Alþýðublaðið - 22.03.1963, Síða 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
22. marz 1963 .,7
um
jr
1
lávarðadeild
AÐALSMENN úr þrem stærstu
stjórnmálaflokkum Englands eru
allir á sama máli um að gera þurfi
meira fyrir listir nú á dögum, en
ekki geta þeir komið sér saman
um livað setja beri á oddinn.
Þetta var niðurstaðan af um-
ræðum í lávarðadeild brezka þings
ins hér á dögunum. Umræðurnar
FÓTASÉRFRÆÐINGUR einn í
London liefur lýst því yfir, að frá
heilsufræðilegu sjónarmiði ættu
hælar á kvenskóm alls ekki að
vera meira en fimm sentimetrar
á hæff.
zFótkvilIar allskyus hafa aukizt
mjög hjá kvcnfólki síðustu árin,
cn ekki hefur nein aukning komið
í ljós hjá karlmönnum. Tölfræð-
in sýnir meira að segja, að fót-
sjúkdómar séu sex sinnum algeng-
ari lijá konum en körlum.
Læknaþing í vestur Þýzkalandi
komst nýlega að þeirri niðurstöðu,
að aðeins 2% allra kvenna hafi
fallega og heilbrigða fætur, og yf-
irleitt geti konur kennt hinum háu
hælum um flest fótamein sín.
spunnust þegar ársskýrslu lista-
ráðsins bar á góma í deildinin.
íhaldsmenn vildu meiri listir,
mikið meiri listir, og þeir héldu
því fram að bæjar og sveitarfélög
ættu að útvega fjárveitingar í því
augnamiði.
Aðalsmenn úr Verkamanna-
flokknum vildu einnig að listun-
um yrði gert hærra undir höfði
en verið hefur til þessa, og ætti
fé til þeirra hluta að sjálfsögðu
að koma frá ríkinu.
Frjálslyndir sögðu að listir ættu
fulían rétt á sér og væru alveg
prýðilegar, en minntust ekkert á
peningahliðina.
Auckland, lávarður, sem er í-
haldsmaður, sagði að vissulega
væri meiri þörf á penicillini en
Puccini, en samt yrðu menn að
gera sér það 1 jóst, að Puccini hefði
fært milljónum gleði og ef til vill
huggun.
Walston, lávarður, fulltrúi verka
mannaflokksins lét þá skoðun sína
í ljós að stórfyrirtæki ættu að
styrkja og stuðla að framgangi
listanna.
Derwent Iávarður verzlunar-
málaráðherra, sagði, að á yfir-
standandi fjái-hagsári væru veitt-
ar 1200 milljónir (ísl. kr.) til list-
ráðsins og meira væri ekki hægt
að gera. Ef menn vildu auka
petta, yrði það að gerast á kostn-
að bæjar- og sveitarfélaga.
Föstudagur 22. marz
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónl. —
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónl. — 9.10 Vfr. — 9.20 Tónl.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.25 Lesin dagskrá næstu viku.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum“: Sigurlaug Bjarnadóttir les skáld-
sögunda „Gesti“ eftir Kristínu Sigfúsdóttur (9).
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.00 Veð-
urfr. — Tónl. — 17.00 Fréttir. — Endurt. tónlistarefni).
17.40 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku.
18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan": Guðmundur M. Þorláksson tal-
ar um Benedikt Gröndal.
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þingfréttir. — 18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Úr sögu siðbótarinnar; II. erindi: Um séra Jón Einarsson.
(Séra Jónas Gíslason).
20.25 „Fórnin“, söngur Brynhildar úr óperunni Ragnarrök eftir
Wagner. (Eileen Farrell syngur).
20.45 í ljósi: Lesið úr kvæðabókum Þórodds Guðmundssonar, Heið-
reks Guðmundssonar og Braga Sigurjónssonar. Lesarar: Ragnheiður
Heiðreksdóttir, Valdemar Lárusson og Baldur Pálmason, sem
sér um þáttinn.
21.10 Frá Menton tónlistarhátíðinni í Frakklandi.
21.30 Útvarpssagan: „íslenzkur aðall“ eftir Þórberg Þórðarson;
XV. (Höfundur les).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. — Passíusálmar (35).
22.20 Efst á baugi (Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson),
22.50 Á síðkvöldi: Lélt-klassísk tónlist.
23.30 Dagskrárlok.
Hún: Ég veit ekki hvort ég á
heldur aS fara til spákonu eSa hugs
analesra.
Hann: Farðu heldur til spákonu,
þú hefur þó að minnsta kosti lófa.
★
— Maðurinn minn elskar mig út
af lífinu. Þú ættir að heyra allt það
dásamlega, sem hann segir um mig
upp úr svefninum. Það versta er,
að hann nefnir mig bara aldrei réttu
nafni.
★
— Nýgiftu hjónin voru að fara
í ferðalag með járnbrautarlest.
— Nú skulum við láta fólk
halda, að við höfum verið gíft langa
lengi, Jói, sagði hún.
— Allt í lagi elskan, sagði Jói.
Þá berð þú ferðatöskuna.
if
Vinirnir höfðu ekki hitzt í mörg
herrans ár.
— Er konan þín alltaf eins
falleg?
— Já, en það er farið að taka
hana lengri tíma nú orðið.
★
— Elskarðu mig, Gvendur?
Já, auðvitað elskan mín.
- Hvað mikið?
- Hvað vantar þig mikið?
★
Hann Jón er orðinn alveg hræði-
[ega utan við sig. Hérna um dag
inn kyssti hann konu í misgripum.
— Hann hefur haldið það vera
konuna sína.
Það var konan hans.
★
Faðirínn: Klukkan er orðin tvö.
haldið þér að þér getið verið hér
í alla nótt?
Biðillinn: Þá mundi ég þurfa að
hringja heim fyrst.
★
Rakarinn: Hef ég ekki rakað yð
ur fyrr?
Viðskiptavinurinn: Nei, ég fékk
þetta ör í Kóreustríðinu-
★
- Nei, ég tók ekki starfið. Það
var engin framtíð í því. Dóttir eig-
andans var þegar gift.
13?
— Ég er búin a'ð komast tvo
kílómetra bara með því að ýta
á starthnappinn. En nú kemst
ég ekki lengra.
Garður
Það er ekki erfitt að fá blóm
og plöntur til að þrífast vel í
gluggum og grörðum, þar sem nýt-
ur sólar og dagsbirtu. En öðru
máli gegnir, þar sem dagsbirtu
nýtur alls ekki.
Sænskur garðyrkjumaður fékk
fyrir skömmu það verkefni að gera
blómagarð 400 metra undir yfir-
borði jarðar í námu nokkurri í
Svíþjóð.
Félagið, sem átti námuna, vildi
gera allan aðbúnað sem beztan,
fyrir verkamennina og .því var á-
kveffið að gerður skyldi þarna
biómagarður.
Garðyrkjumaðurinn varð að
gera umíangsmiklar tilraunir áður
en hann gat ákveðið, hvaða blóm
skyldu sett í námuna. Hann varð
að finna blóm, sem þrifust viff
rafmagnsljós. Við tilrafunirnar
sýndi það sig, að krókusar og túlí-
panar þrifust mjög vel við slíkar
aðstæður, svo og ýmis önnur lauk
blóm. Hins vegar kom í ljós, að
pottaplöníur þrifust ekki. — Þær
náðu ekki eðlilegri hæð og visn-
uðu jafnskjótt og þær höfðu blóm-
strað.
Ljóðaþáttur Baldurs Pálma
sonar „í ljóði“ hefst kl. 20.45
í kvöld. Lesið vefður úr
kvæðabókum Þórodds Guð-
mundssonar, Heiðreks Guð-
mundssonar og Braga Sigur-
jónssonar. Þeir sem íesa enu,
auk Baldurs Pálmasonar,
Valdemar Lárusson og Ragn
heiður Heiffreksdóttir, dóltir
Heiðreks Guðmundssonair.
Myndin er tekin af Ragnheiði
við upptöku þáttarins í gær>
VINSÆLASTA lagið í Bandaríkj-
unum er um þessar mundir „Walk
like a man“, sem sungið er af
kvartett, er nefnist „Tlie íour sea-
sons“, sem útleggst „árstíðirnar
fjórar“.
Bandaríkjamenn ráðgera a?C
senda mann út í geiminn í næsta
mánuði. Sá mun heita Leroy Gorð-
on Cooper. Ferð hans verður sú
lengsta, sem bandarískur geimfar*
hefur farið til þessa. Hann murr
fara 22 sinnum umhverfis jörðinav
á 34 klst.
Bandaríkjamenn mui.a getov
fylgst með honum í sjónvarpi fráv
heimilum sínum. Ætlunin er að
reyna að sjónvarpa beint íir geim -
farinu. Þetta verður í fyrsta skipt*
sem Bandaríkjamenn reyna slikav
sjónvarpssendingu, en Kússar haía
áður gert það.
NÝLEGA cr komin út í Bandat
ríkjunum ný útgáfa af alfræðforðat
bókinni frægu, Encyclopaedíav
jBrittanica. í þessari útgáfú ei
atóminu helgaðar þrettán síffur,
en síða fer í að skýra orðið ást.
Til gamans má geta þess, aíT
fyrstu útgáfu þessarar frægu bók
ar, sem kmn út árið 1768 voru ást
inni helgaðar tíu síður, en þar
var ekki eitt einasta orð um atóm
ið.