efnahags- bandalagsins. Það er hins vegar mikilvægt, að menn geri sér Ijóst að þeim árangri, sem ná má með þessari leið, eru takmörk sett. í fyrsta lagi verður að gera ráð fyrir að ekki takist að ná samningum um afnám tollanna, heldur aðeins um lækkun þeirra. í öðru lagi er hinn sameiginlegi tollur bandalags ins á sjávaratfurðum tiltölulega hár þannig að um tilfinnanlegan toll- múr yrði að ræða, jafnvel þótt veruleg lækkun á tollunum fengist íslendingar mundu því varla geta öðlazt jafna samkeppnisaðstöðu við keppnauta sína með þessu móti þar eð allir helztu keppinautamir yrðu væntanlega innan bandalags ins. í þriðja lagi er hugsanlegt, að hin sameiginlega stefna bandalags ins í sjávarútvegsmálum feli það í sér, að tekið verði upp einhvers- konar markaðsskipulag á viðskipti með -sjávarafurðir, er torveldi fisk sölu þjóða, sem utan bandalagsins standa. í fjórða lagi er sennilegt, að samningar um tollalækkanir íengiust ekki gerðar nema til til- tölulega skamms tíma. Ef svo væri mundi bv£ veruleg óvissa vera ríkiandi. i þessum efnum, og er hætt við, að bað dragi úr viðleitni til að efla útflutning til Efnahags- bandaiagssvæðisins. í fimmta lagi mundi slíkur samningur eflaust aðeins taka til tollalækkana á sjáv arafurðum. Lítil von er til bess, að Efnahassbandalagið vildi okkar vegna brevta því skipulagi, sem væntaniesa verður á viðskiptum með sanðfiárafurðir og ætlað er til verndnnar sauðfjárrækt á Efna hagsbandalagssvæðinu enda mnndu bá um ieið verða opnaðar gáttir fvrir stórframleiðendum, gins os Nt>ia-Siálandi. Það er einn ig óhuesandi. að Efnahagsbanda- lasið vrði reiðubúið til þess að drasa úr vernd alúminíumiðnaðar sfns seen risaiðnaði Bandarikjanna og Kanada. hvað bá afnema hann. til þess eins að auðvelda íslending nm koma upp alúminíumiðnaði hiá sér. Þá er þess einnig að geta, að tollasamningslelöinni fylgir hlið- stæður vandl og aukaaðildarleið- inni, að því er snertir innlenda iðn aðinn, jafnkeypisviðskiptin og fjár mál ríkisins, því að útilokað er, að íslendingar gætu komið fram veru legri lækkun tolla á sjávarafurð- um og afnámi innflutningshafta, nema lækka sjálfir tolla sína og afnema tonflutningshöft. Höfuðmuaur tollasamningsleiðar- innar og aukaaðildarleiðarinnar er í rauninni fólgin í því, að með auka aðildarleiðinni er auðveldara að tryggja íslendingum hagkvæma við skiptaaðstöðu, en það kostar samn inga um viðkvæm mál, eins og rétt útlendinga til atvinnurekstrar hér á landi og innflutning erlends fjár magns og erlends vinnuafls. Ef tollasamningsleiðin er farin, kem ur hins vegar aldrei til slíkra samn -toga, en útilokað virðist, að við- skiptaaðsaða íslendinga geti með því móti nokkurn tíma orðið eins góð og hún getur orðið á grundvelli aukaaðildarsanmings. Þá er það að sjálfsögðu meginmunur á auka aðildarleiðinni og tollasajmnings leiðinni, að aukaaðili tekur með einum eða öðrum hætti þátt í störf um bandalagsins og getur að vissu leyti haft aðstöðu til þess að hafa áhrif á stefnu þess, en ríki sem gerir tollasamning við Efnahags- bandalagið, er utan þess og tekur að sjálfsögðu engan þátt í störfum þess né hefur aðstöðu til að hafa áhrif á stefnu þess. Ríkisstjórnin telur, að leitast eigi við að finna lausn á þeim vanda málum, sem stofnun Efnahags- bandalagsins og stækkun þess býr íslendingum, þannig að brýnir viðskiptahagsmunir okkar í Vestur- Evrópu séu tryggðir, án þess að hagsmunum okkar á öðrum sviðum sé jafnframt teflt í hættu. Það er mikilvægt, að slik lausn finnist, ekki aðeins til að verja íslendinga efnahagstjóni í bráð, heldur ekki síður til þess að tryggja vaxandi framfarir og batnandi lifskjör á íslandi, þegar yfir lengri tíma er litið. Síðast en ekki sízt er þess að geta, að slik lausn mundi treysta samband okkar við nágranna okkar í Evrópu og tengja okkur fastar því samstarfi vestrænna þjóða, sem við höfum verið aðilar að frá stríðslokum. Á hton bóginn hefur það ekki verið unnt og er ekki enn, að gera sér endanlega grein fyrir því, með hvaða hætti þessi lausn, þ.e.a.s. hvort stefna eigi að því, að tengsl íslands við Efnahags- bandalagið verði á grundvelli aukaaðildarsamnings eða tolla- samnings. Rikisstjórnin hefur talið það skyldu sina að kanna málið ýt- arlega, bæði með athugunum hér heima fyrir og með viðræðum við ríkisstjórnir aðaldarrikja bandalags tos og framkvæmdastjórn þess.. Það hlaut að teljast bezti undir- búningurinn undir ákvörðun í mál inu þegar hún yrði óhjákvæmileg. Á þennan hátt var einnig hægt að vekja þann skilning á aðstöðu okk ar erlendis, sem okkur er nauðsyn legur við lausn. vandans. Mér er óhætt að fullyrða, að hiá aðildar- ríkjum Efnahagsbandalagsins og framkvæmdastjórn þess er ríkjandi skilningur á aðstöðu íslands og samúð með málstað þess. Rikisstjórnin er þeirrar skoðunar að ennþá sé ekki kominn timi til ákvarðana í máli þessu. Áður en þær eru teknar, er nauðsynlegt, að fengta sé niöurstaða í þeim samntagum, sem nú fara fram i Briissel milli Efnahagsbandalags- ins og Breta, og helzt einnig niður staða í þeim viðræðum, sem eiga eftir að fara fram milli Efnahags bandalagsins og annarra rikja, er sótt hafa um aðild eða aukaaðild að bandalaginu. Meðan beðið er þessarar niðurstöðu, þurfa íslend- ingar að einbeita sér að þrennu. Við þurfum að halda áfram athug- unum hér heima á ýmsum hliðum þessa máls. Við þurfum að fylgjast sem bezt með framvindu þess er- lendis. Og við þurfum að keppa að því að fá aðstöðu til þess að koma sjónarmiðum okkar á framfæri í sambandi við undirbúning og mót un sameiginlegrar stefnu Efnahags bandalagsins í sjávarútvegsmálum Þegar niðurstöður hafa fengizt í þelm samningaviðræðum, sem ég gat um áðan, hefur væntanlega fengizt grundvöllur til bess að ganga endanlega úr skugga um hvaða kostir geti staðið íslending um til boða. Þá er fyrst fyrir hendi nægileg vltneskja til þess að unnt sé að mynda sér endanlega rökstudda skoðun á því, hvers kon ar tengsl við Efnahagsbandalagið tryggi bezt liagsmuni íslendinga. MARKAÐURINN Hafnarstræti 11. VERZLUNARSTARF Störf í kjörbúðum Vér viljum ráða stúlkur til starfa í kjör- búðum vorum strax og síðar. — Nánari upplýsingar gefur Starfsmannahald SÍS, Sambandshúsinu. STARFSMAN NAHALD Pökkunarstúlkur óskast strax. H ra$frystíhúsið Frost h.f. Hafnarfirði — Sími 50165. vamtar unglinga til að bera blaðið til áskrif- enda í þessum hverfum: Framnesvegi, Laugavegi, Nýbýlavegi, Afgrefösla Alþýöublaösins Slml 14-900. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. nóv. 1962

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.