Alþýðublaðið - 22.03.1963, Side 9

Alþýðublaðið - 22.03.1963, Side 9
að ýmsar þaer stofnanir, sem viður kenndar hafa verið af ríkisfram- færslunni, eru ekki viðurkenndar sem sjúkrahús, og má sem dæmi nefna sjúkradeildir elliheimila og fávitahæli. Hvorugum þessara agn úa er til að dreifa, ef lífeyristrygg ingar taka á sig þyngstu byrðarnar. í öðru lagi yrði aðeins hálfur á- vinningur að breytingunni fyrir þá aðila, sem framkvæmd þessara mála annast, ef t.d. gamla fólkið yrði flutt af ríkisframfærslu yfir á lífeyristryggingarnar. Gera yrði ráð fyrir, að jafnframt yrði efna- hagsyiðmiðun hætt í sambandi við lírskurði, og mundi það bæði vera réttarbót og spara vinnu. Hins veg ar mundi læknisfræðilega hliðin verða jafnflókin og áður, og í stað deilna milli einstakra sjúkrasam- aga og ríkisframfærslunnar mundu sjúkrasamlög og lífeyristryggingar deila um það, hvorum aðilanum bæri að greiða sjúkrahúsvist í ein- stökum tilfellum. Læknisfræðilega er oft miklum erfiðleikum bundið að skera úr um slík atriði, og kæmi því til ájita, hvort heppilegra væri að fá til úrskurðar mikinn fjölda mála, þar sem um skamma sjúkra- húslegu er að ræða, eða láta sjúkra samlög ætíð bera kostnað af legu j nokkurn tíma, en slíkt veldur auk- jinni vinnu við að fylgjast með sjúkrahúsvist samlagsmanna. Fram kvæmdin hlyti því að verða mikl- um mun auðveldari, ef öll sjúkra- húsvist ósamt nauðsynlegri hælis- vist yrði á vegum lífeyristrygginga, hafi viðkomandi náð tilteknum aldri. Hið sama er að segja um þá, sem yngri eru, einfaldara hlýtur að vera að greina á milli þess, hvort viðkomandi er varanlegur öryrki eða ekki, en fara eftir sjúkdóms greiningu og láta sjúkrasamlög e.t. v. greiða fyrst tiltekið tímabil, óður en lífeyristryggingarnar taka við. Hins vegar er sennilega ekki að sama skapi og með gamla fólkið I ástæða til að lóta alla sjúkrahús vist öryrkja hvíla á lífeyristrygg ingunum, þar eð hér er um tak- markaðri hóp að ræða og hjá mörg um öryrkjum er ekki ástæða til að ætla, að um sjúkrahúsvist þurfi fremur að verða að ræða en hjá starfhæfu fólki. Megingallinn við framkvæmd slíkrar breytingar, sem hér um ræð ir virðist vera sá, að mörkin milli sjúkradeilda og almennra deilda elliheimila séu víða hvergi nærri skýr, og þar af leiðandi verði enn erfiðara en nú að skera úr um rétt inn til greiðslu fulls dvalarkostn- aðar, þegar sami aðili á að kveða á um slíkt og hækkun samkvæmt 23. gr. núgildandi almannatrygginga- laga. Þess galli kæmi að sjálfsögðu einnig fram, þótt hin leiðin, sem að framan er getið, yrði farin. Eins og áður er nefnt, yrði nauð synlegt að gera ráðstafanir vegna hæla fyrir drykkjusjúka menn, þar eð hvorki Gunnarsholt, Úlfarsá né Framhald á 3. síðu. SIGGA VIGGA OG TILVERAN KUBU-MÁLIÐ er mikilvægasta umræðueínl á fundi Kennedys Bandaríkjaforseta og leiðtoga hinna sex ríkja Mið-Ameriku, Guatemala, E1 Salvador, Honduras, Nicaraagua, Panama og Costa Rica þessa dagana. Einnig eru efna hagsmál ríkjanna til umræðu. Rík- in eiga við alvarlega efnahagsörð- ugleika að etja og óska eftir auk- inni bandarískri aðstoð til þess að leysaþá. Ástæðan til þess að Kúba er mest aðkallandi vandamálið er sú, að byltingarólgan, sem á rætur sín- ar að rekja til bylfingarinnar á Kúbu og Castro kyndir undir getur hæglega orðið að beinni byltingu í löndum latnesku Ameríku. Á þann hátt geta framtíðaráætlanir um hæga þróun í átt til heilbrigðari þjóðfélagshátta orðið að engu. Ríkjum Mið-Ameríku er talin stafa sérstök hætta af kúbönsku byltingunni, enda er Kúba ekki langt í burtu. Einnig búa ríkin, sem eru lítil, við óstöðugt stjórnar- far og slæman efnahag. Að þessu leyti er Costa Rica undantekning. Þar ríkir lýðræði og þar hafa kosn ingar verið haldnar reglulega; síð- an 1948. En yfirleitt er þessum svæðum mjög hætt við áhrifum frá Kúbu. Auk Venezúela liggja leiðir kúb- anskra útsendara oftast til þessara sex ríkja. "k Sammarkaður Fyrir liggja áætlanir um, að koma efnahagslífinu í Mið-Amer- íku á traustari grundvöll. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að stofna sameiginlegan markað, sein á að ná til allra íbúanna, sem eru 12 milljónir. Gert er ráð fyrir, að alger, efnahagsleg sameining hefi verið framkvæmd fyrir árið 1970. Ríkisstjórnirnar óska eftir'næg- um tíma, og af þeirri ástæðu er nauðsyn að stemma stigu fyrir á- hrifum frá Kúbu. Kennedy forseti jverður ugglaust minntur á fullan ' stuðning, sem Mið-Ameríkuríkin veittu honum í Kúbu-deilunni í fyrrahaust. Á ráðstefnunni, sem haldin er í San José, höfuðborg Costa Rica, ' munu ríkin jafnframt fara þess I á leiit við Bandaríkin, að þau | taki harðari afstöðu gegn öðrum i ríkjum Ameríku, sem að þeirra á- | liti sýna „veikleikamerki" gagn- vart Kúbu. Hér er ótt við Mexíkó,. Brazilíu, Uruguay, Bólivíu og Chile Þau hafa stjórnmálasamband við Kúbu. Fréttir herma, að Kennedy verði hvattur til að leggja hart að ríkj- um þessum í því skyni að fá þau til þess að slíta stjórnmálasam- bandi við Kúbu. Ef slit verða ákveð in á vettvangi Ameríkubandalags- ins (OAS) með tveim þriðju meiri- hluta atkvæða, mun það skuldbinda öll ríkin til þess að hlíta ákvörð- uninni samkvæmt Rio-samningn- um. Þetta gerðist í sambandi við Dóminikanska lýðveldið 1960. ★ Skiptar skoðanir. Nefnd á vegum OAS mun bráð- lega gefa skýrslu um, hve víðtækur undirróður Kúbubúa er í löndum latnesku Ameríku. Þessi skýrsla gæti orðið grundvöllur sameigin- legra aðgerða. En ekki er hægt að leyna þeirri staðreynd, að skoðan- i ir eru skiptar í löndum latnesku j Ameríku varðandi Kúbu-stefnu ríkjanna í Vesturheimi. Þegar nú virðist sem Rússar muni standa við heit sitt um að senda heim hermenn síixa á Kúbu er æ meiri áherzla lögð á að einangra Kúbu, bæði af bandarískri hálfu og af hólfu ríkja latnesku Ameríku Vonazt er til, að þannig megi koma í veg fyrir neðanjarðar- og undir- róðursstarfsemi. Kennedy forseti hefur m.a. á- huga á, að lönd latnesku Ameríku banni borgurum sínum að ferðast til Kúbu, þannig að mönnum verði meinað að ferðast þangað á lög- legan hátt til þess að fá þjálfun til undirróðursstarfsemi. í þessu sam- bandi hefur athyglin einkum beinzt að Mexíkó, en hvorki stjórnin þar né stjórnir annarra ríkja latnesku Ameríku hafa verið hrifnar af hug myndinni um að skerða ferðafrelsi. San José-fundurinn mun vart marka þáttaskil. Hann er frekar nýr áfangi á leiðinni til al-amer- ískrar einingar um stefnuna gagn- vart Kúbu, ef slík eining er þá yfir leitt hugsanleg. ★ Fjandskapur við Mexíkó. Síðustu fregnir frá _San José herma, að Bandaríkjamenn hafi mestan áhuga á efnahagsmálunum. I Ýmis Mið-Ameríkuríki hafa viljað láta Kúbu-málið sitja fyrir, en Bandaríkjamenn hafa skýrt þeim svo frá, að þeir séu ekki reiðu- búnir að grípa til þeirra ákveðnu aðgerða, sem þau hafa krafizt. Margir fréttamenn telja, að það mesta, sem vonast er eftir að gert verði varðandi Kúbu, sé samningur um, hvernig bregðast skuli við sendingu undirróðursmanna til Mið-Ameríku frá Kúbu. Alvarleg hindrun í þessu máli er, að Mexíkó tekur ekki þátt í ráð- stefnunni. Upphaflega var ákveð- ið að Mexíkanar sendu áheyrnar- fulltrúa, en stjórn Costa Rica lagð ist gegn því. Talið er að Guatemala hafi hót- að að senda ekki fulltrúa ef Mex- íkó tæki þátt í ráðstefnunni. Ekki er vitað um aðra ástæðu fyrir þess ari afstöðu en rótgróna andúð Mig- uel Ydigoras Fuentas, forseta á ná- grannaríkinu í aorðri. Við þessu var ekki búizt, þar eð Guatemala mundi hafa mikinn hag af sam- komulgi við Mexíkó vegna „um- ferðarinnar“ frá Kúbu, en hún fer j aðallega um Mexikó. Nokkur rikjanna, einkum Guate- mala, Nicarauga og E1 Salvador Framhald á 3. síffu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. marz 1963 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.